16297 Þjónusta við hitakerfi í götum og gangstéttum Reykjavíkurborgar, rammasamningur

Óskað er eftir tilboðum í Rammasamning um þjónustu við hitakerfi í götum og gangstéttum Reykjavíkurborgar, EES útboð nr. 16297

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í tímaverð og einingarverð vegna tilfallandi vinnu pípulagningamanna á hitakerfum í götum og gangstéttum Reykjavíkurborgar. 

Verkefnið felst m.a. í bilanaleit, bilanavakt, reglubundnu eftirliti og viðgerðum á hitakerfum,  þ.e. hitalögnum og stýringum í götum og gangstéttum hjá Reykjavíkurborg. Útboðið tekur ekki til stærri nýframkvæmda á hitakerfum sem boðnar verða út sérstaklega.Um er að ræða almennt útboð á rammasamningi þar sem fyrirtæki sem eru með tilskilinn réttindi til að sinna þeim verkefnum sem lýst eru í útboði þessu, geta lagt fram tilboð. 

Hámark samanlagðra viðskipta á grundvelli þessa samnings er kr. 200.645.100- með virðisaukaskatti (vsk), miðað við fjögurra ára samning þ.e eins árs samningur ásamt þrisvar sinnum eins árs framlengingu

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is frá kl. 15:00 þann 21. apríl 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, þann 21. maí 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2026