Stafrænt ráð
Ár 2026, 10. apríl, var haldinn 70. fundur stafræns ráðs. Fundurinn hófst í Hofi kl. 12:30. Eftirtalin voru komnir til fundar í fundarherberginu Kristinn Jón Ólafsson, Andrea Helgadóttir, Björn Gíslason, Einar Sveinbjörn Guðmundsson og Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Árelía Eydís Guðmundsdóttir, og Sandra Hlíf Ocares. Jafnframt eftirtalið starfsfólk þjónustu- og nýsköpunarsviðs: Óskar Sandholt og Agnes Guðjónsdóttir. Sólveig Skaftadóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 19. mars 2026, um kosningu í stafrænt ráð. MSS22060050.
Fylgigögn
-
Lagt fram að nýju bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 5. mars 2026 um tillögu fulltrúa Framsóknarflokksins um aðgengi að borgarstjórnarfundum á streymisveitum. MSS25050139. Lagt er til að ákvörðun sbr. 6. lið fundargerðar 69. fundar stafræns ráðs frá 11. mars 2026, um að vísa málinu til skrifstofu borgarstjórnar, verði afturkölluð og þess í stað verði málinu vísað til forsætisnefndar.
Samþykkt.
- Kl. 12:50 tekur Árelía Eydís Guðmundsdóttir sæti á fundinum.Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar minnihlutans lýsa yfir vonbrigðum með afgreiðslu þessarar tillögu. Komið er ár síðan tillaga var lögð fram og sá vandræðagangur sem felst í að finna henni farveg sýnir að skilvirkni er ábótavant hjá Reykjavíkurborg. Eðlilegra vinnulag væri að vinna tillögur fyrr eða innan eðlilegs tímaramma. Hér er freklega á það gengið. Ljóst er að ekki verður af þessum úrbótum á útfærslu á sýnileika borgarstjórnarfunda og er það miður.
Fylgigögn
-
Lögð fram stafræn stefna Reykjavíkurborgar. ÞON24090056.
FrestaðFylgigögn
-
Lögð fram aðgerðaráætlun lýðræðisstefnu 2026-2030..
Lagt er til að aðgerðaráætlun verð samþykkt til frekari útfærslu.
Samþykkt.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Dóra Björt Guðjónsdóttir, formaður stýrihóps, tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.. MSS24040172
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi Framsóknarflokksins telja jákvætt að íbúalýðræði sé eflt og samráð við hverfi borgarinnar. Hins vegar liggur ekki fyrir fullnægjandi kostnaðarmat á verkefninu, hvorki hvað varðar ráðningu hverfisleiðtoga, umfang framkvæmda né þann mannafla sem þarf til að halda utan um verkefnið þvert á svið borgarinnar. Í greinargerð kemur fram að ekki sé unnt að kostnaðarmeta Hverfalyftuna að svo stöddu þar sem enn eigi eftir að útfæra verkefnið nánar. Ekki er hægt að samþykkja jafn umfangsmikið verkefni án þess að ljóst sé hver heildarkostnaðurinn sé, forgangsröðun verkefna og hvaða fjármunir verði færðir úr núverandi verkefnum yfir í Hverfalyftuna. Eðlilegra væri að fyrir lægi ítarlegri útfærsla og kostnaðarmat áður en endanleg ákvörðun er tekin um innleiðingu verkefnisins.
Fylgigögn
-
Lögð fram umsögn þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 8. apríl 2026 um betri nýtingu á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar. MSS25040003.
- kl. 14:29 víkur Sandra Hlíf Ocares af fundi.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 14:30
Árelía Eydís Guðmundsdóttir Andrea Helgadóttir
Björn Gíslason Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns
Kristinn Jón Ólafsson Einar Sveinbjörn Guðmundsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð stafrænt ráð 70