Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa
Ár 2026, þriðjudaginn 8. apríl kl. 09:03, hélt skipulagsfulltrúi Reykjavíkur 1056. embættisafgreiðslufund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn á skrifstofu skipulagsfulltrúa Borgartúni 12-14, 3. hæð, Gjáin. Fundinn sátu: Brynjar Þór Jónasson og Hjördís Sóley Sigurðardóttir. Eftirtaldir starfsmenn kynntu mál á fundinum: Helga Rún Guðmundsdóttir, Hildur Inga Rós Guðmundsdóttir, Hildur Ýr Ottósdóttir, Óskar Örn Arnórsson, Ólafur Ingibergsson, Sigríður Maack, Sindri Þórhallsson og Valný Aðalsteinsdóttir. Fundarritari var Helena Stefánsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Borgarlína 1. lota - Suðurlandsbraut - Nýtt deiliskipulag - USK24090201
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir göturými Suðurlandsbrautar frá gatnamótum við Skeiðarvog og til vesturs að gatnamótum við Lágmúla. Tillagan er hluti af 1. lotu Borgarlínu og er í samræmi við markmið og stefnu landsskipulagsstefnu, svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins 2040, Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 og rammahluta Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 - Fyrsta lota Borgarlínu: Ártún - Fossvogsbrú. Samkvæmt tillögunni fer Borgarlínan um Suðurlandsbraut á tveimur miðjusettum sérakreinum (almenningssamgangna) og er gert ráð fyrir göngu- og hjólastígum beggja vegna göturýmisins og gróðri á svæðum inn á milli. Þrjár Borgarlínustöðvar verða á svæðinu, við Glæsibæ, Laugardalshöll og Lágmúla, samkvæmt uppdráttum Yrki arkitekta, dags. 28. nóvember 2025, uppf. 27. mars 2026, og greinargerð Yrki arkitekta, dags. 28. nóvember 2025, uppf. 27. mars 2026. Tillagan var auglýst frá 29. janúar 2026 til og með 12. mars 2026. Athugasemdir og umsagnir bárust. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. mars 2026 og er nú lagt fram að nýju ásamt minnisblaði Borgarlínunnar, dags. 16. október 2023, um vinstri beygjur við gatnamót Álfheima/Suðurlandsbrautar, samantekt Borgarlínunnar, dags. 31. mars 2026, um umferð á Suðurlandsbraut og bílastæðagreiningu VSB verkfræðistofu, dags. 2. apríl 2025 og samantekt, dags. 16. janúar 2026.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
-
Bústaðavegur við Efstaleiti - Nýtt deiliskipulag - USK26030076
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir hluta Bústaðavegar frá skipulagsmörkum Hverfisskipulags Hlíðarhverfis, Hlíðar 3.2, til vesturs að skipulagsmörkum Kringlubæjar II áfanga til norðurs og að afmörkun deiliskipulags Efstaleitis, RÚV reits, til austurs og til suðurs eru skipulagsmörk svæðisins afmörkuð sunnan við núverandi stígakerfi. Í tillögunni sem lögð er til felst að komið er fyrir nýrri biðstöð strætó sunnan megin við Bústaðaveg við Efstaleiti ásamt því að núverandi biðstöð norðan megin við Bústaðaveg verður hluti af þessu deiliskipulagi. Aðreinar sunnan megin við Bústaðaveg frá Kringlumýrarbraut eru framlengdar inn á Bústaðaveg fram að umferðarljósum við Efstaleiti og gerð er ný gönguþverun yfir Bústaðaveg við núverandi umferðarljós hjá Efstaleiti, samkvæmt uppdr. COWI, dags. 8. apríl 2026.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
-
Kringlubær II. áfangi - Breyting á deiliskipulagi - Breyting á skipulagsmörkum - USK26040036
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu deiliskipulagi II. áfanga Kringlubæjar. Í breytingunni sem lögð er til felst breyting á skipulagsmörkum til samræmis við skipulagsmörk Hverfisskipulags Hlíðahverfis, Hlíðar 3.2, sem staðfest var 11. júlí 2024 og tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Bústaðaveg við Efstaleiti, samkvæmt uppdr. COWI, dags. 8. apríl 2026.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
-
Thorsvegur 1 - USK25050334
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. mars 2026 þar sem sótt er um að byggja tveggja hæða stálgreindarhús fyrir skrifstofur, vélageymslu og lager, koma fyrir 6 bílastæðum og steinsteyptum jarðvegshólfum á skika 8, með aðkomu frá Thorsvegi á landi golfklúbbs Reykjavíkur við Korpúlfsstaði.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.
-
Barðavogur 30 - Gluggaskipti - USK25120346
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. mars 2026 þar sem tilkynnt er um framkvæmd þannig að komið er fyrir björgunaropum og gluggum breytt í einbýlishúsi á lóð nr. 30 við Barðavog. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. apríl 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 8. apríl 2026.
Fylgigögn
-
Einarsnes 42 - USK25110396
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. febrúar 2026 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum þar sem geymsla á baklóð hefur verið innréttuð sem íbúð á lóð nr. 42 við Einarsnes. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. apríl 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. apríl 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Vesturhöfn (Örfirisey) - Breyting á deiliskipulagi - Fiskislóð 27 - USK25100348
Lögð fram umsókn Reirs verks ehf., dags. 22. október 2025, um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðarinnar nr. 27 við Fiskislóð. Í breytingunni sem lögð er til felst hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar, hækkun á hámarkshæð bygginga og að heimilt verði að byggja allt að 5 hæðir innan byggingarreits og hæðartakmarkana, samkv. uppdr. Nordic Office of Architecture, dags. 28. janúar 2026. Einnig er lagt fram samgöngumat Eflu, dags. 5. febrúar 2026.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Komi til auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. gr. 7.5 og 7.7 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1376/2025.
-
Vesturhöfn (Örfirisey) - Breyting á deiliskipulagi - Fiskislóð 33, 35 og 37 - USK25110116
Lögð fram umsókn Fiskislóðar 35 ehf., dags. 7. nóvember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðanna nr. 33, 35 og 37 við Fiskislóð. Í breytingunni sem lögð er til felst sameining lóðanna í eina lóð sem fær heitið Fiskislóð 33-37, aukning á nýtingarhlutfalli, hækkun á hámarkshæð byggingar, færslu á byggingarreit til norðurs þ.e. frá suðurlóðarmörkum og heimild fyrir byggingu bílakjallara undir húsinu, samkvæmt deiliskipulags-, skýringar- og skuggavarpsuppdr. Nordic Office of Architecture, dags. 15. desember 2025. Einnig er lagt fram samgöngumat Eflu, dags. 27. mars 2026.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Komi til auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. gr. 7.5 og 7.7 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1376/2025.
-
Sætún II - Ungauppeldi - Matsskyldufyrirspurn - Umsagnarbeiðni - USK26030123
Lögð fram umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar, dags. 5. mars 2026, þar sem óskað er eftir umsögn Reykjavíkurborgar um Matsskyldufyrirspurn Stjörnueggja og VSÓ ráðgjafar, dags. í febrúar 2026, vegna uppbyggingu og rekstur uppeldishúss varpfugla í Sætúni II í Reykjavík. Á Sætúni II eru tvær byggingar, reistar kringum 1980 tengdar saman með tengigangi, samtals 1390 m2 . Ungauppeldi á varpfuglum til 16 vikna aldurs er í núverandi húsakosti og verður áfram. Til stendur að reisa eitt eldishús til viðbótar, um 800 m2 . Stækkun á húsakosti er til að sinna kröfum um breyttan aðbúnað og anna aukinni eftirspurn eftir eggjum í landinu. Núgildandi starfsleyfi fyrir Sætún II er fyrir allt að 40.000 fugla á hverjum tíma og verður ekki farið yfir þau mörk þrátt fyrir stækkun á húsakosti. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. apríl 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. apríl 2026, samþykkt.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 11:15
Brynjar Þór Jónasson Hjördís Sóley Sigurðardóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 8. apríl 2026