Velferðarráð
Ár 2026, miðvikudagur 22. apríl var haldinn 532. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:02 í Tindstöðum, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Helga Þórðardóttir, Sara Björg Sigurðardóttir og Þorvaldur Daníelsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Birna Hafstein, Magnús Davíð Norðdahl og Sandra Hlíf Ocares. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Dís Sigurgeirsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 21. apríl 2026, um samþykkt stefnu í málaflokki fatlaðs fólks, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að velferðarráð samþykki drög að stefnu Reykjavíkurborgar í málaflokki fullorðins fatlaðs fólks. Stefnan mun taka við af stefnu borgarinnar um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum 2014-2024. Stefnan varðar fullorðið fatlað fólk og þjónustu sem veitt er af velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Stefnan tekur mið af velferðarstefnu borgarinnar, lögum, reglugerðum, alþjóðlegum skuldbindingum og regluverki borgarinnar. Jafnframt er lagt til að velferðarsviði verði falið að vinna tímasetta og kostnaðarmetna aðgerðaráætlun á grundvelli þeirra áherslna og aðgerða sem fram koma í stefnunni.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL25090041.
Velferðarráð leggur fram málsmeðferðartillögu þess efnis að skilið verði á milli stefnu í málaflokki fatlaðs fólks og aðgerðaskjals með stefnunni og að um tvær tillögur verði að ræða.
Samþykkt.Gengið er til atkvæða um svo breytta tillögu um stefnu í málaflokki fatlaðs fólks:
Lagt er til að velferðarráð samþykki drög að stefnu Reykjavíkurborgar í málaflokki fullorðins fatlaðs fólks. Stefnan mun taka við af stefnu borgarinnar um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum 2014-2024. Stefnan varðar fullorðið fatlað fólk og þjónustu sem veitt er af velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Stefnan tekur mið af velferðarstefnu borgarinnar, lögum, reglugerðum, alþjóðlegum skuldbindingum og regluverki borgarinnar.
Greinagerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.Gengið er til atkvæða um svohljóðandi tillögu um aðgerðaskjal með stefnu í málaflokki fatlaðs fólks:
Lagt er til að velferðarsviði verði falið að vinna tímasetta og kostnaðarmetna aðgerðaráætlun á grundvelli þeirra áherslna og aðgerða sem fram koma aðgerðarskjali með stefnu.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu tillögunnar.Katrín Harpa Ásgeirsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu málefna fatlaðs fólks, og Arne Friðrik Karlsson, verkefnastjóri á skrifstofu málefna fatlaðs fólks, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 13:55 víkur Magnús Davíð Norðdahl af fundinum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins harma að ekki skuli liggja fyrir kostnaðarmetin aðgerðaáætlun. Svo sannarlega er þörf á því að Reykjavíkurborg hafi skarpa sýn í málefnum fatlaðs fólks og að skýrt sé í hvaða aðgerðir borgin ætlar að fara í sinni þjónustu við fatlað fólk. Því er gríðarlega mikilvægt að kostnaðarmat fylgi aðgerðaáætlun þannig að hægt sé að gera ráð fyrir þeim í fjárhagsáætlun og hægt sé að forgangsraða aðgerðum. Óábyrgt er að leggja fram ófjármagnaða aðgerðaáætlun og gefa fólki falskar vonir, því auðvitað er það algjörlega ljóst að ekkert fer í framkvæmd sem ekki er fjármagnað. Einnig má benda á að í erindisbréfi stýrihóps var verkefni hópsins að kostnaðarmeta aðgerðaáætlun, því hefði verið betra að unnið hefði verið í samræmi við erindisbréfið. Fulltrúarnir styðja stefnuna en viðra réttmætar áhyggjur hvað varðar fjármögnunarhlutann á aðgerðaáætlun og mikilvægt er að aðgerðaáætlun með kostnaðarmati sé lögð fyrir velferðarráð einu sinni á ári til samþykktar þannig að velferðarráð geti tekið afstöðu til forgangsröðunar aðgerða.
Fundi slitið kl. 14:01
Sanna Magdalena Mörtudottir Birna Hafstein
Sara Björg Sigurðardóttir Sandra Hlíf Ocares
Þorvaldur Daníelsson Helga Þórðardóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð velferðarráðs 22.04.2026 - Prentvæn útgáfa