Borgarstjórn
Ár 2026, þriðjudaginn 17. mars, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:04. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Andrea Helgadóttir, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Björn Gíslason, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Friðjón R. Friðjónsson, Guðný Maja Riba, Helga Þórðardóttir, Hildur Björnsdóttir, Hjálmar Sveinsson, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, Kjartan Magnússon, Kristinn Jón Ólafsson, Líf Magneudóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Magnús Davíð Norðdahl, Marta Guðjónsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sabine Leskopf, Skúli Helgason og Þorvaldur Daníelsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Fram fer fyrri umræða um innkaupastefna Reykjavíkurborgar 2026-2030.
Samþykkt að vísa innkaupastefnu Reykjavíkurborgar til síðari umræðu. MSS25070013Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Framtíðarsýnin sem kynnt er í uppfærðri innkaupastefnu borgarinnar til 2030 er meðal annars að með skipulögðum hætti geti borgin átt þátt í því að stuðla að bættum aðstæðum á vinnumarkaði, bættu úrvali umhverfisvænnar vöru og þjónustu og ýtt undir nýjar og skapandi lausnir við áskorunum samfélagsins, ásamt því að stuðla að heilbrigðri samkeppni á íslenskum markaði. Samhliða aðgerðum á innleiðingarárinu 2026 er stefnan tekin á að hefja undirbúning á frekari greiningu og áætlanargerð næsta árs til að tryggja að markmiðum stefnunnar verði náð með áþreifanlegum hætti á gildistíma hennar til 2030. Mat á áhrifum verður einnig að taka mið af því að ekki er í öllum tilfellum hægt að notast við núllkosti sem gera ráð fyrir óbreyttum aðferðum, en samfélagslegar afleiðingar aðgerðaleysis verða seint metnar að fullu til fjár, sérstaklega ef reikningurinn er sendur á kynslóðir framtíðar eða ef fé er sótt í einn vasa í borginni og fært yfir í annan. Borgin er aðili að ýmsum alþjóðlegum samningum, meðal annars um kolefnishlutleysi, til viðbótar við eigin innri stefnur. Innkaupastefnunni er ætlað að vera verkfæri til að setja slíkt í praktískan farveg og mun verða unnið út frá þeim markmiðum á gildistíma hennar.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarstjórn samþykkir að fela umhverfis- og skipulagssviði, í samstarfi við skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, að móta heildstæða framtíðarsýn og aðgerðaáætlun um hvernig Reykjavík geti orðið meðal fremstu borga heims í nýtingu sjálfkeyrandi tækni. Borgarstjóra verði jafnframt falið að hefja samtal við stjórnvöld, Alþingi, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og viðeigandi stofnanir um samstarf og nauðsynlegar breytingar á lögum og regluverki svo heimilt verði að prófa og innleiða sjálfkeyrandi farartæki á Íslandi.
Greinargerð fylgir tillögunni.
- Kl. 13:10 tekur Alexandra Briem sæti á fundinum og Magnús Davíð Norðdahl víkur af honum.
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna:
Borgarstjórn samþykkir að fela borgarstjóra að kortleggja tækifærin og áhætturnar sem felast í nýtingu sjálfkeyrandi tækni í samgöngum. Borgarstjóra verði jafnframt falið að hefja samtal við önnur stjórnvöld, s.s. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Samband íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stofnanir og félög um samstarf og hefja samtal við Alþingi um nauðsynlegar breytingar á lögum og regluverki svo heimilt verði að prófa og hugsanlega innleiða sjálfkeyrandi farartæki á Íslandi. Niðurstöður kortlagningarinnar skal síðan leggja fyrir borgarráð.
Breytingartillagan er samþykkt.
Tillagan er samþykkt svo breytt. MSS26030060Borgarfulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Það er nauðsynlegt að fara í athugun á því hvaða tækifæri og áhættur felast í aukinni sjálfvirknivæðingu í umferð. Sú umbreyting breytir ekki þeirri áherslu sem við höfum á eflingu almenningssamgangna eða fjölgun hjóla- og göngustíga. Breytingartillaga samstarfsflokkanna felst í því að skoða þetta í samstarfi við viðeigandi aðila og kortleggja möguleika og áhættur, en ekki ráðast á þessu stigi í stefnumótun eða aðgerðaáætlun.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Framsókn hefur lengi talað fyrir því að ráðist verði í þessa vinnu enda mikilvægt að Ísland nýti öll þau tækifæri sem felast í þeirri tæknibyltingu sem sjálfkeyrandi ökutæki hafa í för með sér.
Fylgigögn
-
Fram fer fyrri umræða um stefnu Reykjavíkurborgar í málaflokki fatlaðs fólks 2026-2036.
- Kl. 16:30 víkur Guðný Maja Riba af fundinum og Sara Björg Sigurðardóttir tekur þar sæti.
Samþykkt að vísa stefnu Reykjavíkurborgar í málaflokki fatlaðs fólks til síðari umræðu. VEL25090041
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Markmið Reykjavíkurborgar er að tryggja alhliða aðgengi fyrir fatlað fólk, þannig að hugtök eins og „einangrunartímabilið“ sem einkennir vetrartímann og „aðgengiskvíði“ verði að sögulegu fyrirbæri en þar er vísað til útilokandi aðstæðna og aðgengiskvíða þar sem óvæntar og ófyrirséðar aðstæður hafa oft tekið á móti fólki. Til að mæta þeim veruleika þarf að setja skýrt fram hvað það er sem þarf að laga og hvernig eigi að gera það. Þessi stefna fjallar um fjölbreyttar hliðar mannlegs samfélags og hvað það er mikilvægt að fólkið með reynsluna komi að því að móta stefnur og áætlanir borgarinnar. Fulltrúum samtakanna er því þakkað sérstaklega fyrir framlag sitt til þessarar stefnu. Stefnan er nú í samráðsgátt Reykjavíkurborgar og öll eru hvött til þess að kynna sér hana og koma með ábendingar ef einhverjar eru.
Borgarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Málefni fatlaðs fólks eru stór og veigamikill þáttur í velferðarþjónustu borgarinnar. Fulltrúi Viðreisnar hefði gjarna vilja sjá stefnunni skipt upp eftir ólíkum þörfum og aldri með áherslum á hvar helst þarf að stíga niður fæti. Þó það sé nefnt að finna eigi ólíkar lausnir sem henta ólíkum aðstæðum hefði gjarnan mátt fara dýpra í vinnunna. Stuðningur við fötluð börn á grunnskólaaldri er mjög breytilegur eftir fötlun barna og víða skortur á bæði þekkingu og lausnum. Slíkt gildir einnig um íþróttaiðkun bæði fatlaðra barna sem og fullorðinna. Fatlaðir eldri borgarar eru hópur sem er sannarlega til staðar þó hann sé ekki mjög sýnilegur. Við sem samfélag verðum að taka stór skref og vinna að bættu umhverfi fatlaðra íbúa borgarinnar á öllum aldri.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn leggur til að borgarstjórn samþykki að koma á fót frístundastyrk fyrir einstaklinga með lögheimili í Reykjavíkurborg sem eru 67 ára á árinu eða eldri. Niðurgreiðslur ná til félaga og viðurkenndra aðila sem eru með skipulagða kennslu eða þjálfun sem stuðla að betri heilsu og hreysti. Fjárhæð niðurgreiðslna er 4.000 kr. fyrir hvern iðkanda á mánuði eða allt að 48.000 kr. í heildargreiðslu á árinu. Lagt er til að styrkurinn séu tekjutengdur og miði tekjurnar við tekjumörk þeirra sem fá 50% afslátt á fasteignagjöldum (A50). Markmið með styrknum er að hvetja eldri Reykvíkinga til þátttöku. Menningar- og íþróttaráði er falið að setja reglur um frístundastyrki fyrir íbúa, 67 ára og eldri, í Reykjavíkurborg.
Greinargerð fylgir tillögunni.
- Kl. 17:33 víkur Sabine Leskopf af fundinum og Ellen Jacqueline Calmon tekur sæti.
Samþykkt að vísa tillögunni til meðferðar velferðarráðs. MSS26030061
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Framsókn leggur hér fram tillögu um tekjutengdan frístundastyrk fyrir einstaklinga sem verða 67 ára og eldri á árinu. Markmið með styrknum er að hvetja eldri Reykvíkinga til þátttöku. Framsókn telur sérstakt að meirihlutinn hafi ekki verið tilbúinn til þess að samþykkja tillöguna og óttast að hún verði svæfð í velferðarráði sem fer ekki með málefni íþrótta. Framsókn vill að Reykjavík verði besti staðurinn til að eldast. Það gerist ekki aðeins með góðri þjónustu heldur einnig með því að skapa tækifæri til virkrar þátttöku, hreyfingar og félagslegra tengsla. Tímabært er að Reykjavíkurborg styðji íbúa sína með sambærilegum hætti og önnur sveitarfélög og hvetji þá til aukinnar þátttöku í heilsueflandi starfi.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Það er mikilvægt að hvetja eldri Reykvíkinga til þátttöku í líkamsrækt og eflandi lýðheilsustarfi. Það er mikilvæg forvörn að stunda líkamsrækt á öllum aldri því aukin hreysti getur dregið úr þörf fyrir heilbrigðis- og velferðarþjónustu til lengri tíma. Samstarfsflokkarnir leggja því til að tillögu Framsóknarflokksins um frístundastyrk fyrir 67 ára og eldri íbúa í Reykjavík sé vísað til meðferðar velferðarráðs og til skoðunar í stýrihóp velferðarráðs sem hefur það hlutverk að móta stefnu í málefnum eldra fólks til ársins 2035. Hlutverk stýrihópsins er að gera tillögu að heildstæðri stefnu í málefnum eldra fólks til þess að skapa aðstæður í borginni sem bæta félagslega, andlega og líkamlega heilsu eldra fólks.
Borgarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Viðreisnar fagnar því að litið sé til þess að kanna möguleika á frístundastyrk fyrir 67 ára og eldri. Við sem samfélag erum að eldast og einvera og einmanaleiki er stórt vandamál í okkar samfélagi. Virkilega spennandi verður að fylgjast með þróun þessa máls og kjörið að sjá fleiri íþróttafélög og hreyfingar bjóða upp á frístund fyrir eldri borgara og þau félög sem þegar gera það bjóði upp á fleiri hópa. Samfélagslegur ávinningur sem og heilsufarslegur gæti verið verulegur með verkefni sem þessu. Er það von fulltrúa Viðreisnar að málið rati inn í borgarstjórn aftur til afgreiðslu við fyrsta tækifæri.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Viðreisnar:
Lagt er til að raunkostnaður borgarinnar fyrir veitta þjónustu borgarinnar sé gerður sýnilegur fyrir íbúa á reikningum og kvittunum. Að kostnaður borgarinnar sé sýnilegur ásamt framlagi íbúa við greiðslu gefur íbúum betri sýn á rekstur borgarinnar og nýtingu þeirra útsvars. Samræmist þetta útfærslu við lyfjakaup þar sem hlutfall sjúklinga og hlutfall sjúkratrygginga er birt. Borgin veitir margþætta þjónustu og raunkostnaður oft óljós en hann hefur áhrif á virðismat þeirrar þjónustu sem íbúum er veitt.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt að fresta tillögunni með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur. MSS26030062Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur (óháðra):
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að falla frá áformum um svokallaða borgarlínu. Þess í stað verði þegar hafist handa við að stórbæta almenningssamgöngur með eflingu núverandi strætisvagnakerfis. Jafnframt verði leitast við að hraða framkvæmdum við Miklubrautargöng og endurgerð gatnamóta Reykjanesbrautar-Bústaðavegar, sem og snjallvæðingu umferðarljósa í borginni.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt að fresta tillögunni með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur. MSS26030063Fylgigögn
-
Samþykkt að fresta umræðu um tillögu að nýju deiliskipulagi við Holtsgötu 10-12 og Brekkustíg 16 með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur. MSS25120074
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarstjórn samþykkir að hefja undirbúning aðgerða til að dreifa umferð betur yfir daginn og draga úr umferðarþunga á háannatímum, með hliðsjón af niðurstöðum skýrslunnar „Álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu“, sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) í tengslum við sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2025-2029, og vísa málinu til umhverfis- og skipulagssviðs.
Samþykkt að fresta tillögunni með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur. MSS26030064
Fylgigögn
-
Samþykkt að fresta umræðu um íbúalýðræði í Reykjavík með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur. MSS25030069
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Reykjavíkurborg lýsir því yfir að Miklubrautargöng verði sett í einkaframkvæmd og hefjist vinna við undirbúning þeirra á þessu ári og stefnt verði að því að þeim verði lokið árið 2032. Framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans verði breytt til samræmis.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt að fresta tillögunni með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur. MSS26030065Fylgigögn
-
Samþykkt að fresta umræðu um skólamál í Laugardal með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur. MSS26020048
-
Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 5. mars og 12. mars 2026.
4. liður fundargerðar borgarráðs frá 5. mars 2026, Breiðholt, hluti 6.3 – breyting á hverfisskipulagi, er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur. USK25040246
Lögð fram fundargerð forsætisnefndar frá 13. mars 2026.
7. liður fundargerðarinnar, lausnarbeiðni Guðnýjar Maju Riba frá 7. apríl 2026 til loka kjörtímabilsins, er samþykktur. MSS26030058
Lagðar fram fundargerðir mannréttindaráðs frá 5. mars, menningar- og íþróttaráðs frá 6. mars, skóla- og frístundaráðs frá 9. mars, stafræns ráðs frá 25. febrúar, umhverfis- og skipulagsráðs frá 4. og 11. mars og velferðarráðs frá 4. mars. MSS26010002Fylgigögn
- Fundargerð borgarráðs 5. mars 2026
- - 4. liður; Breiðholt, hluti 6.3 – breyting á hverfisskipulagi
- Fundargerð borgarráðs 12. mars 2026
- Fundargerð forsætisnefndar 13. mars 2026
- - 7. liður; lausnarbeiðni Guðnýjar Maju Riba
- Fundargerð mannréttindaráðs 5. mars 2026
- Fundargerð menningar- og íþróttaráðs 6. mars 2026
- Fundargerð skóla- og frístundaráðs 9. mars 2026
- Fundargerð stafræns ráðs 25. febrúar 2026
- Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 4. mars 2026
- Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 11. mars 2026
- Fundargerð velferðarráðs 4. mars 2026
-
Samþykkt með 16 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, Hjálmars Sveinssonar, Söru Bjargar Sigurðardóttur, Skúla Helgasonar og Ellenar Jacqueline Calmon og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna að taka á dagskrá kosningu varaforseta og varamanna í forsætisnefnd gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22060040
Fram fer kosning fjögurra varaforseta.Varaforsetar voru kosnir án atkvæðagreiðslu
1. varaforseti er kosin Guðný Maja Riba
2. varaforseti er kosin Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
3. varaforseti er kosin Helga Þórðardóttir
4. varaforseti er kosin Magnea Gná JóhannsdóttirFram fer kosning varafulltrúa í forsætisnefnd.
Kosin eru af SDBJF lista Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins án atkvæðagreiðslu:
Andrea Helgadóttir
Sabine Leskopf
Alexandra Briem
Einar Þorsteinsson
Hildur BjörnsdóttirEinnig barst listi óháðra borgarfulltrúa, Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, en fulltrúi af þeim lista náði ekki kjöri.
Lögð fram tilkynning Viðreisnar um að Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir verði áheyrnarfulltrúi flokksins í forsætisnefnd og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir verði varaáheyrnarfulltrúi.
Lögð fram tilkynning Vinstri grænna um að Stefán Pálsson verði áheyrnarfulltrúi flokksins í forsætisnefnd og Líf Magneudóttir verði varaáheyrnarfulltrúi.
Lögð fram tilkynning Pírata um að Alexandra Briem verði áheyrnarfulltrúi flokksins í forsætisnefnd og að Magnús Davíð Norðdahl verði varaáheyrnarfulltrúi.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir leggja fram svohljóðandi bókun:
Við mótmælum málsmeðferð vegna tillagna Sjálfstæðisflokksins við endurskipun í ráð og nefndir. Tillögurnar voru fyrst kynntar eftir að yfirstandandi fundur borgarstjórnar hófst, sem gengur í berhögg við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Í 10. grein samþykktarinnar er skýrlega kveðið á um að tilkynna skuli forsætisnefnd skriflega um mál, sem óskað er eftir að tekið verði á dagskrá borgarstjórnarfundar, fyrir kl. níu á föstudegi fyrir reglulegan fund. Einnig er kveðið á um það í áðurnefndri grein að þegar kosningar til ráða séu á dagskrá borgarstjórnar, skuli senda forsætisnefnd upplýsingar um nöfn þeirra, sem lagt er til að taki sæti. Þar sem formreglum var ekki fullnægt, hefði verið eðlilegt að fresta afgreiðslu tillögunnar. Komið hefur fyrir að slíkar tillögur hafi verið teknar á dagskrá borgarstjórnarfundar með afbrigðum. Í þeim tilvikum hefur verið um mannabreytingar að ræða, sem sátt hefur verið um. Ekki er um slíka sátt að ræða í þessu tilviki. Markmið tillagnanna er að útiloka tvo borgarfulltrúa frá öllu nefndastarfi á vettvangi borgarstjórnar. Þar sem starf borgarstjórnar grundvallast á slíku nefndastarfi, hafa tillögurnar víðtæk ólýðræðisleg áhrif. Vegna þess hefði einnig verið rétt að fresta afgreiðslu tillagnanna og gefa þannig borgarfulltrúum tíma til að kynna sér þær og meta áhrif þeirra.
-
Samþykkt með 16 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, Hjálmars Sveinssonar, Söru Bjargar Sigurðardóttur, Skúla Helgasonar og Ellenar Jacqueline Calmon og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna að taka á dagskrá kosningu í borgarráð gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22060043Kosin eru af SPJ-lista:
Alexandra Briem
Skúli Helgason
Dóra Björt Guðjónsdóttir
Sanna Magdalena MörtudóttirKosin eru af BD-lista:
Einar Þorsteinsson
Hildur Björnsdóttir
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Formaður er kjörin án atkvæðagreiðslu Alexandra Briem.
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.Kosin eru af SPJ-lista:
Magnús Davíð Norðdahl
Sabine Leskopf
Hjálmar Sveinsson
Andrea HelgadóttirKosin eru af BD-lista:
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Friðjón Friðjónsson
Magnea Gná JóhannsdóttirEinnig barst listi óháðra borgarfulltrúa, Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, en fulltrúi af þeim lista náði ekki kjöri.
Lögð fram tilkynning Viðreisnar um að Þórdís Lóa Þórhallsdóttir verði áheyrnarfulltrúi flokksins í borgarráði og Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir verði varaáheyrnarfulltrúi.
Lögð fram tilkynning Flokks fólksins um að Helga Þórðardóttir verði áheyrnarfulltrúi flokksins í borgarráði og Einar Sveinbjörn Guðmundsson verði varaáheyrnarfulltrúi.
Lögð fram tilkynning Vinstri grænna um að Líf Magneudóttir verði áheyrnarfulltrúi flokksins í borgarráði og Stefán Pálsson verði varaáheyrnarfulltrúi.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir leggja fram svohljóðandi bókun:
Við mótmælum málsmeðferð vegna tillagna Sjálfstæðisflokksins við endurskipun í ráð og nefndir. Tillögurnar voru fyrst kynntar eftir að yfirstandandi fundur borgarstjórnar hófst, sem gengur í berhögg við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Í 10. grein samþykktarinnar er skýrlega kveðið á um að tilkynna skuli forsætisnefnd skriflega um mál, sem óskað er eftir að tekið verði á dagskrá borgarstjórnarfundar, fyrir kl. níu á föstudegi fyrir reglulegan fund. Einnig er kveðið á um það í áðurnefndri grein að þegar kosningar til ráða séu á dagskrá borgarstjórnar, skuli senda forsætisnefnd upplýsingar um nöfn þeirra, sem lagt er til að taki sæti. Þar sem formreglum var ekki fullnægt, hefði verið eðlilegt að fresta afgreiðslu tillögunnar. Komið hefur fyrir að slíkar tillögur hafi verið teknar á dagskrá borgarstjórnarfundar með afbrigðum. Í þeim tilvikum hefur verið um mannabreytingar að ræða, sem sátt hefur verið um. Ekki er um slíka sátt að ræða í þessu tilviki. Markmið tillagnanna er að útiloka tvo borgarfulltrúa frá öllu nefndastarfi á vettvangi borgarstjórnar. Þar sem starf borgarstjórnar grundvallast á slíku nefndastarfi, hafa tillögurnar víðtæk ólýðræðisleg áhrif. Vegna þess hefði einnig verið rétt að fresta afgreiðslu tillagnanna og gefa þannig borgarfulltrúum tíma til að kynna sér þær og meta áhrif þeirra.
-
Samþykkt með 16 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, Hjálmars Sveinssonar, Söru Bjargar Sigurðardóttur, Skúla Helgasonar og Ellenar Jacqueline Calmon og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna að taka á dagskrá kosningu í umhverfis- og skipulagsráð gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22060046Kosin eru af SPJV-lista:
Líf Magneudóttir
Hjálmar Sveinsson
Andrea Helgadóttir
Magnús Davíð NorðdahlKosin eru af DC-lista:
Friðjón R. Friðjónsson
Jóhanna Dýrunn JónsdóttirKosinn er af B-lista:
Aðalsteinn Haukur SverrissonFormaður er kjörin án atkvæðagreiðslu Líf Magneudóttir
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af SPJV-lista:
Stefán Pálsson
Birkir Ingibjartsson
Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Oktavía Hrund Guðrúnar JónsKosin eru af DC-lista:
Björn Gíslason
Sandra Hlíf OcaresKosinn er af B-lista:
Þorvaldur DaníelssonEinnig barst listi óháðra borgarfulltrúa, Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, en fulltrúi af þeim lista náði ekki kjöri.
Lögð fram tilkynning Flokks fólksins um að Einar Sveinbjörn Guðmundsson verði áheyrnarfulltrúi flokksins í umhverfis- og skipulagsráði og Helga Þórðardóttir verði varaáheyrnarfulltrúi.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir leggja fram svohljóðandi bókun:
Við mótmælum málsmeðferð vegna tillagna Sjálfstæðisflokksins við endurskipun í ráð og nefndir. Tillögurnar voru fyrst kynntar eftir að yfirstandandi fundur borgarstjórnar hófst, sem gengur í berhögg við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Í 10. grein samþykktarinnar er skýrlega kveðið á um að tilkynna skuli forsætisnefnd skriflega um mál, sem óskað er eftir að tekið verði á dagskrá borgarstjórnarfundar, fyrir kl. níu á föstudegi fyrir reglulegan fund. Einnig er kveðið á um það í áðurnefndri grein að þegar kosningar til ráða séu á dagskrá borgarstjórnar, skuli senda forsætisnefnd upplýsingar um nöfn þeirra, sem lagt er til að taki sæti. Þar sem formreglum var ekki fullnægt, hefði verið eðlilegt að fresta afgreiðslu tillögunnar. Komið hefur fyrir að slíkar tillögur hafi verið teknar á dagskrá borgarstjórnarfundar með afbrigðum. Í þeim tilvikum hefur verið um mannabreytingar að ræða, sem sátt hefur verið um. Ekki er um slíka sátt að ræða í þessu tilviki. Markmið tillagnanna er að útiloka tvo borgarfulltrúa frá öllu nefndastarfi á vettvangi borgarstjórnar. Þar sem starf borgarstjórnar grundvallast á slíku nefndastarfi, hafa tillögurnar víðtæk ólýðræðisleg áhrif. Vegna þess hefði einnig verið rétt að fresta afgreiðslu tillagnanna og gefa þannig borgarfulltrúum tíma til að kynna sér þær og meta áhrif þeirra.
-
Samþykkt með 16 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, Hjálmars Sveinssonar, Söru Bjargar Sigurðardóttur, Skúla Helgasonar og Ellenar Jacqueline Calmon og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna að taka á dagskrá kosningu í menningar- og íþróttaráð gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22060045Kosin eru af SPJFV-lista:
Skúli Helgason
Sara Björg Sigurðardóttir
Kristinn Jón Ólafsson
Stefán PálssonKosnir eru af DC-lista:
Björn Gíslason
Friðjón R. FriðjónssonKosinn er af B-lista:
Aðalsteinn Haukur SverrissonFormaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Skúli Helgason.
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af SPJFV-lista:
Birkir Ingibjartsson
Ólöf Helga Jakobsdóttir
Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns
Líf MagneudóttirKosnar eru af DC-lista:
Birna Hafstein
Helga Margrét MarzellíusardóttirKosin er af B-lista:
Ásta Björg BjörgvinsdóttirEinnig barst listi óháðra borgarfulltrúa, Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, en fulltrúi af þeim lista náði ekki kjöri.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir leggja fram svohljóðandi bókun:
Við mótmælum málsmeðferð vegna tillagna Sjálfstæðisflokksins við endurskipun í ráð og nefndir. Tillögurnar voru fyrst kynntar eftir að yfirstandandi fundur borgarstjórnar hófst, sem gengur í berhögg við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Í 10. grein samþykktarinnar er skýrlega kveðið á um að tilkynna skuli forsætisnefnd skriflega um mál, sem óskað er eftir að tekið verði á dagskrá borgarstjórnarfundar, fyrir kl. níu á föstudegi fyrir reglulegan fund. Einnig er kveðið á um það í áðurnefndri grein að þegar kosningar til ráða séu á dagskrá borgarstjórnar, skuli senda forsætisnefnd upplýsingar um nöfn þeirra, sem lagt er til að taki sæti. Þar sem formreglum var ekki fullnægt, hefði verið eðlilegt að fresta afgreiðslu tillögunnar. Komið hefur fyrir að slíkar tillögur hafi verið teknar á dagskrá borgarstjórnarfundar með afbrigðum. Í þeim tilvikum hefur verið um mannabreytingar að ræða, sem sátt hefur verið um. Ekki er um slíka sátt að ræða í þessu tilviki. Markmið tillagnanna er að útiloka tvo borgarfulltrúa frá öllu nefndastarfi á vettvangi borgarstjórnar. Þar sem starf borgarstjórnar grundvallast á slíku nefndastarfi, hafa tillögurnar víðtæk ólýðræðisleg áhrif. Vegna þess hefði einnig verið rétt að fresta afgreiðslu tillagnanna og gefa þannig borgarfulltrúum tíma til að kynna sér þær og meta áhrif þeirra.
-
Samþykkt með 16 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, Hjálmars Sveinssonar, Söru Bjargar Sigurðardóttur, Skúla Helgasonar og Ellenar Jacqueline Calmon og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna að taka á dagskrá kosningu í velferðarráð gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22060049Kosin eru af SPJFV-lista:
Sanna Magdalena Mörtudóttir
Guðný Maja Riba
Sara Björg Sigurðardóttir
Magnús Davíð NorðdahlKosin eru af DC-lista:
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Friðjón FriðjónssonKosin er af B-lista:
Magnea Gná JóhannsdóttirFormaður er kjörin án atkvæðagreiðslu Sanna Magdalena Mörtudóttir
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af SPJFV-lista:
Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Ellen Jacqueline Calmon
Pétur Marteinn Urbancic Tómasson
Oktavía Hrund Guðrúnar JónsKosnar eru af DC-lista:
Sandra Hlíf Ocares
Þórdís Lóa ÞórhallsdóttirKosinn er af B-lista
Þorvaldur DaníelssonEinnig barst listi óháðra borgarfulltrúa, Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, en fulltrúi af þeim lista náði ekki kjöri.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir leggja fram svohljóðandi bókun:
Við mótmælum málsmeðferð vegna tillagna Sjálfstæðisflokksins við endurskipun í ráð og nefndir. Tillögurnar voru fyrst kynntar eftir að yfirstandandi fundur borgarstjórnar hófst, sem gengur í berhögg við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Í 10. grein samþykktarinnar er skýrlega kveðið á um að tilkynna skuli forsætisnefnd skriflega um mál, sem óskað er eftir að tekið verði á dagskrá borgarstjórnarfundar, fyrir kl. níu á föstudegi fyrir reglulegan fund. Einnig er kveðið á um það í áðurnefndri grein að þegar kosningar til ráða séu á dagskrá borgarstjórnar, skuli senda forsætisnefnd upplýsingar um nöfn þeirra, sem lagt er til að taki sæti. Þar sem formreglum var ekki fullnægt, hefði verið eðlilegt að fresta afgreiðslu tillögunnar. Komið hefur fyrir að slíkar tillögur hafi verið teknar á dagskrá borgarstjórnarfundar með afbrigðum. Í þeim tilvikum hefur verið um mannabreytingar að ræða, sem sátt hefur verið um. Ekki er um slíka sátt að ræða í þessu tilviki. Markmið tillagnanna er að útiloka tvo borgarfulltrúa frá öllu nefndastarfi á vettvangi borgarstjórnar. Þar sem starf borgarstjórnar grundvallast á slíku nefndastarfi, hafa tillögurnar víðtæk ólýðræðisleg áhrif. Vegna þess hefði einnig verið rétt að fresta afgreiðslu tillagnanna og gefa þannig borgarfulltrúum tíma til að kynna sér þær og meta áhrif þeirra.
-
Samþykkt með 16 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, Hjálmars Sveinssonar, Söru Bjargar Sigurðardóttur, Skúla Helgasonar og Ellenar Jacqueline Calmon og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna að taka á dagskrá kosningu í mannréttindaráð gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS25020083Kosin eru af SPJFV-lista:
Sabine Leskopf
Guðný Maja Riba
Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Magnús Davíð NorðdahlKosin eru af DC-lista:
Björn Gíslason
Jóhanna Dýrunn JónsdóttirKosin er af B-lista
Magnea Gná JóhannsdóttirFormaður er kjörin án atkvæðagreiðslu Sabine Leskopf
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af SPJFV-lista:
Ellen Jacqueline Calmon
Ólöf Helga Jakobsdóttir
Einar Sveinbjörn Guðmundsson
Oktavía Hrund Guðrúnar JónsKosin eru af DC-lista:
Þorkell Sigurlaugsson
Helga Margrét MarzellíusardóttirKosinn er af B-lista
Þorvaldur DaníelssonEinnig barst listi óháðra borgarfulltrúa, Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, en fulltrúi af þeim lista náði ekki kjöri.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir leggja fram svohljóðandi bókun:
Við mótmælum málsmeðferð vegna tillagna Sjálfstæðisflokksins við endurskipun í ráð og nefndir. Tillögurnar voru fyrst kynntar eftir að yfirstandandi fundur borgarstjórnar hófst, sem gengur í berhögg við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Í 10. grein samþykktarinnar er skýrlega kveðið á um að tilkynna skuli forsætisnefnd skriflega um mál, sem óskað er eftir að tekið verði á dagskrá borgarstjórnarfundar, fyrir kl. níu á föstudegi fyrir reglulegan fund. Einnig er kveðið á um það í áðurnefndri grein að þegar kosningar til ráða séu á dagskrá borgarstjórnar, skuli senda forsætisnefnd upplýsingar um nöfn þeirra, sem lagt er til að taki sæti. Þar sem formreglum var ekki fullnægt, hefði verið eðlilegt að fresta afgreiðslu tillögunnar. Komið hefur fyrir að slíkar tillögur hafi verið teknar á dagskrá borgarstjórnarfundar með afbrigðum. Í þeim tilvikum hefur verið um mannabreytingar að ræða, sem sátt hefur verið um. Ekki er um slíka sátt að ræða í þessu tilviki. Markmið tillagnanna er að útiloka tvo borgarfulltrúa frá öllu nefndastarfi á vettvangi borgarstjórnar. Þar sem starf borgarstjórnar grundvallast á slíku nefndastarfi, hafa tillögurnar víðtæk ólýðræðisleg áhrif. Vegna þess hefði einnig verið rétt að fresta afgreiðslu tillagnanna og gefa þannig borgarfulltrúum tíma til að kynna sér þær og meta áhrif þeirra.
-
Samþykkt með 16 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, Hjálmars Sveinssonar, Söru Bjargar Sigurðardóttur, Skúla Helgasonar og Ellenar Jacqueline Calmon og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna að taka á dagskrá kosningu í skóla- og frístundaráð gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22060048Kosin eru af SPJFV-lista:
Helga Þórðardóttir
Kristinn Jón Ólafsson
Sabine Leskopf
Stefán PálssonKosin eru af DC-lista:
Friðjón R. Friðjónsson
Jóhanna Dýrunn JónsdóttirKosin er af B-lista:
Árelía Eydís GuðmundsdóttirFormaður er kjörin án atkvæðagreiðslu Helga Þórðardóttir
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af SPJFV lista:
Einar Sveinbjörn Guðmundsson
Magnús Davíð Norðdahl
Ellen Jacqueline Calmon
Líf MagneudóttirKosnar eru af DC-lista:
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Sandra Hlíf OcaresKosin er af B-lista:
Ásta Björg BjörgvinsdóttirEinnig barst listi óháðra borgarfulltrúa, Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, en fulltrúi af þeim lista náði ekki kjöri.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir leggja fram svohljóðandi bókun:
Við mótmælum málsmeðferð vegna tillagna Sjálfstæðisflokksins við endurskipun í ráð og nefndir. Tillögurnar voru fyrst kynntar eftir að yfirstandandi fundur borgarstjórnar hófst, sem gengur í berhögg við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Í 10. grein samþykktarinnar er skýrlega kveðið á um að tilkynna skuli forsætisnefnd skriflega um mál, sem óskað er eftir að tekið verði á dagskrá borgarstjórnarfundar, fyrir kl. níu á föstudegi fyrir reglulegan fund. Einnig er kveðið á um það í áðurnefndri grein að þegar kosningar til ráða séu á dagskrá borgarstjórnar, skuli senda forsætisnefnd upplýsingar um nöfn þeirra, sem lagt er til að taki sæti. Þar sem formreglum var ekki fullnægt, hefði verið eðlilegt að fresta afgreiðslu tillögunnar. Komið hefur fyrir að slíkar tillögur hafi verið teknar á dagskrá borgarstjórnarfundar með afbrigðum. Í þeim tilvikum hefur verið um mannabreytingar að ræða, sem sátt hefur verið um. Ekki er um slíka sátt að ræða í þessu tilviki. Markmið tillagnanna er að útiloka tvo borgarfulltrúa frá öllu nefndastarfi á vettvangi borgarstjórnar. Þar sem starf borgarstjórnar grundvallast á slíku nefndastarfi, hafa tillögurnar víðtæk ólýðræðisleg áhrif. Vegna þess hefði einnig verið rétt að fresta afgreiðslu tillagnanna og gefa þannig borgarfulltrúum tíma til að kynna sér þær og meta áhrif þeirra.
-
Samþykkt með 16 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, Hjálmars Sveinssonar, Söru Bjargar Sigurðardóttur, Skúla Helgasonar og Ellenar Jacqueline Calmon og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna að taka á dagskrá kosningu í innkaupa- og framkvæmdaráð gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22060064Kosnar eru af SPJFV-lista:
Andrea Helgadóttir
Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns
Sara Björg SigurðardóttirKosin er af DC-lista:
Sandra Hlíf OcaresKosin er af B-lista
Árelía Eydís GuðmundsdóttirFormaður er kjörin án atkvæðagreiðslu Andrea Helgadóttir
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af SPJFV lista:
Stefán Pálsson
Kristinn Jón Ólafsson
Birkir IngibjartssonKosin er af DC-lista:
Birna HafsteinKosinn er af B-lista:
Þorvaldur DaníelssonEinnig barst listi óháðra borgarfulltrúa, Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, en fulltrúi af þeim lista náði ekki kjöri.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir leggja fram svohljóðandi bókun:
Við mótmælum málsmeðferð vegna tillagna Sjálfstæðisflokksins við endurskipun í ráð og nefndir. Tillögurnar voru fyrst kynntar eftir að yfirstandandi fundur borgarstjórnar hófst, sem gengur í berhögg við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Í 10. grein samþykktarinnar er skýrlega kveðið á um að tilkynna skuli forsætisnefnd skriflega um mál, sem óskað er eftir að tekið verði á dagskrá borgarstjórnarfundar, fyrir kl. níu á föstudegi fyrir reglulegan fund. Einnig er kveðið á um það í áðurnefndri grein að þegar kosningar til ráða séu á dagskrá borgarstjórnar, skuli senda forsætisnefnd upplýsingar um nöfn þeirra, sem lagt er til að taki sæti. Þar sem formreglum var ekki fullnægt, hefði verið eðlilegt að fresta afgreiðslu tillögunnar. Komið hefur fyrir að slíkar tillögur hafi verið teknar á dagskrá borgarstjórnarfundar með afbrigðum. Í þeim tilvikum hefur verið um mannabreytingar að ræða, sem sátt hefur verið um. Ekki er um slíka sátt að ræða í þessu tilviki. Markmið tillagnanna er að útiloka tvo borgarfulltrúa frá öllu nefndastarfi á vettvangi borgarstjórnar. Þar sem starf borgarstjórnar grundvallast á slíku nefndastarfi, hafa tillögurnar víðtæk ólýðræðisleg áhrif. Vegna þess hefði einnig verið rétt að fresta afgreiðslu tillagnanna og gefa þannig borgarfulltrúum tíma til að kynna sér þær og meta áhrif þeirra.
-
Samþykkt með 16 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, Hjálmars Sveinssonar, Söru Bjargar Sigurðardóttur, Skúla Helgasonar og Ellenar Jacqueline Calmon og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna að taka á dagskrá kosningu í heilbrigðisnefnd gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22060075Kosnir eru af SPJFV-lista:
Hjálmar Sveinsson
Birkir Ingibjartsson
Einar Sveinbjörn GuðmundssonKosin er af DC-lista:
Sandra Hlíf OcaresKosinn er af B-lista
Aðalsteinn Haukur SverrissonFormaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Hjálmar Sveinsson
Varafulltrúar eru kosnir með sama hætti.
Kosin eru af SPJFV-lista:
Pétur Marteinn Urbancic Tómasson
Ólöf Helga Jakobsdóttir
Oktavía Hrund Guðrúnar JónsKosin er af DC-lista:
Birna HafsteinKosin er af B-lista:
Ásta Björg BjörgvinsdóttirEinnig barst listi óháðra borgarfulltrúa, Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, en fulltrúi af þeim lista náði ekki kjöri.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir leggja fram svohljóðandi bókun:
Við mótmælum málsmeðferð vegna tillagna Sjálfstæðisflokksins við endurskipun í ráð og nefndir. Tillögurnar voru fyrst kynntar eftir að yfirstandandi fundur borgarstjórnar hófst, sem gengur í berhögg við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Í 10. grein samþykktarinnar er skýrlega kveðið á um að tilkynna skuli forsætisnefnd skriflega um mál, sem óskað er eftir að tekið verði á dagskrá borgarstjórnarfundar, fyrir kl. níu á föstudegi fyrir reglulegan fund. Einnig er kveðið á um það í áðurnefndri grein að þegar kosningar til ráða séu á dagskrá borgarstjórnar, skuli senda forsætisnefnd upplýsingar um nöfn þeirra, sem lagt er til að taki sæti. Þar sem formreglum var ekki fullnægt, hefði verið eðlilegt að fresta afgreiðslu tillögunnar. Komið hefur fyrir að slíkar tillögur hafi verið teknar á dagskrá borgarstjórnarfundar með afbrigðum. Í þeim tilvikum hefur verið um mannabreytingar að ræða, sem sátt hefur verið um. Ekki er um slíka sátt að ræða í þessu tilviki. Markmið tillagnanna er að útiloka tvo borgarfulltrúa frá öllu nefndastarfi á vettvangi borgarstjórnar. Þar sem starf borgarstjórnar grundvallast á slíku nefndastarfi, hafa tillögurnar víðtæk ólýðræðisleg áhrif. Vegna þess hefði einnig verið rétt að fresta afgreiðslu tillagnanna og gefa þannig borgarfulltrúum tíma til að kynna sér þær og meta áhrif þeirra.
-
Samþykkt með 16 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, Hjálmars Sveinssonar, Söru Bjargar Sigurðardóttur, Skúla Helgasonar og Ellenar Jacqueline Calmon og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna að taka á dagskrá kosningu í stafrænt ráð gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Lagt er til að Andrea Helgadóttir taki sæti Ástu Þórdísar Skjalddal Guðjónsdóttur í ráðinu og að Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir verði varamaður.
Samþykkt. MSS22060050
Fundi slitið kl. 19:42
Sanna Magdalena Mörtudottir Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir
Líf Magneudóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar 17.03.2026 - Prentvæn útgáfa