Menntabúðir Mixtúru haldnar í Sögu
Mixtúra, sköpunar- og upplýsingatækniver skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur og Menntavísindasvið Háskóla Íslands, hélt árlegar Menntabúðir í gær, þann 20. apríl. Að þessu sinni var viðburðurinn haldinn í nýju húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í Sögu.
Menntabúðir eru óformlegur vettvangur fyrir starfsfólk í leik-, grunn- og framhaldsskólum og frístundastarfi þar sem miðlað er hugmyndum, reynslu og verkefnum og fjallað um fjölbreyttar nálganir í námi og kennslu.
Fjölbreytt dagskrá
Á Menntabúðunum í ár voru kynnt fjölmörg verkefni sem tengjast læsi, sköpun, tækni og kennsluháttum. Meðal kynninga voru verkefni um gervigreind í leikskólastarfi, leikjavæðingu lesturs, hlaðvarpsgerð í grunnskóla, læsi á íslensku táknmáli, samspil útináms og ritunar, fjölbreytta náttúruvísindakennslu í unglingadeild og menntun í stafrænni borgaravitund. Einnig var fjallað um alþjóðlega vélmennakeppni og notkun þrívíddartækni í skólastarfi.
Allar kynningar fóru fram í opnu rými þar sem gestir gátu kynnt sér verkefnin, átt samtöl við kynningaraðila og aflað sér upplýsinga um fjölbreytt starf í skóla- og frístundastarfi.
Menntabúðir Mixtúru eru haldnar árlega og miða að því að styrkja þekkingarmiðlun, samstarf og þróun í menntastarfi í Reykjavík.