Menningar- og íþróttaráð - Fundur nr. 24

Menningar- og íþróttaráð

Ár 2026, föstudaginn 6. mars var haldinn 24. fundur menningar- og íþróttaráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 09:05.  Viðstödd voru:  Skúli Helgason formaður, Friðjón R Friðjónsson, Sara Björg Sigurðardóttur og Stefán Pálsson.  Kristinn Jón Ólafsson, Aðalsteinn Haukur Sverrisson og Birna Hafstein varamaður fyrir Kjartan Magnússon tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti. Jafnframt:  Frímann Ari Ferdinandsson áheyrnarfulltrúi ÍBR og Jóna Hlíf Halldórsdóttir áheyrnarfulltrúi BÍL. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Atli Steinn Árnason, Elín Hrefna Ólafsdóttir og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð.  Arnfríður S Valdimarsdóttir tók sæti á fundinum með rafrænum hætti.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 11. febrúar 2026 þar sem fram kemur að á fundi borgarstjórnar 10. febrúar 2026 hafi verið lögð fram tillaga fulltrúa í ungmennaráði Árbæjar og Holta um að hækka frístundastyrk barna og ungmenna.  Tillögunni var vísað til meðferðar menningar- og íþróttaráðs.  MSS26020041

    Samþykkt að vísa tillögunni til meðferðar við gerð fjárhagsáætlunar.

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ráðið þakkar fulltrúa ungmennaráðs Árbæjar og Holta fyrir skilmerkilega tillögu um hækkun frístundastyrks barna og ungmenna.  Ljóst er að tillagan byggir á skýrum lýðheilsurökum og í raun er eini annmarki hennar fjárhagslegs eðlis.  Hækkun styrksins um þriðjung í 100 þúsund krónur fyrir hvert barna kallar á aukin útgjöld borgarsjóðs um sem nemur 400-500 hundruð milljóna króna á ári. Telja fulltrúar samstarfsflokkana að betra færi á að einbeita sér að börnum sem ekki nýta frístundastyrkinn sem eru um 18% barna og koma þeim í virkni og þátttöku. Fulltrúar samstarfsflokkanna telja eðlilegt að vísa tillögunni áfram til fjárhagsáætlunargerðar fyrir næsta ár og það verði viðfangsefni nýrrar borgarstjórnar að vinna með hana að loknum kosningum í vor.

     

    Ragnheiður Gróa Elvars ungmennaráði Árbæjar og Holta og Ása Kristín Einarsdóttir frístundaskrifstofu skóla- og frístundasviðs taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram svar sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs dags. 5. mars 2026 við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um Grímsstaðavör sbr.10. lið fundargerðar menningar- og íþróttaráðs frá 13. febrúar 2026. MIR26020009.

    Theodór Kjartansson frá skrifstofu borgarlögmanns, Rebekka Guðmundsdóttir frá skrifstofu samgangna og borgarhönnunar og Guðbrandur Benediktsson forstöðumaður Borgarsögusafns sátu fundinn undir þessum lið.

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning á Danshúsi í Breiðholti. MIR26030002

    Samþykkt að vísa kynningunni til borgarráðs. 

     

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Rannsóknir sýna fram á að þátttaka barna í skipulögðu í íþrótta- og tómstundastarfi sé einn af verndandi þáttum gegn áhættuhegðun, hefur mikið forvarnargildi og er ein besta leiðin til samfélagslegrar inngildingar barna í nærsamfélaginu. Með því að samtvinna enn betur skóladag barna í viðkvæmri stöðu við skipulagt frístundastarf er betur hægt að vinna með farsæld barnsins eftir að skóladegi lýkur til að tryggja þátttöku og virkni lengur. Danshúsið í Breiðholti er tækifæri til að bjóða upp á fjölnota dansrými fyrir danssenuna, tengja við listabraut í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti ásamt íþróttagreinum sem ekki er framboð til af í hverfinu eins og varnaríþróttir. Markmið er að skapa betra aðgengi og aðstöðu fyrir íþróttir- og listir sem ekki eru til í Reykjavíkurborg í dag samhliða að ná til fleiri barna og ungmenna sem búsett eru í hverfinu.  Kynningunni er vísað til borgarráðs til frekari meðferðar og afgreiðslu.

     

    Ósk Soffía Valtýsdóttir deildarstjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði situr fundinn undir þessum lið.

    • kl. 09:53 tekur Kjartan Magnússon sæti á fundinum og  Birna Hafstein víkur af honum.
    • kl. 10:35 víkur Jóna Hlíf Halldórsdóttir af fundi.
  4. Fram fer kynning á fimleikahúsi í Norðlingaholti. MIR26030003

    Samþykkt að vísa málinu til borgarráðs.

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fyrirhuguð stækkun fimleikahúss í Norðlingaholti er fagnaðarefni, enda mun hún bæta úr mikilli húsnæðisþörf fimleika- og varnaríþrótta í hverfinu. Fulltrúar samstarfsflokkanna lýsa ánægju sinni með framkomnar hugmyndir og telja mikilvægt að þær nái hratt og örugglega fram að ganga.  Kynningunni er vísað til borgarráðs til frekari meðferðar og afgreiðslu.

     

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn styður uppbyggingu að aukinni íþróttastarfssemi Fylkis í Norðlingaholti og teljum brýnt að búið verði vel um það svæði. Hins vegar má benda á að þegar verið er að óska eftir afgreiðslu á máli sem hefur í för með sér mikla og dýra fjárfestingu af hálfu borgarinnar, þá sé æskilegt að það fylgi viðeigandi gögn um kostnað og rekstur ekki einungis teikningar.

     

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:        

    Við samþykkjum að gögnum um stækkun Fylkissels, fimleikahúss Fylkis í Norðlingaholti, verði vísað til borgarráðs til frekari umfjöllunar. Viðræður um stækkun hússins hafa staðið árum saman en án niðurstöðu þar sem málið hefur ekki verið í forgangi hjá vinstri meirihlutanum í borgarstjórn. Vonandi verður nú breyting á og verkin látin tala eins og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa margoft kallað eftir, m.a. með tillöguflutningi. Árið 2023 lögðu borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins til að hafinn yrði undirbúningur að stækkun umrædds fimleikahúss og miðað við að byggingarframkvæmdir hæfust ekki síðar en á árinu 2025 og yrði lokið 2026. Tillögunni var þá vísað frá af fulltrúum Samfylkingar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar. Í skilabréfi stýrihóps um forgangsröðun við uppbyggingu íþróttamannvirkja í Reykjavík, sem samþykkt var af borgarráði í september 2020, var umræddri framkvæmd raðað efst eða númer eitt af átján verkefnum, sem forgangsröðunin náði til. Ekkert bólar þó enn á framkvæmdinni en aðrar framkvæmdir neðar á listanum hafa hins vegar hlotið brautargengi hjá Reykjavíkurborg. Ljóst er að stækkun Fylkissels mun efla vinsælar íþróttagreinar í eystri hverfum borgarinnar og fjölga iðkendum í barna- og unglingastarfi.

    Fylgigögn

  5. Fram fer kynning á stöðu framkvæmda við Vetrargarð í Breiðholti. MIR25100002

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Það er mjög mikilvægt fyrir börn og ungmenni í Reykjavík að Vetrargarðurinn fái áframhaldandi fjármagn til uppbyggingar í fjárfestingaáætlun þannig að verkefnið „Skíðað á skólatíma“ geti kynnt fyrir börnum í borginni töfra útiveru yfir vetrartímann, jafna tækifæra barna til að kynnast skíðaíþróttinni og efla lýðheilsu íbúa. Um er að ræða þrjár skíðabrekkur: Öxlina, aðalbrekku og æfingarbrekku auk einnar sleðabrekku sem munu þjóna ólíkum þörfum allt frá byrjendum til lengra kominna. Búið er að gróðursetja tré fyrir skjólbelti en landmótun er lokið að kalla. Verið er að vinna í hönnun á lýsingu sem þjónar svæðinu en truflar ekki íbúana. Færanleg snjóframleiðsla og þarfalýsing fyrir lyftukaupum eru næst á dagskrá en með snjóframleiðslu mun opnunardögum fjölga eins og reynslan er í Ártúnsbrekku á þessu ári.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram tillaga faghóps að úthlutun styrkja úr borgarsjóði á sviði íþrótta- og æskulýðsmála 2026 dags. 5. mars 2026.  MIR26030001. 

    Samþykkt.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:40.

Skúli Helgason Kristinn Jón Ólafsson

Sara Björg Sigurðardóttir Stefán Pálsson

Aðalsteinn Haukur Sverrisson Friðjón R. Friðjónsson

Kjartan Magnússon

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningar- og íþróttaráðs 06.03.2026 - Prentvæn útgáfa