Skóla- og frístundaráð
Ár 2026, 27. apríl, var haldinn 312. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 14.16.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Helga Þórðardóttir formaður (F), Árelía Eydís Guðmundsdóttir (B), Ellen Jacqueline Calmon (S), Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir (C) og Sabine Leskopf (S). Eftirtaldir fulltrúar taka sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Birna Hafstein (D) og Tinna Helgadóttir (P). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Andrea Sigurjónsdóttir, starfsfólk í leikskólum; Anna Laufey Stefánsdóttir, foreldrar barna í leikskólum; Guðjóna Eygló Friðriksdóttir, skólastjórar í grunnskólum; Ragnheiður Andrésdóttir, Reykjavíkurráð ungmenna og Kristín Björnsdóttir, kennarar í grunnskólum. Eftirtalinn áheyrnarfulltrúi tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti: Guðrún Kaldal, framkvæmdastjórar frístundamiðstöðva. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Frans Páll Sigurðsson, Guðrún Sigtryggsdóttir, Ólafur Brynjar Bjarkason, Sigrún Sveinbjörnsdóttir og Eygló Traustadóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna, dags. 8. apríl 2026.
Lagt er til að fela skóla- og frístundasviði, í samstarfi við þjónustu- og nýsköpunarsvið, að innleiða stafræn skóla- og frístundadagatöl fyrir leik- og grunnskóla, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar Reykjavíkur. Með lausninni verða helstu viðburðir ársins birtir í stafrænu dagatali sem notendur; foreldrar, nemendur og starfsfólk geta gerst áskrifendur að og tengt við sín persónulegu dagatöl. Byrjað verði á grunnskólum og verði svo innleitt í leikskólum og frístundastarfi í framhaldi.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. SFS26040030
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Stafræn skóla- og frístundadagatöl eru enn eitt skrefið í að gera daglegt líf reykvískra fjölskyldna einfaldara og bæta þjónustu borgarinnar með notendamiðuðum stafrænum lausnum. Foreldrar, nemendur og starfsfólk fá samræmt aðgengi að upplýsingum um frídaga, starfsdaga, bekkjarkvöld, verkefnaskil og aðra mikilvæga viðburði, beint í sín eigin persónulegu dagatöl. Allar breytingar uppfærast sjálfkrafa og enginn þarf lengur að pikka inn dagsetningar af PDF-skjölum. Reynsla nágrannasveitarfélaga okkar sýnir að unnt er að innleiða slíka lausn á tiltölulega skömmum tíma og við höfum þegar góða fyrirmynd innan borgarinnar hjá nokkrum skólum og í stafræna sorphirðudagatalinu sem þjónar borgarbúum vel. Tillagan styður menntastefnu Reykjavíkur til 2030 og samstarfsyfirlýsingu meirihlutans um stafræna umbreytingu og bætta upplýsingagjöf. Hún dregur úr handvirkum ferlum, eykur aðgengi og styrkir stafræna hæfni notenda. Við leggjum áherslu á að innleiðingu fylgi vandaðar leiðbeiningar og kynning svo lausnin nýtist öllum fjölskyldum, óháð tæknikunnáttu.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Virkilega ánægjulegt er að sjá að horft sé til starfrænna lausna við miðlun upplýsinga við frístundastarf í borginni. Vert er þó að hafa í huga að ólíkar leiðir geta hentað ólíkum hópum og því mikilvægt að ákvörðun styðji við þá leið sem talin er best á hverjum stað fyrir sig, án þess að krefjast þess að ein miðlæg leið sé alltaf farin.
Kl. 14.25 tekur Guðrún Gunnarsdóttir sæti á fundinum.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 17. mars 2026:
Lagt er til að frá og með hausti 2026 verði opnuð ný starfseining Klettaskóla í fyrrum Korpuskóla fyrir fatlaða nemendur. Horft verði til að starfsemin verði þar til næstu 15 ára og verði þá endurskoðuð með tilliti til almennrar íbúðauppbyggingar á svæðinu í norðanverðum Grafarvogi. Lagt er til að börn í 1. – 6. bekk verði í Klettaskóla og börn í 7. – 10. bekk fari í nýja starfsstöð Klettaskóla í fyrrum húsnæði Korpuskóla. Frístundaþjónusta Guluhlíðar þjónusti börn í 1. – 3. bekk, Hekla börn í 4. – 6. bekk og Askja börn í 7. – 10. bekk. Lagt er til að myndað verði nýtt stjórnendateymi skóla- og frístundastarfs frá sumri 2026 svo tryggja megi farsæla opnun hinnar nýju starfseiningar. Teymið vinni náið með núverandi stjórnendateymi Klettaskóla og frístundastarfsins að skiptingu nemendahóps, mannauðs og tryggi gott og farsælt samstarf við foreldra.
Greinargerð fylgir.
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 22. apríl 2026 ásamt greiningu á starfsemi Klettaskóla, Guluhlíðar, Heklu og Öskju, dags. í ágúst 2022, skýrslu starfshóps um framtíðarstarf skóla- og frístundastarfs í Klettaskóla, Guluhlíð, Heklu og Öskju, ódags., samantekt umsagna um framtíðarstarf skóla- og frístundastarfs í Klettaskóla, Guluhlíð, Heklu og Öskju, dags. í desember 2023 og yfirlýsingu skólaráðs Klettaskóla, dags. 24. mars 2026.:
Lagt er til að frá og með hausti 2026 verði opnuð ný starfseining Klettaskóla í fyrrum Korpuskóla fyrir fatlaða nemendur. Horft verði til þess að starfsemin verði þar til næstu 15 ára og verði þá endurskoðuð með tilliti til almennrar íbúðauppbyggingar á svæðinu í norðanverðum Grafarvogi. Lagt er til að börn í 1. – 6. bekk verði í Klettaskóla og börn í 7. – 10. bekk fari í nýja starfsstöð Klettaskóla í fyrrum húsnæði Korpuskóla. Frístundaþjónusta Guluhlíðar þjónusti börn í 1. – 3. bekk, Hekla börn í 4. – 6. bekk og Askja börn í 7. – 10. bekk. Fyrsta skólaárið verður 7. bekkurinn þó áfram í Klettaskóla og Heklu vegna fjölda nemenda í 10. bekk. Gulahlíð þjónusti 1. - 4. bekk, Hekla börn í 5. - 7. bekk og Askja 8. - 10. bekk. Frá hausti 2027 fer 7. bekkurinn í Korpuskóla og Öskju. Ráðgert er að starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Öskju flytjist í Korpuskóla og verði fyrir nemendur í 8.–10. bekk. Samhliða þessum breytingum mun starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Heklu fyrir börn í 5.-7. bekk flytjast úr Þorragötu yfir í Klettaskóla. Aðstaða frístundaheimilisins Guluhlíðar fyrir 1.-4. bekk verði enn um sinn á sama stað og áður (í Vesturhlíð 3) en færist síðar inn í Klettaskóla. Lagt er til að myndað verði nýtt stjórnendateymi skóla- og frístundastarfs í Korpuskóla frá sumri 2026 svo tryggja megi farsæla opnun hinnar nýju starfseiningar. Teymið vinni náið með núverandi stjórnendateymi Klettaskóla og frístundastarfsins að skiptingu nemendahóps og mannauðs og tryggi gott og farsælt samstarf við foreldra. Viðbótar rekstrarkostnaður vegna nýrrar starfstöðvar Klettaskóla í Korpuskóla er samtals um 139 milljónir króna. Um helmingur þeirrar fjárhæðar myndi koma til á árinu 2026. Viðbótarkostnaður rúmast ekki innan núverandi fjárhagsramma SFS.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt.
Tillagan er samþykkt svo breytt. Vísað til borgarráðs. SFS26020032
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar samstarfsflokkanna þakka skólaráði Klettaskóla hjartanlega fyrir þann einhuga stuðning sem það hefur sýnt við þessi áform um að nýta húsnæði Korpuskóla undir starfsemi unglingadeildar Klettaskóla sem inniber að 8. - 10. bekkur Klettaskóla verða fluttir í Korpuskóla. Með þessum breytingum er verið að draga úr óvissu og framtíðin verður björt fyrir þennan viðkvæma hóp barna.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Viðreisnar fagnar þeim stóra áfanga sem þessi breyting mun hafa á menntaumhverfi fatlaðra barna. Virkilega ánægjulegt að sjá húsnæðið sem hefur fjölmarga kosti. Einnig gleðilegt að sjá að horft sé til þess að frístundastarf sé virkt fyrir ólíka aldurshópa í ólíkum rýmum. Þykir fulltrúanum þó vanta að horft sé til þess við samninga að íþróttahúsnæði skólanna séu nýtt utan almenns opnunartíma fyrir þá íþróttaiðkun sem er í boði fyrir hópinn, en töluverður húsnæðisvandi er í þeim flokki og mætti vel setja upp samning um nýtingu þessa tveggja íþróttahúsa sem skólunum tengjast og þannig stuðla að aukinni íþróttaiðkun fatlaðra barna í borginni en tölur um íþróttaiðkun hópsins eru sláandi lágar.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Framsóknar fagnar því að opnuð verði ný starfseining í fyrrum Korpuskóla. Mikilvægum áfanga er hér náð. Huga þarf að framtíðarlausn á höfuðborgarsvæðinu fyrir þennan nemendahóp. Í samhengi við að meta framtíðarþörf skólaumhverfisins í Grafarvogi. Fulltrúi Framsóknar tekur undir mikilvægi þess að íþróttastarf meðal fatlaðra ungmenna sé eflt.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 17. apríl 2026, ásamt bréfi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 18. desember 2025 og skýrslu um tillögur stýrihóps um forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi barna og ungmenna, dags. 17. nóvember 2025:
Lagt er til að skóla- og frístundaráð samþykki eftirtaldar sex tillögur frá stýrihópi, í skýrslu dags. 17. nóvember 2025, um forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi barna og ungmenna: 1.1: Börn í viðkvæmri stöðu á leikskóla; 1.3.C: Innleiðing leiðsagnarnáms í alla grunnskóla í Reykjavík; 1.7: Nýsköpun í foreldrasamstarfi meðal foreldra og barna í fjórða bekk; 1.8: Efla félags- og tilfinningafærni í öllu starfi með börnum og ungmennum; 2.1: Sértækt hópastarf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára í viðkvæmri stöðu og 2.4: Innleiða áfram tengsla- og áfallamiðaða nálgun með börnum og ungmennum. Lagt er að tillaga 2.3 um stuðningsteymi vegna barna á flótta með mikla áfallasögu verði samþykkt með þeirri breytingu að stuðningsteymi verði sett saman af starfsfólki sem þegar starfar hjá Reykjavíkurborg. Lagt er til að tillaga 1.3.B. um námskeiðið „Strákar spjalla“ í grunnskólum verði skoðuð í samhengi við afgreiðslu velferðarráðs á tillögu 1.3.A um þjálfun starfsfólks og markmið fræðslu fyrir námskeiðið „Strákar spjalla“ og jafnframt verði kostnaður skóla- og frístundasviðs vegna verkefnisins metinn og vísað til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027. Lagt er til að tillögu 1.2 um stuðning við Hinsegin félagsmiðstöð verði vísað til skoðunar við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027 og jafnframt taki borgarstjóri upp viðræður við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og mennta- og barnamálaráðuneytið um sameiginlega fjármögnun verkefnisins. Lagt er til að tillögu 1.4 um stuðning við foreldra leikskólabarna verði vísað til skoðunar við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs. MSS25020124
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Ofbeldi meðal og gagnvart börnum og ungmennum er ein af alvarlegustu áskorunum samtímans og kallar á skýr, samræmd og markviss viðbrögð af okkar hálfu. Fulltrúar samstarfsflokkanna fylgja hér eftir tillögum stýrihóps um forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi barna og ungmenna, sem byggðu á ítarlegri greiningu, víðtæku samráði og mati á stöðu mála. Þessi nálgun snýr að forvörnum, snemmtækri íhlutun og hröðum viðbrögðum þegar vandi kemur upp. Tillögurnar sem samþykkt er að setja í framkvæmd núna styðja við farsæld barna og Betri borg fyrir börn. Jafnframt er lögð áhersla á að efla félags- og tilfinningafærni barna snemma, styrkja kynfræðslu og fræðslu um ofbeldi og verndandi þætti, í nánu samstarfi við foreldra. Sérstakt fagnaðarefni er tillaga um sértækt hópastarf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára í viðkvæmri stöðu og mun starfið fara fram í þeim fimm félagsmiðstöðvum þar sem þörfin er mest. Með þessari ákvörðun í dag er tillögum fylgt eftir af festu, þannig að þær leiði til raunverulegra og varanlegra umbóta.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Framsóknar lýsir yfir ánægju með að verk stýrihóps um forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi barna og ungmenna. Mikilvægasta samfélagsverkefni okkar er að börnin okkar séu örugg og geti um frjálst höfuð strokið í skólastarfinu öllu. Fulltrúi Framsóknar vill einnig benda á að nauðsynlegt er að vinna að forvörnum gegn ofbeldi gagnvart kennurum.
Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva leggur fram svohljóðandi bókun:
Tillögurnar eru vel unnar og aðgerðir skýrar. Framkvæmdastjóri fagnar því að sett verði áhersla á að innleiða þær og setja í framkvæmd.
Áheyrnarfulltrúi kennara í grunnskólum leggur fram svohljóðandi bókun:
Það er virkilega jákvætt að unnið sé að forvörnum og aðgerðum varðandi ofbeldi barna og ungmenna en sumt í skýrslunni kannast margir kennarar við að sé nú þegar í gangi í skólunum, t.d. leiðsagnarnám. Kennarar kalla hins vegar eftir skýrum verkferlum og viðbrögðum við ofbeldi. Verkferlum og viðbrögðum sem veita bæði nemendum og kennurum öryggi í skólanum. Slíkt er forvörn í sjálfu sér. Einnig þarf að skýra umtalsvert utanumhald um þriðja stigs mál. Ofbeldismál koma daglega upp í grunnskólum borgarinnar og afar mikilvægt að starfsfólk sé þjálfað í réttum viðbrögðum og líkamlegu inngripi sé þörf á því.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 17. apríl 2026, þar sem óskað er eftir tillögum til tilnefninga Íslensku menntaverðlaunanna 2026. MSS26040054
Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 16. apríl 2026, vegna svars við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur um fjölda kennslustunda sem falla niður vegna forfalla kennara, sbr. 14. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 9. mars 2026. SFS26030060
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 20. apríl 2026, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa leikskólastjóra um samanburð á starfsaðstæðum í leikskólum, sbr. 11. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 23. febrúar 2026. SFS26020125
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 22. apríl 2026, um embættisafgreiðslur sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, tvö mál. SFS22080009
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS24080154
Fundi slitið kl. 15:15
Helga Þórðardóttir Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Birna Hafstein Ellen Jacqueline Calmon
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Sabine Leskopf
Tinna Helgadóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 27. apríl 2026