Velferðarráð - Fundur nr. 530

Velferðarráð

Ár 2026, miðvikudagur 25. mars var haldinn 530. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:00 í Tindstöðum, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Guðný Maja Riba, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Magnús Davíð Norðdahl og Sara Björg Sigurðardóttir. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Bára Sigurjónsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram umsögn Reykjavíkurborgar, dags. 27. nóvember 2025, um drög að nýjum heildarlögum um barnavernd. Einnig lögð fram drög að frumvarpi til laga um barnavernd, dags. 12. nóvember 2025. VEL26030132.

    Þyrí Halla Steingrímsdóttir, starfandi framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, Tómas Hrafn Sveinsson, formaður umdæmisráðs Barnaverndar Reykjavíkur, og Sigþrúður Erla Arnardóttir, skrifstofustjóri skrifstofu ráðgjafar, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Velferðarráð kallar eftir víðtækri umræðu og nánu samstarfi varðandi frumvarp um umfangsmiklar breytingar sem fyrirhugaðar eru á lögum um barnavernd sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Ljóst er að samráð hefur ekki verið nægilegt en um er að ræða mikilvægt mál sem snertir viðkvæma hópa. Frumvarpið kemur of seint fram á núverandi þingi til þess að raunhæft sé að það nái þeirri umfjöllun sem það á skilið. Þá verður að benda á að tími frá samþykki til gildistöku er alltof knappur.  Einnig leggur ráðið ríka áherslu á nauðsyn þess að reglugerðir verði settar og taki gildi á sama tíma og lögin taka gildi. Ámælisvert er að í frumvarpinu er kafli um fósturmál ekki endurskoðaður nægilega. Ekki er fjallað með nægjanlega skýrum hætti um málefni fatlaðra og seinfærra foreldra. Aukinheldur eru ákvæði um börn með fjölþættar stuðningsþarfir óskýr. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að úrskurðarvald sé fært frá sveitarfélögunum til ríkisins, en það kallar á aukið samtal við sveitarfélögin. Velferðarráð ítrekar mikilvægi þess að vandað sé til verka í þeim viðkvæma málaflokki sem barnavernd er og hefur áhyggjur af því að ekki hafi verið tekið nægilegt tillit til athugasemda. Velferðarráð fer fram á að málið verði unnið betur áður en það verður að lögum.

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á ársuppgjöri velferðarsviðs 2025. Trúnaður er um málið þar til uppgjörið hefur verið lagt fyrir borgarráð. VEL26030123.

    Halla Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu fjármála og reksturs, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram bókun sem færð er í trúnaðarbók.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram bókun sem færð er í trúnaðarbók.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram bókun sem færð er í trúnaðarbók.

  3. Lagt fram yfirlit yfir innkaup á velferðarsviði yfir 10 m.kr. á árinu 2025. Trúnaður er um málið þar til ársuppgjör velferðarsviðs 2025 hefur verið lagt fyrir borgarráð. VEL26030134.

    Halla Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu fjármála og reksturs, tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

  4. Lagt fram yfirlit yfir ferðaheimildir velferðarsviðs á árinu 2025. VEL26030135.

    Halla Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu fjármála og reksturs, tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

    Fylgigögn

  5. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 23. mars 2026, um breytingu á gjaldskrá veitinga og fæðis í þjónustuíbúðum og félagsmiðstöðvum velferðarsviðs:

    Lagt er til að velferðarráð heimili velferðarsviði að breyta gjaldskrá veitinga og fæðis fyrir árið 2026. Almennt verð fyrir aðra en lífeyrisþega hækki úr 1.755 kr. í 2.225 kr. Heimsendur matur og hádegismatur í þjónustuíbúðum og félagsmiðstöðvum hækki úr 1.010 kr. í 1.100  kr. árið 2026. Hádegismatur, stök máltíð hækki úr 1.095 kr. í 1.190 kr. Akstursgjald pr. máltíð hækki úr 270 kr. í 325 kr.

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL2603121.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:

    Lagt er til að velferðarráð heimili velferðarsviði að breyta gjaldskrá veitinga og fæðis fyrir árið 2026. Almennt verð fyrir aðra en lífeyrisþega hækki úr 1.755 kr. í 1.915 kr. Heimsendur matur og hádegismatur í þjónustuíbúðum og félagsmiðstöðvum hækki úr 1.010 kr. í 1.100 kr. árið 2026. Hádegismatur, stök máltíð hækki úr 1.095 kr. í 1.190 kr. Akstursgjald pr. máltíð hækki úr 270 kr. í 325 kr.

    Breytingartillagan er samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn atkvæði fulltrúa Framsóknarflokksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
    Tillagan er samþykkt svo breytt.
    Vísað til borgarráðs.

    Þórhildur Guðrún Egilsdóttir, deildarstjóri á skrifstofu öldrunarmála, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:

    Þessi tillaga er samþykkt í ljósi þess að kostnaður vegna máltíðaþjónustu hefur hækkað og ljóst er að hann mun hækka verulega vegna framkvæmda sem fram undan eru þar sem ekki verður hægt að framreiða mat í Vitatorgi. Máltíðir hækka annarsvegar um 90 krónur og 95 krónur og verð fyrir akstur hækkar um 55 krónur. Þegar framkvæmdum er lokið á Vitatorgi og framleiðslueldhúsið hefur opnað að nýju er mögulega hægt að endurskoða verð aftur í samræmi við framleiðslukostnað.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í ljósi hárrar verðbólgu og verðbólgumarkmiðs upp á 2,5% getur Framsókn ekki stutt við gjaldskrárhækkanir sem nema allt að 20%. Slíkar hækkanir eru langt umfram verðbólgumarkmið. Um er að ræða enn eina gjaldskrárhækkunina af hálfu vinstri flokkanna á borgarbúa, en Veitur hafa til að mynda verið að hækka gjaldskrár sínar langt umfram almennar verðlagsbreytingar. Allt þetta leggst ofan á hækkanir ríkisstjórnarinnar. Betur hefði farið á því að hagræða í rekstri borgarinnar til að mæta auknum kostnaði vegna breytinga á matarþjónustu borgarinnar.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um að fjölga valkostum í matarþjónustu borgarinnar, sbr. 11. lið fundargerðar velferðarráðs frá 4. mars 2026. VEL26030032.
    Vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn gagnrýnir metnaðarleysi meirihlutans þegar kemur að því að bjóða upp á fjölbreyttari matarþjónustu. Góð næring er ein af undirstöðum heilsu og vellíðunar. Í hverjum mánuði eru yfir 10 þúsund máltíðir sendar heim frá Reykjavíkurborg og meira en 16 þúsund máltíðir bornar fram í félagsmiðstöðvum borgarinnar. Þótt almennt ríki ánægja með þjónustuna hefur maturinn verið gagnrýndur fyrir að vera of einhæfur. Fólk vill hafa aukið val um hvað það borðar og því er mikilvægt að borgin leiti allra leiða til að verða við þeim óskum. Matarþjónusta borgarinnar þarf að taka betur mið af ólíkum þörfum, smekk og heilsufari þeirra sem nýta sér hana. Matsölustaðir og verslanir bjóða í auknum mæli upp á stafrænar lausnir þar sem fólk getur valið úr fjölbreyttum matseðlum og fengið mat heimsendan. Reykjavíkurborg ætti að nýta slíkar lausnir til að auka sveigjanleika og fjölbreytni í matarþjónustu borgarinnar. Þjónusta borgarinnar á að þróast í takt við breytt samfélag. Með nýjum kynslóðum breytast áherslur og væntingar fólks. Sú kynslóð sem nú er að eldast gerir eðlilega aðrar kröfur en fyrri kynslóðir. Fólk hefur ferðast meira, kynnst fjölbreyttari matargerð og er vant því að hafa val um það sem það borðar.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins um breytingar á fyrirkomulagi búsetuúrræðis við Hringbraut fyrir heimilislausar konur, sbr. 6. lið fundargerðar velferðarráðs frá 21. janúar 2026, ásamt trúnaðarmerktri umsögn velferðarsviðs, dags. 23. mars 2026. VEL26010104.
    Frestað.

  8. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 23. mars 2026, við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um ástæður þess að tillaga um húsnæði Kaffistofu Samhjálpar hefur ekki verið tekin á dagskrá velferðarráðs, sbr. 12. lið fundargerðar velferðarráðs frá 4. mars 2026. VEL26030033.

    Fylgigögn

  9. Lagt fram svar sviðsstjóra dags. 23. mars 2026, við fyrirspurn velferðarráðs um framkvæmd tillögu um húsnæði fyrir starfsemi Mánabergs, sbr. 20. lið fundargerðar velferðarráðs frá 6. desember 2024. VEL24120023.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Svar við fyrirspurn um stöðu Mánabergs berst tæpum 15 mánuðum eftir að fyrirspurn var lögð fram og rúmum þremur árum eftir upphaflegt erindi. Þá liggur jafnframt fyrir að tæp fjögur ár eru liðin frá því að leit að hentugu húsnæði hófst áður en heimilið er loks opnað. Slíkur tími er verulegur í málaflokki sem snýr að viðkvæmri þjónustu við börn og ungmenni og gefur tilefni til að fara yfir verklag og forgangsröðun. Mikilvægt er að draga lærdóm af ferlinu, tryggja skýrari framvindu í sambærilegum verkefnum og að svör við fyrirspurnum berist innan eðlilegs tíma.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn gagnrýnir hversu langan tíma það tók að opna nýtt Mánaberg og svara þessari fyrirspurn frá 6. desember 2024, sérstaklega í ljósi þess að í henni var kallað eftir aðgerðaráætlun velferðarsviðs til að tryggja opnun Mánabergs fyrir lok apríl 2025. Á fundi velferðarráðs þann 2. nóvember 2022 var samþykkt tillaga þar sem velferðarráð fól velferðarsviði, í samráði við Eignaskrifstofu Reykjavíkurborgar, að finna hentugra og hagkvæmara húsnæði fyrir starfsemi Mánabergs. Nú, í mars 2026, er Mánaberg loksins komið í nýtt húsnæði. Málið hefur notið stuðnings allra kjörinna fulltrúa. Dráttur málsins hefur verið óboðlegur fyrir þau börn sem þurfa á þjónustu Mánabergs að halda, sem og fyrir starfsfólk þess.

    Fylgigögn

  10. Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL26010020.

Fundi slitið kl. 16:33

Sanna Magdalena Mörtudottir Guðný Maja Riba

Friðjón R. Friðjónsson Magnea Gná Jóhannsdóttir

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Magnús Davíð Norðdahl

Sara Björg Sigurðardóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð velferðarráðs 25.03.2026 - Prentvæn útgáfa