Menningar- og íþróttaráð - Fundur nr. 26

Menningar- og íþróttaráð

Ár 2026, föstudaginn 27. mars var haldinn 26. fundur menningar- og íþróttaráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 09:00. Viðstödd voru: Skúli Helgason formaður, Sara Björg Sigurðardóttur og Stefán Pálsson.  Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Björn Gíslason, Friðjón R Friðjónsson og Kristinn Jón Ólafsson tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Atli Steinn Árnason, Elín Hrefna Ólafsdóttir, Fany Larota Catunta og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram tillaga um gjaldskrá á þjónustu á vegum menningar- og íþróttasviðs, dags. 26. mars 2026. 
    Samþykkt.
    Vísað til borgarráðs.
    Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    -    kl. 09:26 tekur Helga Friðriksdóttir sæti á fundinum. MIR24050008

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ný gjaldskrá MÍR í sundlaugum borgarinnar, Ylströnd og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum hefur það markmið að hvetja til aukinnar notkunar og stuðla jafnframt að sanngjarnari gjaldskrá sem umbunar borgarbúum sem eru fastagestir á sama tíma tryggja að aðrir gestir sérstaklega erlent ferðafólk borgi nær raunkostnaði fyrir þjónustuna. Þannig lækkar verð á ársmiðum í sund, Ylströnd og Fjölskyldu-og húsdýragarðinn um 21-77%. Þá er í fyrsta skipti boðið upp á að kaupa ársmiða í áskrift sem gerir þann valkost mun eftirsóknarverðari fyrir þau sem hafa minni kaupmátt.  Gjaldskrárhópnum er þakkað fyrir vel unnin störf undanfarin tæp 2 ár.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins styðja framlagða tillögu um breytingar á gjaldskrám menningar- og íþróttasviðs. Tillagan felur í sér einföldun gjaldskrár og aukna áherslu á áskriftarleiðir sem getur stuðlað að aukinni notkun og bættri nýtingu þjónustunnar. Mikilvægt er að fylgjast sérstaklega með áhrifum breytinganna á þá sem nýta þjónustuna sjaldnar, sem og á fjölskyldur, í ljósi fækkunar á millileiðum og fjölskyldulausnum. Jafnframt er ástæða til að skoða sérstaklega áhrif gjaldtöku á eldra fólk á Ylströnd og tryggja að breytingin hafi ekki neikvæð áhrif á aðgengi og þátttöku. Einnig er mikilvægt að breytingar á gjaldtöku barna og ungmenna verði sérstaklega kynntar með skýrum og aðgengilegum hætti. Að lokum er lögð áhersla á að breytingarnar verði teknar til endurmats með hliðsjón af notkun og félagslegum áhrifum.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Framsóknar situr hjá við afgreiðslu málsins, fjárhagslegt mat og áhættugreining hefði þurft til að meta áhrif á þessum gjaldskrábreytingum áður en þær eru samþykktar. Framsókn hefði talið til bóta að hækka einskiptis gjöld meira til þess að skapa hvata fyrir Reykvíkinga til að kaupa árskort. Slík nálgun hefði sérstaklega hækkað tekjur borgarinnar af þeim ferðamönnum sem sækja laugarnar. Rétt er að minna á að rekstur sundlauga, Ylstrandarinnar og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er niðurgreiddur af skattgreiðendum í Reykjavík og eðlilegt að ferðamenn og íbúar annarra sveitarfélaga greiði gjald sem endurspeglar betur raunkostnað. Að lokum telur Framsókn mikilvægt að við mótun gjaldskrár sé fyrst og fremst horft til langtímasjónarmiða og fjárhagslegrar ábyrgðar. Í því samhengi verður ekki hjá því litið að tímasetning og umfang þeirra lækkana sem lagðar eru til vekja ákveðnar spurningar, sérstaklega í ljósi komandi kosninga.

    Fylgigögn

Fundi slitið 10:15

Skúli Helgason Kristinn Jón Ólafsson

Sara Björg Sigurðardóttir Stefán Pálsson

Aðalsteinn Haukur Sverrisson Björn Gíslason

Friðjón R. Friðjónsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningar- og íþróttaráðs frá 27. mars 2026