Skóla- og frístundaráð - Fundur nr. 310

Skóla- og frístundaráð

Ár 2026, 23. mars, var haldinn 310. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.18.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Helga Þórðardóttir formaður (F), Árelía Eydís Guðmundsdóttir (B), Ellen Jacqueline Calmon (S), Friðjón R. Friðjónsson (D), Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir (C), Sabine Leskopf (S) og Stefán Pálsson (V). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Albína Hulda Pálsdóttir, foreldrar barna í leikskólum; Andrea Sigurjónsdóttir, starfsfólk í leikskólum; Guðrún Gunnarsdóttir, leikskólastjórar; Guðrún Kaldal, framkvæmdastjórar frístundamiðstöðva; Kristín Björnsdóttir, kennarar í grunnskólum og Ragnheiður Andrésdóttir, Reykjavíkurráð ungmenna. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, Guðrún Sigtryggsdóttir, Ólafur Brynjar Bjarkason, Soffía Pálsdóttir og Eygló Traustadóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 18. mars 2026, þar sem greint er frá því að á fundi borgarstjórnar 17. mars 2026 hafi eftirtaldir aðilar verið kosnir í skóla- og frístundaráð.

    Helga Þórðardóttir
    Kristinn Jón Ólafsson
    Sabine Leskopf
    Stefán Pálsson
    Friðjón R. Friðjónsson
    Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir
    Árelía Eydís Guðmundsdóttir

    Formaður var kjörin Helga Þórðardóttir. MSS22060048

    Fylgigögn

  2. Lögð fram og kynnt Stofnun ársins 2025, viðhorfskönnun starfsmanna á skóla- og frístundasviði. SFS26030075

    Guðný Reynisdóttir, Fanney Valsdóttir og Ragnheiður E. Stefánsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Stofnun ársins er starfsmannakönnun sem Gallup gerir ár hvert fyrir Reykjavíkurborg. Könnunin var gerð frá október til desember 2025. Starfsmannakönnunin athugar starfsaðstæður, stjórnun, launakjör, álag í starfi og fleira sem skiptir máli í starfsaðstæðum starfsfólks. Það er gleðilegt að sjá að starfsánægja starfsfólks hefur almennt aukist á sviðinu. Í ljósi umræðunnar undanfarið um erfiða stöðu í leikskólum borgarinnar er sérstaklega athyglisvert að ánægja starfsfólks leikskóla er talsvert meiri en áður og mun betri en í grunnskólum borgarinnar. Það er einstaklega ánægjulegt að sjá hvað starfsfólk frístundaheimila er ánægt í starfi.

    Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva leggur fram svohljóðandi bókun:

    Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva þakkar fyrir góða kynningu á frábærum niðurstöðum í skóla- og frístundastarfi á viðhorfskönnun Sameykis, Stofnun ársins 2025. Frístundastarf skorar hæst í Reykjavík og þar vinnur ánægðasta starfsfólk Reykjavíkurborgar þrátt fyrir oft á tíðum lök vinnuskilyrði og launakjör. Það sannast þarna að viðhorf starfsfólks til starfsins er einkar gott og sú starfsmannamenning sem viðhöfð er í frístundastarfi er til fyrirmyndar. Starfsánægja, jafnrétti, ánægja og stolt og ímynd skora mjög hátt og mikil ánægja er með stjórnun sem bendir til starfshátta sem eru til eftirbreytni. Niðurstöður eru ávallt nýttar til umbóta og mikilvægt er að bregðast við þeim ábendingum sem þar koma fram.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 11. febrúar 2026, þar sem svohljóðandi tillögu fulltrúa í ungmennaráði Kjalarness, sbr. 7. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 10. febrúar 2026, er vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs ásamt minnisblaði sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 12. mars 2026:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela skóla- og frístundasviði að innleiða kennslu í grunnþáttum sjálfsvarnar fyrir nemendur í unglingadeild í öllum grunnskólum Reykjavíkur eigi síðar en á haustönn 2027.

    Greinargerð fylgdi tillögunni.

    Tillögunni er vísað frá. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðsluna. MSS26020044

    Dagbjört Freyja Gígja og Ása Kristín Einarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið, Dagbjört Freyja Gígja með rafrænum hætti.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Kennsla í sjálfsvörn er ekki hluti af aðalnámskrá grunnskóla en aðalnámskrá er leiðarvísir sem stýrir allri menntun og kennslu í skólastarfi. Í almennum aðgerðum menntastefnu Reykjavíkurborgar 2025-2027 er lögð rík áhersla á þætti sem styðja við markmið sjálfsvarnar í víðum skilningi. Þar er kveðið á um innleiðingu á námsáætlun í kyn- og kynjafræðslu frá leikskóla til 10. bekkjar. Jafnréttisskólinn þróar námsefni sem leggur áherslu á aldursviðeigandi fræðslu sem meðal annars miðar að því að efla félags- og tilfinningafærni og samskipti. Aðgerðir Reykjavíkurborgar byggja á þeirri sýn að ofbeldisvarnir séu samþættar daglegu starfi í skólum og frístundum. Börn og ungmenni í Reykjavík (6–18 ára) geta nýtt frístundakortið, sem er 75.000 króna árlegur styrkur, til að stunda sjálfsvarnarnámskeið eða bardagaíþróttir hjá viðurkenndum félögum. Nýlega lögðu samstarfsflokkarnir fram tillögu um breytingar á reglum um frístundakort þannig að heimilt verði að nýta það til að greiða fyrir styttri námskeið eða sumarnámskeið. Slíkt fyrirkomulag ætti að gefa ungmennum aukið tækifæri til að velja fleiri námskeið.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Viðreisnar fagnar hugmynd fulltrúa ungmennaráðs Kjalarnes og skilur að fullu það viðbragð sem sviðið leggur til. Er það þó nokkuð ljóst að stór meirihluti ungmenna nýtir frístundastyrkinn þegar í dag miðað við þær nýtingar sem við þekkjum. Hér er tækifæri til að hlusta á öflugar raddir ungmenna og mögulega opna umræðuna í gegnum lífsleikni jafnt sem íþróttir. Hefur fulltrúinn fullan skilning á að erfitt gæti verið að innleiða sjálfsvörn í alla skóla en hér er sannarlega tækifæri til að hlusta og opna dyr. Þegar litið er til aukinnar áhættuhegðunar sem hefur mikið birst síðastliðin misseri er mikilvægt að skoða allar leiðir til að bæta líf ungmenna.

    Áheyrnarfulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna leggur fram svohljóðandi bókun:

    Leiðinlegt er að tillögu um sjálfsvarnarkennslu í grunnskólum sé hafnað. Ofbeldi hjá ungmennum hefur aukist gífurlega síðustu ár og kennsla í sjálfsvörnum er mikilvægur liður í að sporna gegn því. Aðrir mikilvægir liðir eru öruggt og styðjandi skólaumhverfi, valdefling ungmenna og þjálfun í félagsfærni. Það að geta varið sig getur komið sér vel í aðstæðum þegar erfitt er að komast í burtu. Á meðan það er ekki kennt í grunnskólum þá munu einungis sum en ekki öll geta varið sig á öruggan hátt. Reykjavíkurborg er nú þegar að fara í góðar aðgerðir en það er alltaf hægt að gera betur.

    Kl. 14.10 víkur Arndís Steinþórsdóttir af fundinum.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 11. febrúar 2026, þar sem svohljóðandi tillögu fulltrúa í ungmennaráði Laugardals, Bústaða og Háaleitis, sbr. 3. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 10. febrúar 2026, er vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs ásamt minnisblaði sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 13. mars 2026:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela skóla- og frístundasviði að lengja opnunartíma félagsmiðstöðva til kl. 22:00 á mánudögum og miðvikudögum og á föstudagskvöldum til kl. 22:30 og bæta jafnframt við einni kvöldopnun á viku. Breytingin taki gildi frá og með hausti 2027.

    Greinargerð fylgdi tillögunni.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi breytingatillögu:

    Lagt er til að fela skóla- og frístundasviði að lengja opnunartíma félagsmiðstöðva til kl. 22:00 á mánudögum og miðvikudögum. Breytingin taki gildi frá og með hausti 2026.

    Samþykkt.

    Tillagan er samþykkt svo breytt. Vísað til borgarráðs. MSS26020040

    Jökull Logi Sigurjónsson og Ása Kristín Einarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samstarfsflokkarnir eru sammála ungmennaráði Laugardals, Bústaða og Háaleitis um að það sé mikilvægt að lengja og auka við opnunartíma félagsmiðstöðva. Ungmennaráðið leggur til að breytingar á opnunartímum félagsmiðstöðva taki ekki gildi fyrr en haustið 2027. Samstarfsflokkarnir vilja gjarnan gera þessar breytingar í skrefum og leggja því fram breytingartillögu um að strax haustið 2026 verði opnunartími félagsmiðstöðva lengdur á mánudögum og miðvikudögum.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Viðreisnar harmar að ekki hafi verið betur hægt að mæta tillögu fulltrúa ungmennaráðs Laugardals, Bústaða og Háaleitis. Að bæta við einni kvöldopnun gæti verið veruleg bót í lífi margra ungmenna. Öruggur samastaður í heilbrigðu umhverfi er lykilstoð sem við viljum veita ungmennum á uppvaxtarárum og hefur það margsýnt sig í rannsóknum að öflugt forvarnarstarf stuðlar að bættu samfélagi, bæði í dag og síðar meir á æviskeiði ungmenna. Einnig þykir fulltrúanum full ástæða til að skoða enn frekari opnanir fyrir börn á aldrinum 10 til 12 ára sem í dag fá ansi takmarkaða þjónustu á vettvangi félagsmiðstöðva. Það er áhyggjuefni í ljósi þess að börn á miðstigi stunda áhættuhegðun í meira mæli en áður og þurfa þau gott utanumhald sem þau fá ekki í dag. Hópur þessara ungmenna gekk í gegnum mikil félagsleg mótunarár á lokunartímum vegna heimsfaraldurs og þörfin til að styðja þau því gífurleg og mikið áhyggjuefni að ekki séu þegar sýnileg áform um að grípa hér inní.

    Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva leggur fram svohljóðandi bókun:

    Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva þakkar ungmennaráði fyrir góða kynningu um þeirra hjartans mál sem er opnunartími félagsmiðstöðva. Áheyrnarfulltrúi fagnar því að hlustað sé á raddir ungmenna sem hafa frá því að ákvörðunin var tekin bent á að ekki var haft samráð við þau um þeirra málefni sem var miður. Áheyrnarfulltrúi tekur undir með ungmennum að fá 15 mínútna opnun félagsmiðstöðva til baka. Grunnskólar í Reykjavík hafa seinkað skóladegi til að koma til móts við þörf á betri nætursvefni sem er til góða en þáverandi meirihluti hafði það sem sín helstu rök við að stytta opnun félagsmiðstöðva. Félagsmiðstöðvastarf er ein af grunnstoðum í uppeldisstarfi barna og unglinga og mikilvægt að bæta frekar í en draga úr líkt og gert var. Mikilvægt er að halda áfram að vinna í því að auka starf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára og bæta við fleiri kvöldopnunum í félagsmiðstöðvum.

    Áheyrnarfulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það að opnunartími félagsmiðstöðva verður aftur lengdur til tíu um kvöld eru mikilvægar og góðar fréttir. Það hefur oft verið sagt bæði á vettvangi Reykjavíkurráðsins, ungmennaráða og almennt hjá unglingum að það hefur verið leiðinlegt að opnunartími var styttur og það án samráðs við ungmenni. Nú hefur sú ákvörðun verið tekin til baka og fagna ungmenni því og að hlustað sé á þau.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 17. mars 2026:

    Lagt er til að frá og með hausti 2026 verði opnuð ný starfseining Klettaskóla í fyrrum Korpuskóla fyrir fatlaða nemendur. Horft verði til að starfsemin verði þar til næstu 15 ára og verði þá endurskoðuð með tilliti til almennrar íbúðauppbyggingar á svæðinu í norðanverðum Grafarvogi. Lagt er til að börn í 1. – 6. bekk verði í Klettaskóla og börn í 7. – 10. bekk fari í nýja starfsstöð Klettaskóla í fyrrum húsnæði Korpuskóla. Frístundaþjónusta Guluhlíðar þjónusti börn í 1. – 3. bekk, Hekla börn í 4. – 6. bekk og Askja börn í 7. – 10. bekk. Lagt er til að myndað verði nýtt stjórnendateymi skóla- og frístundastarfs frá sumri 2026 svo tryggja megi farsæla opnun hinnar nýju starfseiningar. Teymið vinni náið með núverandi stjórnendateymi Klettaskóla og frístundastarfsins að skiptingu nemendahóps og mannauðs og tryggi gott og farsælt samstarf við foreldra.

    Greinargerð fylgir.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi málsmeðferðartillögu:

    Sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs er falið að útfæra tillögu um breytingar á skóla- og frístundastarfi í Klettaskóla um að tímabundið verði opnuð ný starfseining í fyrrum Korpuskóla fyrir eldri hluta nemenda úr Klettaskóla. Jafnframt verði lögð fram kostnaðaráætlun vegna tillagnanna. Samhliða verði rætt við ríkið um stofnkostnað vegna starfseiningarinnar.

    Samþykkt. SFS26020032

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samstarfsflokkarnir leggja til að sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs verði falið að útfæra tillögu um breytingar á skóla-og frístundastarfi í Klettaskóla um að opnuð verði ný starfseining í fyrrum Korpuskóla fyrir eldri nemendur Klettaskóla. Jafnframt verði lögð fram kostnaðaráætlun og samhliða verði rætt við ríkið um stofnkostnað vegna starfseiningarinnar. Á þessu skólaári eru 141 nemandi skráður í Klettaskóla en húsnæði Klettaskóla var hannað fyrir 80-90 nemendur. Nú liggur fyrir að búið er að sækja um fyrir 41 nemanda í Klettaskóla fyrir haustið 2026 og nemendafjöldi í vetur í 1. – 9. bekk eru 130 og því er ljóst að ekki er hægt að mæta þörfum barnanna öðruvísi en að fjölga úrræðum.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Framsóknar lýsir yfir ánægju með ákvörðun og framkvæmd um stækkun Klettaskóla. Í Klettaskóla er viðkvæmasti hópur nemanda Reykjavíkurborgar. Mikilvægt er að gæta vel að fagstarfi, öryggi og umhyggju þegar tilfærsla verður á starfseminni. Mikilvægt er að framtíðarstefnumótun sé unnin í samstarfi við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu.

    Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva leggur fram svohljóðandi bókun:

    Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva þakkar fyrir kynningu á að tímabundið verði opnuð ný starfseining í fyrrum Korpuskóla fyrir nemendur í 7.-10. bekk úr Klettaskóla. Mikilvægt skref verður þá tekið í því að bæta skóla -og frístundstarf fyrir börn með fötlun. Skólinn og frístundastarfið komist í betra húsnæði og dregið verður úr akstri unglinga á milli staða. Húsnæði Korpuskóla styður við faglegt skóla- og frístundstarf sem er mikið framfaraskref. Mikilvægt er að vanda vel til verks og muna að kalla til alla þá hagaðila sem hafa hagsmuna að gæta

    Fylgigögn

  6. Lögð fram tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 16. mars 2026, um breytingu á reglum um þjónustu frístundaheimila og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva ásamt reglum um þjónustu frístundaheimila með merktum breytingum og núgildandi reglum og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva með merktum breytingum og núgildandi reglum. Breytingarnar taki gildi 22. ágúst 2026.

    Samþykkt með fjórum atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn tveimur atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins. Vísað til borgarráðs. SFS25020020

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur breyttar reglur um styttingu opnunartíma frístundaheimila fela í sér skerðingu á þjónustu við börn og fjölskyldur í borginni. Slíkar breytingar eru sérstaklega varhugaverðar í ljósi stöðu þjónustunnar og þeirra áskorana sem þegar eru til staðar. Þá er gagnrýnt að greinargerð málsins sé ófullnægjandi þar sem hvorki er gerð grein fyrir nýtingu tímans, hvaða valkostir voru skoðaðir né hvað aðgerðin sparar. Þá liggur fyrir að fjármagn vegna opnunartíma var þegar tekið úr rekstrarramma án þess að þjónustan hafi verið skert á sama tíma. Mikilvægt er að leita leiða til að halda úti þjónustu til kl. 17 og tryggja samráð við foreldra og starfsfólk um áhrif breytinganna. Í stað skerðinga hefði átt að tryggja eðlilega fjármögnun. Ný borgarstjórn þarf, að loknum kosningum, að taka málið upp að nýju.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Viðreisnar lýsir yfir áhyggjum af styttum opnunartíma frístundaheimila og reglubreytingum sem því fylgir. Að opnunartími frístundaheimila sé samræmdur opnun leikskóla sem styttur er vegna mönnunarvanda er þjónustuskerðing. Þessi skerðing er líkleg til að skila af sér auknum mönnunarvanda þar sem þegar er teflt á tæpasta vaði. Þegar vaktin er aðeins þrír og hálfur tími er augljóst að hún verður tæplega fyrsta val í atvinnuleit. Legg ég til að skoðaðar séu lokanavaktir til að mæta þörfum þeirra sem þurfa þjónustuna til kl. 17 eins og áður var en greitt sé aukalega fyrir síðasta klukkutímann. Þannig mætti vinna áfram að faglegu starfi og halda í það frábæra starfsfólk sem frístundaheimili og miðstöðvar hafa aflað.

    Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva leggur fram svohljóðandi bókun:

    Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva þakkar fyrir kynningu á breytingum á reglum í frístundastarfi. Áheyrnarfulltrúi bendir á að tillaga vegna styttingar opnunartíma frístundaheimila sem átti að taka gildi 1. janúar 2025 var frestað en mun taka gildi frá og með næsta hausti. Fjármagn vegna opnunartíma var tekið úr ramma frístundaheimila 1. janúar 2025. Áheyrnarfulltrúi telur mikilvægt að heyra í hagsmunaaðilum varðandi hvaða áhrif lokun kl.16.30 mun hafa á velferð barna og fjölskyldna. Eins að skoðuð verði áhrif á mönnun í stöður á frístundaheimilum þegar daglegur vinnutími mun styttast.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram umsögn sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 13. mars 2026, um drög að stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks 2026-2036 ásamt bréfi velferðarsviðs, dags. 9. mars 2026, með boði um að taka þátt í samráðsferli vegna stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks 2026-2036.

    Samþykkt. VEL25090041 

    Fylgigögn

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Framsóknarflokksins, sbr. 19. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 13. október 2025 og 9. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 10. nóvember 2025:

    Fulltrúi Framsóknar leggur til að settar verði á samræmdar reglur um símafrí í skólum Reykjavíkurborgar. Það verði undirbúið á haustmisseri en til framkvæmdar í upphafi árs 2026.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi breytingatillögu:

    Sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs er falið að útfæra nánar reglur um notkun síma og snjalltækja í samráði við grunnskóla þegar reglugerð mennta- og barnamálaráðherra liggur fyrir, sbr. samþykkta breytingu á lögum um grunnskóla nr. 91/2008, frá 5. mars 2026, um síma og snjalltæki.

    Samþykkt. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu breytingatillögunnar.

    Tillagan er samþykkt svo breytt. SFS25100048

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Stöðugt koma nýjar rannsóknarniðurstöður sem sýna bæði félagslegar jafnt sem andlega neikvæðar afleiðingar fyrir börn og ungmenni. Fulltrúi Framsóknar heldur áfram að kalla eftir forystu sviðsins varðandi símabann í skólum borgarinnar. Mikilvægt er að fylgjast með vísindalegum niðurstöðum um skaðsemi samfélagsmiðla á börn og ungmenni þegar teknar eru ákvarðanir um snjallsímanotkun barna. Fleiri og fleiri lönd hafa tekið þetta skef. Skóla- og frístundasvið á vera til fyrirmyndar og forystu á þessu sviði á landsvísu.

    Fylgigögn

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur, sbr. 12. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 9. mars 2026:

    Ekki liggur fyrir hvort nemendum Ölduselsskóla sem misst hafa úr námi vegna framkvæmda og myglu í skólabyggingunni verði bættir upp þeir dagar sem þeir hafa misst úr kennslu. Því er lagt er til að nemendum Ölduselsskóla verði bætt upp sú kennsla og skóladagar sem fallið hafa niður enda er það í samræmi við grunnskólalög. Þar er kveðið á um að skóladagar skulu eigi vera færri en 180 á hverju skólaári. Þá kemur jafnframt fram í lögunum að nemendum sé tryggð viðbótarkennsla sem nemur frávikum innan sama skólaárs.

    Tillagan er felld. SFS26030058

    Fylgigögn

  10. Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 12. mars 2026, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa foreldra barna í leikskólum um samráð við foreldra í tengslum við tillögur stýrihóps um umbætur í náms- og starfsumhverfi leikskóla, sbr. 15. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 9. mars 2026. SFS26030057

    Fylgigögn

  11. Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS24080154

Fundi slitið kl. 15:18

Helga Þórðardóttir Árelía Eydís Guðmundsdóttir

Ellen Jacqueline Calmon Friðjón R. Friðjónsson

Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Sabine Leskopf

Stefán Pálsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 23. mars 2026