Menningar- og íþróttaráð - Fundur nr. 25

Menningar- og íþróttaráð

Ár 2026, föstudaginn 20. mars var haldinn 25. fundur menningar- og íþróttaráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 09:04ok. Viðstödd voru: Skúli Helgason formaður, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Erlingur Sigvaldason varamaður fyrir Friðjón R Friðjónsson, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir varamaður fyrir Björn Gíslason, Kristinn Jón Ólafsson, Sara Björg Sigurðardóttur og Stefán Pálsson.  Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Arnfríður S Valdimarsdóttir Atli Steinn Árnason, Helga Friðriksdóttir, Elín Hrefna Ólafsdóttir, Fany Larota Catunta og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 19. mars 2026 þar sem fram kemur að á fundi borgarstjórnar 17. mars 2026 hafi verið samþykkt kosning í menningar- og íþróttaráð.  Kosin eru af SPJFV-lista, Skúli Helgason, Sara Björg Sigurðardóttir, Kristinn Jón Ólafsson og Stefán Pálsson. Kosnir af DC-lista, Björn Gíslason og Friðjón R Friðjónsson.  Kosinn af B-lista, Aðalsteinn Haukur Sverrisson.  Formaður var kjörinn Skúli Helgason. Varafulltrúar SPJFV-lista, Birkir Ingibjartsson, Ólöf Helga Jakobsdóttir, Oktavia Hrund Guðrúnar Jóns, Líf Magneudóttir.  DC lista, Birna Hafstein, Helga Margrét Marzellíusardóttir og B lista Ásta Björg Björgvinsdóttir.  MSS22060045

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 11. febrúar 2026 þar sem fram kemur að á fundi borgarstjórnar 10. febrúar 2026 hafi verið lögð fram tillaga fulltrúa í ungmennaráði Laugardals, Bústaða og Háaleitis um lengingu opnunartíma sundlauga.

    Tillögunni var vísað til meðferðar menningar- og íþróttaráðs.  MSS26020039

    Samþykkt að vísa tillögunni til meðferðar við gerð fjárhagsáætlunar.

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar samstarfsflokkanna þakka fulltrúa ungmennaráðs Laugardals, Bústaða og Háaleitis fyrir tillögu um lengingu opnunartíma sundlauga. Samstarfsflokkarnir stóðu að lengingu opnunartíma sundlauga síðastliðið sumar til kl. 22 á kvöldin og stigin hafa verið skref til að auka opnun á rauðum dögum undanfarin misseri. Sund er mikilvæg heilsubót en það hefur líka mikilvægt gildi ekki síst fyrir ungmenni að fara í sund bæði félagslega og í forvarnarskyni. Frekari lenging opnunartíma kallar hins vegar á auknar fjárveitingar sem þarf að mæta í undirbúningi fjárhagsáætlunar næsta árs. Tillögunni er því vísað til fjárhagsáætlunargerðar sem kemur til kasta nýrrar borgarstjórnar.

    Fulltrúar Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Viðreisnar fagna erindi frá ungmennaráði Laugardals, Háaleitis og Bústaða varðandi opnunartíma sundlauga. Símalaus samskipti í heilbrigðu umhverfi er eitthvað sem við viljum hiklaust bjóða meira af. Í tilfelli sem þessu er mikilvægt að rýna kostnað og fjölda heimsókna eftir sundlaugum og ígrunda vel hvernig mæta má sem flestum borgarbúum með góðum hætti. Einnig mætti skoða sóknarfæri varðandi að nýta sundlaugar meira sem vettvang fyrir félagsmiðstöðvar, fræðslu og viðburði. Við eigum þeirra frábæra vettvang og gaman væri að sjá grósku í sókn hjá ólíkum hópum. 

    Sigríður Dúa Brynjarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs Laugardals, Bústaða og Háaleitis og Ása Kristín Einarsdóttir frístundaskrifstofu skóla- og frístundasviðs taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -        kl. 09:22 tekur Stefán Pálsson sæti á fundinum og aftengist fjarfundarbúnaði.

    -        kl. 09:30 víkur Atli Steinn Árnason af fundi.

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning á Leiklistarskóla Borgarleikhússins. MIR26030008.

    Emelía Antonsdóttir Crivello verkefna- og skólastjóri barna- og fræðslustarfs Borgarleikhússins tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fræðslustarfsemi sú sem Borgarleikhúsið starfrækir er til hreinnar fyrirmyndar. Leiklist er sem kunnugt er frábært tæki til valdeflingar og til að rjúfa félagslega einangrun, auk þess að auðga andann og stuðla að betra samfélagi. Mikilvægt er að leikhúsið fái tækifæri til að viðhalda og efla þennan hluta starfsemi sinnar enn frekar í framtíðinni.

    Fulltrúar Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Virkilega áhugavert að sjá kynningu frá leiklistarskóla Borgarleikhússins, mikil og ör þróun á flottum verkefnum. Metnaðarfullt starf sem er vel sótt af bæði börnum og ungmennum. Eins og um önnur sumarnámskeið er ljóst að umfram eftirspurn er veruleg og ýtir það undir þörf borgarinnar til að kanna fjölbreyttari leiðir til að mæta hópnum. Mætti kanna möguleika hjá fleiri leikfélögum jafnvel leikfélögum framhaldsskóla til að mæta eftirspurninni og samhliða bjóða fjölbreyttari sumarstörf. Annað í starfinu sem er hreinlega til fyrirmyndar í starfi leiklistarskóla Borgarleikhússins er þeirra virka samtal jafnt við börn og ungmenni. 

     

    -        kl. 09:51 tekur Atli Steinn Árnason sæti á fundinum.

  4. Lagt fram bréf sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs dags. 18. mars 2026 ásamt drögum að reglum fyrir styrktarsjóðs fyrir börn í viðkvæmri stöðu.  MIR25120005.

    Samþykkt.

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Styrktarsjóður fyrir börn í viðkvæmri stöðu til eflingar íþrótta- og tómstundaþátttöku barna og ungmenna er mjög mikilvægur þáttur í að tryggja jöfn tækifæra barna og ein aðgerð til að tryggja að ekkert barn sitji eftir þegar kemur að þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Sjóðnum er ætlað að standa straum af auka kostnaði sem hlýst t.d. af þátttöku þeirra í íþróttum, tómstundum, ýmsum viðburðum og/eða kaupum eða leigu á búnaði, eða - greiða þátttökugjöld barna og ungmenna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi fyrir eina tómstund þegar búið er að nýta frístundastyrkinn. Skipulagt íþrótta- og tómstundastarf er ein af þremur lykil stoðum í lífi barns, ásamt skóla og velferð. Með því að samtvinna skóladag barna í viðkvæmri stöðu við skipulagt frístundastarf er unnið að farsæld barnsins lengur eftir að skóladegi lýkur til að tryggja þátttöku og virkni lengur. Styrktarsjóðurinn vinnur með og styður við Teymi frístundatengla sem vinna þvert á borgina og hafa það markmið að valdefla börn sem nýta ekki frístundastyrkinn, styðja áfram í þátttöku skipulagðs íþrótta eða tómstundastarfs.

    Fulltrúar Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Viðreisnar fagna tilveru frístundasjóðs. Frístundasjóður tekur utan um þann hóp sem þarf mest á því að halda og hefur þurft að þola þann þröskuld að búnaður og tilheyrandi aukakostnaður hefur komið í veg fyrir þátttöku barna í sinni ástríðu. Við bindum vonir við að sjá tölur um þátttöku ungmenna í skipulögðu frístundastarfi hækka og þá sérstaklega í Breiðholti, þar sem hlutfall barna er lægra.

    Fylgigögn

  5. Fram fer kynning á stafrænu Reykjavíkurkorti – MIR25050004

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning á hugmyndum stýrihóps um gjaldskrár á þjónustu á vegum menningar- og íþróttasviðs – Trúnaðarmál – MIR24050008.

Fundi slitið kl. 11:20

Skúli Helgason Kristinn Jón Ólafsson

Sara Björg Sigurðardóttir Stefán Pálsson

Aðalsteinn Haukur Sverrisson Erlingur Sigvaldason

Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningar- og íþróttaráðs frá 20. mars 2026