Mannréttindaráð - Fundur nr. 32

Mannréttindaráð

Ár 2026, fimmtudaginn 16. apríl var haldinn 32. fundur mannréttindaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi, Borgarráði og hófst kl. 13.05. Fundinn sátu eftirfarandi fulltrúar: Sabine Leskopf, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Birkir Ingibjartsson, Magnús Davíð Norðdahl, og Þorkell Sigurlaugsson. Einnig sátu fundinn eftirtaldir fulltrúar öldungaráðs: Eva Kristín Hreinsdóttir, Jóhann Birgisson, Sigurður Ágúst Sigurðsson og Viðar Eggertsson. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar ofbeldisvarna tóku sæti á fundinum: Drífa Snædal og Linda Dröfn Gunnarsdóttir. I. Jenný Ingudóttir og Ásmundur Rúnar Gylfason með rafrænum hætti. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir og Þorvaldur Daníelsson. Einnig sat fundinn eftirfarandi starfsfólk: Anna Kristinsdóttir og Halldóra Dýrl. Gunnarsdóttir. Þórhildur Guðrún Egilsdóttir með rafrænum hætti. Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Samþykkt að taka á dagskrá til framlagningar bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 15. apríl 2026, um að á fundi borgarstjórnar þann 14. apríl sl., var samþykkt að Birkir Ingibjartsson taki sæti í mannréttindaráði í stað Guðnýjar Maju Riba. Jafnframt að Alondra Veronica V. Silva Muñoz verði varamaður í stað Ólafar Helgu Jakobsdóttur. MSS25020083

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf velferðarsviðs dags. 13. apríl 2026, um miðlun upplýsingaefnis til eldra fólks um ofbeldi og netsvik. VEL26040036

    Unnar Þór Bjarnason tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 13.40 víkur Þórhildur Guðrún Egilsdóttir af fundinum.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf mannréttindaskrifstofu dags. 13. apríl 2026, um upplýsingaefni á vef Reykjavíkurborgar um eldra fólk og ofbeldi sbr. aðgerð 33. í aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar gegn ofbeldi 2025 -2028. MSS24060082

    Unnar Þór Bjarnason tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 14.00 víkja af fundinum eftirtaldir fulltrúar öldungaráðs: Eva Kristín Hreinsdóttir, Jóhann Birgisson, Sigurður Ágúst Sigurðsson og Viðar Eggertsson. 

    Fylgigögn

  4. Fram fer kynning velferðarsviðs á Púlsinum, bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna. VEL26020064

    Hulda Björk Finnsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 14.30 víkja af fundinum eftirtaldir áheyrnarfulltrúar ofbeldisvarnarmála: Drífa Snædal og Linda Dröfn Gunnarsdóttir. Ásmundur Rúnar Gylfason og I. Jenný Ingudóttir aftengjast fundarbúnaði. Jafnframt víkur eftirfarandi starfsmaður: Halldóra Dýrl. Gunnarsdóttir.

    -    Kl. 14.38 víkur Þorvaldur Daníelsson af fundinum og Magnea Gná Jóhannsdóttir tekur sæti á fundinum.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf mannréttindaskrifstofu dags. 13. apríl 2026, ásamt umsögn velferðarsviðs dags. 7. apríl 2026, um tillögur starfshóps um heimilisofbeldi og fólk með fjölþættan vanda sbr. aðgerð nr. 30 í aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar gegn ofbeldi 2025 - 2028. Þar sem óskað er eftir að tillögum sé vísað til meðferðar velferðarsviðs. MSS24060082 
    Samþykkt.

    Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mannréttindaráð samþykkir að vísa tillögum starfshópsins til meðferðar velferðarsviðs. Ráðið tekur undir mikilvægi þess að finna úrræði þar sem konur og kvár með fjölþættan vanda geti dvalið í þegar um ofbeldi er að ræða skv. fyrstu tillögu starfshóps um heimilisofbeldi og fólk með fjölþættan vanda og óskar eftir að upplýsingar verði kynntar fyrir mannréttindaráði þegar endanleg uppfærsla tillagna liggur fyrir.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf mannréttindaskrifstofu dags. 9. apríl 2026 um mat á stöðu innleiðingar barnasáttmála, sbr. samþykkt mannréttindaráðs frá 16. október 2025. MSS25090012

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands taka undir umsagnir skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs, að Reykjavíkurborg sé komin langt á veg við að innleiða Barnasáttmálann, þar sem unnið er eftir skilgreindu líkani í samstarfi við UNICEF í samræmi við samninginn frá 2024. Hér er markvisst unnið að því að tryggja börnum vernd, þátttöku og farsæld í samræmi við Barnasáttmálann og á þessum tímapunkti þarf að leggja aðaláherslu á áframhaldandi vinnu við samræmingu réttinda barna á öllum sviðum. Mannréttindaráðið styður samt sem áður að endurskoða reglulega hvort slíkt vottunarkerfi gæti stutt fyrirliggjandi verkefni borgarinnar enn frekar.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn harmar metnaðarleysi meirihlutans sem hafnar því að Reykjavíkurborg verði skilgreind sem barnvænt sveitarfélag. Verkefnið „barnvænt sveitarfélag“ snýst ekki um einfalda vottun, líkt og meirihlutinn virðist líta á, heldur felur það í sér markvissa innleiðingu Barnasáttmálans í alla stefnumótun og ákvarðanatöku borgarinnar. Um er að ræða grundvallarbreytingu á því hvernig forgangsröðun er háttað og hvernig réttindi barna eru tryggð í borgarkerfinu. Í verkefninu felst meðal annars aukið samráð við börn og ungmenni um málefni sem þau varða. Vert er að benda á að ekki var haft samráð við Reykjavíkurráð ungmenna áður en ákvörðun meirihlutans var tekin. Ákvarðanir sem teknar eru á vettvangi borgarinnar hafa víðtæk áhrif á líf barna, hvort sem um er að ræða skipulag hverfa, samgöngur, menntamál eða félagsþjónustu. Af þeim sökum er mikilvægt að „barnaréttindagleraugun“ séu ávallt uppi og aðkoma barna á ákvörðunartöku sé aukin. Hér hefði verið tækifæri fyrir borgarstjórn að standa saman að því að setja hagsmuni barna í fyrsta sæti. Það tækifæri var ekki nýtt.

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins tekur undir bókun fulltrúa Framsóknarflokksins.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 7. apríl 2026, um verklagsreglur um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar og beiðnir borgarfulltrúa um aðgang að gögnum. MSS23090170

    Fylgigögn

Fundi slitið kl.15.15

Sabine Leskopf Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir

Birkir Ingibjartsson Magnús Davíð Norðdahl

Magnea Gná Jóhannsdóttir Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir

Þorkell Sigurlaugsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð mannréttindaráðs frá 16. apríl 2026