Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 354

Endurskoðunarnefnd

Ár 2026, mánudaginn 16. mars var haldinn 354. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:03. Viðstödd voru Lárus Finnbogason og Sigrún Guðmundsdóttir. Sunna Jóhannsdóttir boðaði forföll. Einnig sat fundinn Ingunn Ólafsdóttir. 

Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir. 

Þetta gerðist:

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á drögum að ársreikningi Faxaflóahafna hf. fyrir árið 2025, ásamt trúnaðarmerktum drögum að endurskoðunarskýrslu félagsins sem lögð verður fram samhliða framlagningu ársreiknings fyrir stjórn. IER26010002
    Samþykkt að skila umsögn til stjórnar.

    Gunnar Tryggvason, Friðrik Þór Hjálmarsson, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Theodór Sigurbergsson og Sif Jónsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:

    Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að ársreikningi Faxaflóahafna og endurskoðunarskýrslu fyrir árið 2025. Endurskoðunarnefnd mun skila umsögn til stjórnar.

     

  2. Fram fer kynning á drögum að samstæðuársreikningi SORPU bs. fyrir árið 2025, ásamt trúnaðarmerktum drögum að endurskoðunarskýrslu félagsins sem lögð verður fram samhliða framlagningu ársreiknings fyrir stjórn. IER26010002
    Samþykkt að skila umsögn til stjórnar.

    Jón Viggó Gunnarsson, Þórhallur Hákonarson, Theodór Sigurbergsson og Sif Jónsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Klukkan 11:02 tekur Einar S. Hálfdánarson sæti á fundinum.

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:

    Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að samstæðuársreikningi SORPU bs. og endurskoðunarskýrslu fyrir árið 2025. Endurskoðunarnefnd mun skila umsögn til stjórnar.

     

  3. Fram fer kynning á drögum að ársreikningi Strætó bs. fyrir árið 2025, ásamt trúnaðarmerktum drögum að endurskoðunarskýrslu félagsins sem lögð verður fram samhliða framlagningu ársreiknings fyrir stjórn. IER26010002
    Samþykkt að skila umsögn til stjórnar.

    Jóhannes S. Rúnarsson, Elísa Kristmannsdóttir, Bjarni Már Jóhannesson og Haukur Hauksson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:

    Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að ársreikningi Strætó og endurskoðunarskýrslu fyrir árið 2025. Endurskoðunarnefnd mun skila umsögn til stjórnar.

     

  4. Fram fór umræða um fundi milli funda:
    •    Stjórnarfundur SORPU 11. mars 2026 
    •    Stjórnarfundur Félagsbústaða 12. mars 2026
     

Fundi slitið kl. 12:27

Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson

Sigrún Guðmundsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 16.3.2026 - Prentvæn útgáfa