Innköllun á Buldak núðlum

Buldak núðlur

Dai Phat Trading ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Buldak spicy ramen hot chicken flavour cup núðlur með carbonara bragði.

Ástæða innköllunar

3-MCDP og glycidyl fitusýrur esterar í vöru. 

Hver er hættan?

3-MCDP er í flokki efna sem líklega eru krabbameinsvaldandi, og hefur verið tengt við nýrnaskaða. 

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Buldak

Vöruheiti: Spicy ramen hot chicken flavour cup (instant noodles carbonara flavour)

Geymsluþol: 28/08/2026

Strikamerki: 4045802737972 – Lota: H W3

Nettómagn: 80g

Framleiðandi: Samyang foods co., ltd.

Framleiðsluland: Suður Kórea

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru

Dai Phat Iceland ehf., Faxafen 14, 108 Reykjavík.

Dreifing

Dai Phat Asian supermarket, Faxafen 14, 108 Reykjavík.

Leiðbeiningar til neytenda

Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skil henni í þeirri verslun sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.