Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 184

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2026, fimmtudaginn 16. apríl var haldinn 184. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Viðstödd var Andrea Jóhanna Helgadóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, Birna Hafstein og Stefán Pálsson. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Þórður Guðmundsson starfsmaður borgarlögmanns. Fundarritari var Hallgrímur Tómasson.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK25100107 dags. 15. apríl 2026 varðandi EES útboð 16218 Rammasamningur um húsasmiðameistara og aðalverktöku, þar sem lagt er til að samið verði við öll 34 hæf fyrirtæki í báðum hlutum, þ.e. hluta 1 Húsasmíði og hluta 2 Aðalverktaka.

    Samþykkt.

    Margrét Lilja Gunnarsdóttir, Halla Björg Evans og Björn Atli Davíðsson tóku sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  2. Lagt  fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK250504420 dags. 9. apríl 2026 varðandi útboð 16246 Naustin (Tryggvagata – Hafnarstræti) – Gatnagerð og lagnir, þar sem lagt er til að gengið verði að lægsta gilda tilboði frá Lóðaþjónustunni ehf.

    Samþykkt.

    Rúnar Gísli Valdimarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26040039 dags. 7. apríl 2026 varðandi útboð16277 Austurbæjarskóli – Endurgerð lóðar 2026, 1. áfangi  , þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Vogakletts ehf.

    Samþykkt.

    Rúnar Gísli Valdimarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  4. Lagt  fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26020293 dags. 7. apríl 2026 varðandi útboð 16269 Leikskólinn Jörfi – kennslustofur, hönnun, smíði og lóðarfrágangur, þar sem lagt er til að gengið verði að lægsta gilda tilboði frá Terra einingar ehf.

    Samþykkt.

    Gréta Þórsdóttir Björnsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  5. Lagt  fram til kynningar erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK25040261 dags. 7. apríl 2026 varðandi útboð VEV-2026-01 Drápuhlíð-Langahlíð – Endurgerð gatna og endurnýjun lagna. Um er að ræða samstarfsverkefni með Veitum ohf. þar sem tekið var lægsta gilda tilboði frá Jarðval sf. 

    Rúnar Gísli Valdimarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  6. Lagt  fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs dags. 7. apríl 2026 vegna  örútboð nr. 16273 – Leiga á bifreiðum fyrir USK. Lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda AKA ehf.

    Samþykkt.

    Björn Ingvarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  7. Lagt  fram erindi velferðarsviðs dags. 15. apríl 2026 vegna EES útboðs nr. 16278 – Framleiðsla máltíða fyrir velferðarsvið, þar sem lagt er til að gengið verði að lægsta gilda tilboði frá Krydd og kavíar ehf.

    Samþykkt.

    Þórhildur Guðrún Egilsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram erindi menningar- og íþróttasviðs dags. 9. apríl 2026 vegna EES útboðs nr. 16229- Rammasamningur um vinnuföt fyrir MÍR, þar sem lagt er til að gengið verði að öllum gildum tilboðum sem voru 7 talsins.

    Samþykkt.

    Jóhanna Garðarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  9. Lagðar fram til samþykktar tillögur stýrihóps um endurskoðun innkaupastefnu og  innkaupareglna merktar MSS25070013 dags. 13. apríl 2026.

    Samþykkt.
    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Halla Björg Evans tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  10. Lagður  fram úrskurður kærunefndar útboðsmála frá 12. mars 2025 í máli nr. 41/2025.

Fundi slitið kl. 14:20

Birna Hafstein Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns

Andrea Helgadóttir Árelía Eydís Guðmundsdóttir

Stefán Pálsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs 16. apríl 2026 - Prentvæn útgáfa