Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 374

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 18. mars, kl. 9:00 var haldinn 374. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Líf Magneudóttir, Andrea Jóhanna Helgadóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, Þorvaldur Daníelsson og áheyrnarfulltrúinn Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir. Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Magnús Davíð Norðdahl. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Inga Rún Sigurðardóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf frá fundi borgarstjórnar dags. 18. mars 2026 þar sem tilkynnist að Friðjón R. Friðjónsson og Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir eru kosin sem fulltrúar í umhverfis- og skipulagsráði í stað Hildar Björnsdóttur og Kjartans Magnússonar og að Björn Gíslason og Sandra Hlíf Ocares eru kosin sem varafulltrúar í ráðinu stað Mörtu Guðjónsdóttur. MSS22060046
     

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á niðurstöðum árlegrar greiningar Sorpu á samsetningu heimilissorps frá íbúum.

    -    Kl. 9:03 tekur Hjálmar Sveinsson sæti á fundinum.
    -    Kl. 9:06 tekur Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir sæti á fundinum.

    Gunnar Dofri Ólafsson og Friðrik Klingbeil Gunnarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030157

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:

    Fulltrúi Viðreisnar þakkar góða kynningu Sorpu á stöðunni í heimi endurvinnslu. Miður er að sjá að dregist hafi úr flokkun frá heimilum. Er það okkar von að farið í kynningarátök til að efla íbúa við flokkun. Einnig væri gott að efla eftirlit með flokkun rekstraraðila en það er í dag í höndum heilbrigðiseftirlitsins enda liggur þar stór hluti úrgangs sem gott væri að fá innsýn í stöðu mála.
     

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning á könnun Sorpu á viðhorfi íbúa til flokkunar heimilissorps.

    -    Kl. 9:58 aftengist Magnús Davíð Norðdahl og tekur sæti á fundinum.

    Gunnar Dofri Ólafsson og Friðrik Klingbeil Gunnarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030159
     

  4. Lögð fram tillaga Landslags og umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 3. nóvember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals vegna Árbæjarlóns, Árbæjarstíflu og Rafstöðvarvegs. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmörkun Árbæjarlóns er fjarlægð þar sem það er ekki lengur til staðar og náttúrulegir árfarvegir Elliðaár skilgreindir í stað lónsins. Þá er skilgreint nýtt hlutverk Árbæjarstíflu sem aðgengileg göngutenging yfir Elliðaárnar ásamt því að breytingar verða á aðliggjandi stígum og áningarstöðum beggja megin stíflunar. Breytingin tekur einnig til Rafstöðvarvegar þar sem breytingar verða á stígakerfi og útfærslum þar sem vegurinn fer um Rafstöðvarsvæðið. Markmiðið er að umhverfi og dalurinn allur verði áfram einstök náttúru- og útivistarperla, skv. uppdrætti Landslags, dags. 27. febrúar 2026 og greinargerð Landslags, dags. 25. febrúar 2026. Einnig er lögð fram skýrsla Verkís, dags. í september 2025, um áhrifamat vatnshlota vegna breytinga á Árbæjarstíflu og framkvæmda við nýja brú. Lagt er til að tillagan verði samþykkt í auglýsingu.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
    Vísað til borgarráðs.

    Íris Reynisdóttir, Heiða Aðalsteinsdóttir og Grettir Haraldsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK25110138

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Fyrir liggur að mál vegna Árbæjarlóns er til meðferðar fyrir dómstólum. Að mati fulltrúa er því eðlilegt og ábyrgt að bíða með auglýsingu deiliskipulags þar til lagaleg staða svæðisins liggur skýrt fyrir. Engin knýjandi þörf er á að hraða skipulagsbreytingunni, sérstaklega í ljósi þess að niðurstöðu dóms er að vænta á næstunni. Falli dómur Reykjavíkurborg í óhag er málið komið í allt aðra stöðu og nauðsynlegt að endurmeta forsendur þess frá grunni. Fyrirliggjandi hugmyndir um að bæta upplifun íbúa og nýtingu ofanverðs Elliðaárdals eru áhugaverðar. Aukin laxagengd bendir jafnframt til þess að náttúran sé að taka jákvæðum breytingum og að þar geti myndast svæði sem Reykvíkingar geta orðið stoltir af. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins kýs ekki gegn tillögunni en situr hjá og lýsir jafnframt andstöðu við að málinu sé hraðað áfram með þessum hætti. Rétt er að bíða með auglýsingu þar til dómur hefur fallið og lagaleg staða málsins er ljós.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:

    Virkilega ánægjulegt að sjá áhrif vinnunnar á lífríki í dalnum einnig ánægjulegt að sjá hversu metnaðarfull vinnan er og hvernig horft er til leiða til að mæta sjónarmiðum andstæðra eininga. Fulltrúi Viðreisnar telur það heilla skref að bæta bæði aðgengi og lýsingu á svæðinu svo fleiri geti notið þessar dásamlegu náttúruperlu.
     

    Fylgigögn

  5. Fram fer kynning um mótun og stefnu í málaflokki fatlaðs fólks, sbr. mál nr. 2/2026 í samráðsgátt Reykjavíkurborgar og óskað eftir umsögn í samráðsferlið.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs, skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu.

    Lára Sigríður Baldursdóttir og Bragi Bergsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. VEL25090041
     

    Fylgigögn

  6. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs og fulltrúaráðs verkalýðshreyfingarinnar, dags. 13. mars 2026 um staðsetningu minnismerkis um kvennabaráttuna, Venus/Sáttin. Einnig er lögð fram viljayfirlýsing dags. 23. október 2026. Lagt er til að styttunni verði komið fyrir í Hljómskálagarði, sjá meðfylgjandi mynd.
    Samþykkt.

    Þórólfur Jónsson og Arnfríður Valdimarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 10:55 víkur Brynjar Þór Jónasson af fundi. USK26030233
     

    Fylgigögn

  7. Fram fer kynning á notkun plöntuvarnarefna hjá Reykjavíkurborg.

    -    Kl. 11:11 víkur Hjálmar Sveinsson af fundi og Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir tekur sæti á fundinum sem varamaður hans. USK26030237
     

    Fylgigögn

  8. Fram fer kynning á tillögum að breytingum á reglum um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík.

    Mattías Bernhöj Daðason tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26010446

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:

    Ánægjulegt er að sjá drög á breytingartillögu um bílastæðareglur. Að horft sé til gestastæða er stórbót sem og aukning á viðmiðum. Er það von fulltrúa Viðreisnar að rýmkunin komi til með að veita betra aðgengi að nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu.
     

  9. Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. nóvember 2025 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta móttökueldhús og matsal fyrir 100 gesti ásamt tilheyrandi snyrtingum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 í húsi á lóð nr. 46 við Grensásveg. Erindið var grenndarkynnt frá 28. nóvember 2025 til og með 5. janúar 2026. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. febrúar 2026. 
    Frestað. USK25100211
     

  10. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 9. mars 2026 ásamt fylgigögnum. USK26010164
     

    Fylgigögn

  11. Lögð fram fundargerð afgreiðslufunda skipulagsfulltrúa dags. 10. mars 2026. USK22120094
     

    Fylgigögn

  12. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 10. mars 2026. USK24070166
     

    Fylgigögn

  13. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 6. mars 2026 ásamt kæru nr. UUA2603003, dags. 6. mars 2026, þar sem kærður er óhæfilegur dráttur á að Reykjavíkurborg komi með niðurstöðu og afgreiðslu máls vegna grenndarkynningar á Laugarásvegi 63. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 10. mars 2026. USK26030127
     

    Fylgigögn

  14. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 5. mars 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Laufásveg 19 og 21-23 og Þingholtsstræti 34. USK25120032
     

    Fylgigögn

  15. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um snjallgangbrautir við grunnskóla, sbr. 20. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 29. janúar 2026. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 11. mars 2026.
    Tillagan er felld með 4 atkvæðum fulltrúa Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins. USK26010436
     

    Fylgigögn

  16. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um bílastæði í Gufunesi, sbr. 27. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. janúar 2026. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 11. mars 20226.
    Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar. USK26010206
     

    Fylgigögn

  17. Lögð fram tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um endurskoðun umferðarskipulags við Höfðabakka og Bæjarháls. Tillagan var lögð fram á fundi borgarstjórnar, sbr. 3. liður, dags. 17. febrúar 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. MSS26020076

    Fylgigögn

  18. Lögð fram að nýju tillaga Kjartans Magnússonar, óháðs fulltrúa um viðgerð á gangstétt við Suðurgötu, sbr. 15. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 11. mars 2026.
    Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu. USK26030197
     

    Fylgigögn

  19. Lögð fram að nýju tillaga Kjartans Magnússonar, óháðs fulltrúa um hönnun Mikluborgarganga, sbr. 16. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 11. mars 2026.
    Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins. USK26030198
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:53

Líf Magneudóttir Andrea Helgadóttir

Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir Friðjón R. Friðjónsson

Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Þorvaldur Daníelsson

Magnús Davíð Norðdahl

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 18. mars 2026