Forsætisnefnd - Fundur nr. 376

Forsætisnefnd

Ár 2026, föstudaginn 24. apríl, var haldinn 376. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:00. Viðstaddar voru Sanna Magdalena Mörtudóttir, Helga Þórðardóttir og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Eftirtalinn áheyrnarfulltrúi tók sæti á fundinum: Marta Guðjónsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar og áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Sabine Leskopf og Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 28. apríl 2026.
    -    Kl.10:06 tekur Þorvaldur Daníelsson sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði.
    -    Kl.10:07 tekur Alexandra Briem sæti á fundinum. MSS26010032

  2. Lögð fram stafræn stefna Reykjavíkurborgar, sbr. 1. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 21. apríl 2026 og 35. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. apríl.
    Vísað til síðari umræðu í borgarstjórn. ÞON24090056

    Fylgigögn

  3. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða um að fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna fái áheyrnarrétt í fleiri fagráðum sbr. 6. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 13. mars 2026 og 5. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 10. febrúar 2026.
    Frestað. MSS26020042

  4. Fram fer yfirferð á reglum um biðlaun og starfslok borgarfulltrúa. MSS23010278

  5. Fram fer umræða um fjárframlög til stjórnmálasamtaka – fyrri hluti árs 2026. MSS22060123

Fundi slitið kl. 11:21

Sanna Magdalena Mörtudottir Helga Þórðardóttir

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Þorvaldur Daníelsson

Sabine Leskopf

PDF útgáfa fundargerðar
Forsætisnefnd 24.04.2026 - Prentvæn útgáfa