14 íslensk verkefni fá styrk úr Vestnorræna höfuðborgasjóðnum

Stjórn sjóðsins. Efri röð: Guttormur í Skála, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Kjartan Magnússon, Lone Rosengreen Pedersen, Nitta Lyberth Mørch.Í fremri röð:Elsa Berg, borgarstjóri Þórshafnar, Poul Petersen, varaborgarstjóri Nuuk og Heiða Björg borgarstjóri
Stjórn vestnorræna höfuðborgasjóðsins

Árlegur stjórnarfundur Vestnorræna höfuðborgasjóðsins fór fram föstudaginn 10. apríl í Ráðhúsi Nuuk í Grænlandi. Á fundinum var farið yfir styrkumsóknir í verkefni tengdum menningarmálum frá höfuðborgunum þremur.

Stjórnarmeðlimir í Vestnorræna höfuðborgasjóðnum eru borgarstjórar og borgarfulltrúar Nuuk, Tórshavn og Reykjavíkur en hlutverk sjóðsins er að styðja við menningarsamstarf milli borganna þriggja.

Árið 2023 var ákveðið innan stjórnarinnar að hækka þá heildarupphæð sem er til úthlutunar fyrir árin 2024 og 2025, en þá hafði safnast saman talsverður afgangur frá úthlutunum sem áttu sér stað á meðan heimsfaraldur gekk yfir. Hver borg hafði því úr 300 þúsund dönskum krónum að spila við úthlutanir sínar í ár, líkt og í fyrra.  

Heiða Björg borgarstjóri segir mikilvægt að viðhalda góðum tengslum milli vestnorrænu höfuðborganna og um leið styðja við menningarsamstarf borganna.

„Með þessum styrkjum erum við að rækta skapandi samtal yfir hafið og styrkja hið sameiginlega vestnorræna höfuðborgasamstarf. Þetta eru fjárfestingar í hugmyndum sem færa okkur nær hvort öðru og gera samfélög okkar ríkari. Menningin blómstrar þegar fólk tengist.“

Menningarborgin Reykjavík fór yfir umsóknir og voru umsagnir um þær lagðar fyrir stjórnarmeðlimi sjóðsins í Nuuk á Grænlandi. Ákveðið var að styrkja 14 verkefni en við ákvörðun stjórnar er m.a. metið hvort efni og umfang verkefna samrýmist reglum og markmiðum sjóðsins.  

Verkefnin eru:

  • Day in My Life-Voices from Reykjavík and Tórshavn - Átak, félag fólks með þroskahömlun
  • West Nordic Deaf Capital Cooperation at the Nordic Deaf Culture Festival - Félag Heyrnarlausra
  • Bókahátíðin í Hörpu / Reykjavik Book Fair - Félag íslenskra bókaútgefenda
  • Vestnorden Disc Golf, collaboration and founding of association - Frisbígolffélag Reykjavíkur
  • Ingi Bjarni Tríó - Bárður Reinert Poulsen
  • The possibilities of Public Art for Lifelong and Non Formal Education. - Listasafn Reykjavíkur
  • Stages - North Atlantic Islands Dance Network
  • Elsta land í heimi - Pétur Magnússon og Lóa Björk Björnsdóttir
  • Sex education for teenagers – Pörupiltar
  • Chess in schools - Róbert Lagerman
  • Living with Art - Private Art Collections in the Nordics - Sigurður Atli Sigurðsson
  • Can – Atlantica - Iceland Music/tónlistarmiðstöð
  • CRAZY-CHESS - Vinaskákfélagið
  • Vaka þjóðlistahátíð - Vökufélagið - Félag þjóðlistafólks

Reykjavíkurborg óskar styrkhöfum til hamingju og vill um leið þakka öllum þeim sem sóttu um styrk fyrir góðar og áhugaverðar umsóknir.