Stafrænt ráð - Stafrænt ráð miðvikudaginn 15. apríl 2026 nr. 71

Stafrænt ráð

Ár 2026, 15. apríl, var haldinn 71. fundur stafræns ráðs. Fundurinn hófst rafrænt kl. 16:10. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Alexandra Briem, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, Sandra Hlíf Ocares og Skúli Helgason. Jafnframt eftirtalið starfsfólk þjónustu- og nýsköpunarsviðs: Óskar Sandholt og Eva Pandora Baldursdóttir. Sólveig Skaftadóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram stafræn stefna Reykjavíkurborgar. ÞON24090056.

    Lagt var til að stefnan væri samþykkt og vísað til borgarráðs. 

    - Kl. 16:13 tekur Þorkell Sigurlaugsson sæti á fundinum. 

    Samþykkt.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Á síðasta fundi stafræna ráðsins var ákveðið að fresta afgreiðslu stefnunnar vegna ábendinga sem fram komu á fundinum, nú er hún lögð aftur fram í sama formi og engar efnislegar breytingar gerðar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins telja að enn vanti inn í stefnuna skýrari mælikvarða, ábyrgð og framkvæmdaráætlun svo hún verði raunhæft stjórntæki en ekki aðeins almenn framtíðarsýn. Núverandi markmið, á borð við „framsækna þjónustu“ og „gagnadrifna ákvarðanatöku“, eru of óskýr til að hægt sé að meta árangur. Mikilvægt er að skilgreina mælanleg markmið og lykilmælikvarða við hvert verkefni. Einnig eru engar upplýsingar að finna um fjármögnun, kostnaðarmat eða forgangsröðun verkefna. Án þess er hætta á að stefnan verði ekki innleidd með markvissum hætti. Einnig vantar aðgerðaáætlun með stefnunni með ábyrgðaraðilum, tímaáætlun og fjármagni. Mikilvægt er  að ábyrgð á stafrænni umbreytingu verði dreifð á öll svið borgarinnar en ekki bundin eingöngu við þjónustu- og nýsköpunarsvið, skýra þarf ábyrgð með að fjárhagslegur ábati af verkefnum skili sér inná sviðin og að það sé unnið í samhengi og á sama tíma og fjárhagsáætlun. Fulltrúarnir geta ekki greitt atkvæði með stefnunni meðan aðgerðaráætlun liggur ekki fyrir og því óskýrt hvað er verið að leggja til samþykktar.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 16:29

Alexandra Briem Árelía Eydís Guðmundsdóttir

Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Sandra Hlíf Ocares

Skúli Helgason Þorkell Sigurlaugsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð stafrænt ráð 71