Áfram unnið að bættu aðgengi við strætóstöðvar í Reykjavík

Strætó á ferð í Borgartúni

Á árinu 2026 er stefnt að endurgerð um 40 strætóstöðva víðs vegar um borgina sem er liður í áframhaldandi uppbyggingu aðgengilegra og notendavænna samgangna. 

Verkefnið er framhald af umfangsmiklum umbótum sem hófust árið 2025, þegar 25 stöðvar voru endurhannaðar. Með framkvæmdum ársins 2026 lýkur seinni áfanga verkefnisins.

Markmið verkefnisins er að tryggja að strætóstöðvar séu aðgengilegar öllum, þar á meðal hreyfihömluðum, eldri borgurum og foreldrum með barnavagna. Meðal helstu aðgerða eru:

  • Endurnýjun og lagfæring á yfirborði stöðva 
  • Hækkun kantsteina þar sem aðstæður leyfa 
  • Leiðarlínur og viðvörunarlínur fyrir blinda og sjónskerta 
  • Bætt tenging við gangstéttar og stíga 
  • Lagfæringar á gönguþverunum 
  • Samræming á staðsetningu búnaðar eins og tímatöflustaura og ruslastampa 
  • Endurnýjun skýla þar sem við á 

Aðgerðirnar miða að því að gera bið við strætó öruggari og þægilegri fyrir alla notendur. Strætóskýlin sem verða endurbætt í þessum áfanga eru meðal annars í Vesturbæ, Grafarholti, Miðbæ, Laugarneshverfi, Háaleiti og Bústöðum, Breiðholti og Árbæ.