Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2026, fimmtudaginn 12. mars var haldinn 183. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, og Birna Hafstein. Andrea Jóhanna Helgadóttir og Sara Björg Sigurðardóttir sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Dagmar Arnardóttir starfsmaður borgarlögmanns. Fundarritari var Hallgrímur Tómasson.
Þetta gerðist:
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK23100259 dags. 9.mars 2026 varðandi útboð 16249 Málun 2026 í fasteignum Reykjavíkurborgar - Hverfi 6, 7 og 8, 9, 10, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda í hverja fasteign fyrir sig.
Samþykkt.Gréta Þórsdóttir Björnsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK23100259 dags. 9. mars 2026 varðandi útboð 16257 Málun 2026 í fasteignum Reykjavíkurborgar - Hverfi 1, 2, 3 og 4, 5 , þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda í hverja fasteign fyrir sig.
Samþykkt.
Gréta Þórsdóttir Björnsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:22
Andrea Helgadóttir Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns
Birna Hafstein Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Sara Björg Sigurðardóttir