Menningar- og íþróttaráð - Fundur nr. 28

Menningar- og íþróttaráð

Ár 2026, þriðjudaginn 21. apríl var haldinn 28. fundur menningar- og íþróttaráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Laufbrekku og hófst kl. 09:04. Viðstödd voru: Skúli Helgason formaður, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Birna Hafstein varamaður fyrir Björn Gíslason, Friðjón R Friðjónsson, Sara Björg Sigurðardóttir, Stefán Pálsson og Tinna Helgadóttir varamaður fyrir Kristinn Jón Ólafsson. Jafnframt:  Ingvar Sverrisson varaáheyrnarfulltrúi ÍBR og Jóna Hlíf Halldórsdóttir áheyrnarfulltrúi BÍL. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Elín Hrefna Ólafsdóttir, Arnfríður S Valdimarsdóttir, Atli Steinn Árnason, Helga Friðriksdóttir og Fany Larota Catunta sem ritaði fundargerð. 

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram lokaskýrsla spretthóps, dags. apríl 2026, um ungbarnalaugar. MIR25090007

    - kl. 09:07 tekur Birna Hafstein sæti á fundinum.
    - kl. 09:10 tekur Tinna Helgadóttir sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði.

    Borgarfulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Um 70% sundlaugagesta með ung börn eru ánægðir með þjónustu sundlauga borgarinnar við ungbarnafjölskyldur. Niðurstöður tilraunaverkefnis í Breiðholti þar sem laugarhiti voru jákvæðar og jókst fjöldi ungbarna undir þriggja ára aldri til mikilla muna eða úr 15 í 60 að meðaltali meðan tilraunaverkefni stóð yfir. Jákvæðar niðurstöður ýta undir að framhald verði á þjónustubætingu við ungbarnafjölskyldur í sundlaugum borgarinnar sem þarf að fylgja eftir með vönduðu kynningar- og markaðsstarfi.

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á Listahátíð í Reykjavík. MIR26040005

    Lára Sóley Jóhannsdóttir stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  3. Lagt fram trúnaðarmerkt minnisblað skrifstofustjóra menningarborgar dags. 17. apríl 2026 um borgarlistamann Reykjavíkur 2026. MIR26040006

    Frestað.

    - kl. 10:03 víkur Jóna Hlíf Halldórsdóttir af fundinum.

  4. Lagt fram skilabréf spretthóps, dags. 17. apríl 2026, um að breyta notkun á reglum Frístundakortsins ásamt drög að skýrslu, ódags., um tillögur til að efla þátttöku barna og ungmenna í frístundastarfi. MSS26020075

    Borgarfulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Rannsóknir sýna að þátttaka barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi er einn af verndandi þáttum gegn áhættuhegðun, hefur mikið forvarnargildi og er ein besta leiðin til samfélagslegrar inngildingar barna í nærsamfélagið. Núverandi reglur frístundakortsins heimila ekki notkun í námskeið styttri en 8 vikur m.a. vegna þess að rannsóknir sýna að ástundun til lengri tíma eykur líkur á samfellu og félagslegri tenginu við hópinn. Þar sem fimmtungur barna í borginni nýtir ekki frístundastyrkinn þarf að vinna með þennan hóp sérstaklega, skima fyrir hvort það sé vegna fjárhagslegra, félagslegra eða menningarlegra ástæðna að styrkurinn sé ekki nýttur. Í ljósi þessa leggur hópurinn til að heimila undanþágu á reglum frístundakortsins einungs fyrir börn í viðkvæmri stöðu og þeim gefist kostur á að nýta styrkinn í styttri námskeið í þeirri von að þau haldi síðan áfram að nýta frístundastyrkinn inn í skipulagt frístundastarf þar sem þau ná að festa rætur og tilheyra hópi jafnaldra sinna. Vilja samstarfsflokkarnir áretta mikilvægi vinnu við stöðumat verkefnisins til að halda utan um markmið þess, að fjölga börnum sem höllustum fæti standa og byggja brú yfir í skipulagt tómstundastarf.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram umsókn, dags. 13. apríl 2026, um viðurkenningu Toppstöðvarinnar sem þjóðarleikvangur í klifri. MIR26040004
    Frestað.

    - kl. 10:35 víkur Ingvar Sverrisson af fundinum.

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning um húsnæðismál sjálfstæðra sviðslista á höfuðborgarsvæðinu. MIR24110005

  7. Lögð fram áfangaskýrsla, dags. apríl 2026, um sóknaráætlun varðandi endurbætur á sundlaugum borgarinnar. MSS23120022

    Borgarfulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Sundlaugar borgarinnar eru einhverjir mikilvægustu innviðir samfélagsins og útnefning UNESCO skapar heilmikil sóknarfæri til frekari uppbyggingar og vaxtar. Starfshópur sviðsins leggur til að ráðist verði í ítarlegt ástandsmat á sundlaugum borgarinnar og á grundvelli hennar verði lögð fram ítarleg áætlun um endurbætur og uppbyggingu. Á þessu ári verður um 270 m. kr varið í reglulegt viðhald lauganna og er brýnt að setja viðameiri endurbætur á Laugardalslaug og Sundhöll í fyrsta forgang. Ánægjulegt er að aðsókn í sundlaugar borgarinnar hefur aukist um rúmlega 30% undanfarinn áratug og sóknarfærin eru fjölmörg varðandi kynningar og markaðssetningu og undirbúning nýrrar sundlaugar. Þar er sérstaklega áhugavert að horfa til nýrrar sundlaugar í hinni nýju Höfðabyggð þar sem stefnt er að 20 þúsund manna byggð. Staðsetning sundlaugar á Höfðanum við Elliðaárvog biði upp á marga möguleika varðandi tengingu við útivist og blómlega náttúru.

    Fylgigögn

  8. Lögð fram lokaskýrsla starfshóps, dags. apríl 2026, um þátttöku fatlaðra barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi í Reykjavík. MIR25010006

    Frestað.

    Fylgigögn

  9. Fram fer kynning starfshóps um Austurheiðar. MIR25100010

    Samþykkt að vísa til sviðsstjóra til gerðar kostnaðarmats og áætlunar um forgangsröðun.

    Borgarfulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Starfshópur um málefni Austurheiða hefur skilað afar góðri vinnu sem gaman verður að sjá leidda til lykta. Um er að ræða eitt stærsta og mikilvægasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og ljóst að notkun þess mun aðeins aukast á næstu árum og áratugum. Brýnt er að tryggja innviði í samræmi við það, bæði til að draga úr átroðningi og til að bæta upplifun notenda.Samstarfsflokkarnir telja mjög mikilvægt að standa vörð um Austurheiðar sem eitt stærsta og verðmætasta útivistarsvæði Reykjavíkinga. Framtíðarsýn svæðisins endurspeglar skýra stefnu um að efla lýðheilsu, tryggja jöfn tækifæri til útiveru og hreyfingar og vernda náttúru- og útivistargildi til langs tíma. Aðgengileg og samfelld útivistarsvæði við borgarmörkin eru lykilatriði í uppbyggingu heilsueflandi borgar fyrir fjölbreytta hópa íbúa, auka lífsgæði okkar allra. Skipulögð uppbygging Austurheiða, í sátt við náttúru og með skýra forgangsröðun útivistar, er því bæði lýðheilsu- og jafnræðismál. Samstarfsflokkarnir telja mikilvægt að áfram verði byggt á fyrirliggjandi rammaskipulagi og að unnið sé að skýrri framtíðarsýn til langs tíma með áherslu á vernd verðmætra vistkerfa, aðgengi fyrir ólíka notendahópa og skýra aðgreiningu útivistar, umferðar og annarrar landnotkunar. Lagt er til að tillögunum verði vísað til sviðsstjóra sem láti vinna kostnaðarmat og tímasetta áætlun um forgangsröðun þeirra.

Fundi slitið kl. 11:23.

Skúli Helgason Aðalsteinn Haukur Sverrisson

Birna Hafstein Friðjón R. Friðjónsson

Sara Björg Sigurðardóttir Stefán Pálsson

Tinna Helgadóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningar- og íþróttaráðs frá 21. apríl 2026