Borgarráð - Aukafundur nr. 5822

Borgarráð

Ár 2026, mánudaginn 27. apríl, var haldinn aukafundur borgarráðs nr. 5822. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:05. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Alexandra Briem, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Hildur Björnsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Helga Þórðardóttir, Kjartan Magnússon og Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Heimir Snær Guðmundsson, Róbert Marshall og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram að nýju trúnaðarmerkt bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 15. apríl 2026, varðandi ársreikning A-hluta og samantekinn ársreikning A- og B-hluta Reykjavíkurborgar 2025 ásamt trúnaðarmerktum ársreikningi A-hluta og samstæðu Reykjavíkurborgar 2025, ódags. Einnig er lögð fram skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 27. apríl 2026, greinargerð fagsviða og sjóða A-hluta, dags. 27. apríl 2026, greinargerð B-hluta fyrirtækja, dags. 27. apríl 2026, verkstöðuskýrsla nýframkvæmda, ódags, ábyrgða- og skuldbindingayfirlit, dags. 27. apríl 2026, yfirlýsing um stjórnarhætti og ófjárhagslegar upplýsingar, ódags., og bréf endurskoðunarnefndar, dags. 13. apríl 2026, skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 17. apríl 2026, um framkvæmd styrkjareglna, skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 27. apríl 2026, um samantekt yfir breytingar á fjárhagsáætlun 2026, bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 25. apríl, vegna breytinga á framlögðum gögnum ársreiknings 2025, umsögn endurskoðunarnefndar, dags. 20. apríl 2026. Jafnframt er lögð fram umsögn Grant Thornton, dags. 27. apríl 2026. FAS26010009

    -    Kl. 9:07 tekur Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir sæti á fundinum.
    -    Kl. 9:13 tekur Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir sæti á fundinum.
    -    Kl. 9.50 tekur Theódór Kjartansson sæti á fundinum og víkur kl. 10.45.
    -    Kl. 11.17 víkur Líf Magneudóttir af fundinum.

    Ársreikningur A-hluta og samstæðureikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 hefur verið undirbúinn af fjármálaskrifstofu í samræmi við ákvæði 61. greinar sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Það er ánægjulegt að sjá hvernig markviss forgangsröðun samstarfsflokkanna í þágu barna og barnafjölskyldna birtist í rekstrartölum ársins. Við höfum staðið fyrir mikilli uppbyggingu í skólamálum, húsnæðismálum og annarri grunnþjónustu, á sama tíma og rekstur málaflokka borgarinnar er í jafnvægi og í samræmi við áætlanir. Þetta sýnir að það er mögulegt með ábyrgri fjármálastjórn að takast á við áskoranir samtímans og fjárfesta á sama tíma í framtíðinni. Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 sýnir að rekstur samstæðu borgarinnar er traustur og staða hennar sterk þrátt fyrir krefjandi efnahagsaðstæður. Jákvæð niðurstaða A- og B-hluta, sterk eignastaða og áframhaldandi fjárfesting í innviðum undirstrika getu borgarinnar til að standa vörð um grunnþjónustu borgarinnar og framtíðaruppbyggingu. Neikvæð niðurstaða A-hluta skýrist fyrst og fremst af einskiptisáhrifum hækkunar lífeyrisskuldbindinga sem tengjast nýjum kjarasamningum á árinu. Vakin er athygli á 450 m.kr. gjaldfærslu á 22 ára gamalli skuldbindingu sem tengist samningi þáverandi borgarstjóra við Nýja Landspítalann. Hún er umdeilanleg því eftir er að ljúka tengdum samningum sem geta skilað borginni tekjum á móti af byggingarrétti og gatnagerð. Niðurstaðan sýnir stöðugan og traustan rekstur þrátt fyrir utanaðkomandi áföll, svo sem verulega hækkun lífeyrisskuldbindinga og tekjufall hjá Orkuveitunni og Faxaflóahöfnum vegna rekstrarfalls Norðuráls.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lýsa alvarlegum áhyggjum af fyrirliggjandi ársreikningi borgarinnar vegna rekstrarársins 2025. Í desember síðastliðnum var kynnt útkomuspá sem gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu sem nú hefur á fáeinum vikum sveiflast um nær 6 milljarða með neikvæðum hætti. Helstu frávikin felast í ofmati skatttekna, vanmati lífeyrisskuldbindinga og útgjöldum umfram heimildir. Þá vekur athygli að eftir endurskoðun ársreiknings aukast útgjöld um 900 milljónir króna, þar af annars vegar um helmingur vegna óbókfærðrar skuldar vegna bílastæðahúss við Nýja Landspítalann og hins vegar vegna Brákarborgar. Allt kjörtímabilið hefur þemað verið að skera niður í þjónustunni við íbúa og hækka gjöld. Samt sem áður er útgjaldavöxtur borgarinnar meiri en tekjuvöxtur sem ekki er sjálfbært í neinum rekstri. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja löngu tímabært að ráðast að rót vandans í rekstri borgarinnar. Setja þarf aukinn þunga í lögbundna þjónustu en leggja til hliðar kostnaðarsöm gæluverkefni. Minnka þarf yfirbyggingu, fækka millistjórnendum, hefja skipulega niðurgreiðslu skulda, ráðast í aukna útvistun og skynsamlega eignasölu.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn lýsir yfir vonbrigðum með niðurstöðu ársreiknings fyrir árið 2025. Samkvæmt fjármálastefnu og fyrirliggjandi fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir afgangi en ekki hallarekstri. Framsókn skilaði árinu 2024 með um 5 milljarða afgangi og því vonbrigði að áherslum um aðhald og ábyrgð í rekstri sé ekki haldið áfram. Framsókn telur mikil tækifæri til þess ráðast í stjórnkerfisbreytingar sem munu bæði skila hagræðingu en um leið bæta þjónustu við íbúa.

    Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir, Halldóra Káradóttir, Ingunn Ólafsdóttir, Jónas Skúlason, Lárus Finnbogason, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir, Davíð Arnar Einarsson og Bjarni Már Jóhannesson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:20

Alexandra Briem Dóra Björt Guðjónsdóttir

Einar Þorsteinsson Hildur Björnsdóttir

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Sanna Magdalena Mörtudottir

Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 27. apríl 2026 - Prentvæn útgáfa