Umhverfis- og skipulagsráð
Ár 2026, miðvikudaginn 11. mars, kl. 9:00 var haldinn 373. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Líf Magneudóttir, Alexandra Briem, Andrea Jóhanna Helgadóttir, Kjartan Magnússon, Hjálmar Sveinsson og áheyrnarfulltrúarnir Birkir Ingibjartsson og Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Hildur Björnsdóttir og Þorvaldur Daníelsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Brynjar Þór Jónasson, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Sunna Stefánsdóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 26. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að veita heimild fyrir áframhaldandi undirbúningi, verkhönnun og gerð útboðsgagna aðgerða til bæta umhverfi við Mjóddina í samræmi við meðfylgjandi forhönnun.
Frestað. USK25050042
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna- og borgarhönnunar dags. 26. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að veita heimild fyrir áframhaldandi undirbúningi, verkhönnun og gerð útboðsgagna vegna eftirfarandi umferðaröryggisaðgerða:
a. Gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar: Gönguþveranir upphækkaðar í hæð gangstétta í framhjáhlaupum, b. Reykjavegur við Hofteig og Kirkjuteig: Hraðalækkandi aðgerðir og bætt öryggi fyrir gangandi, c. Úlfarsbraut-Urðarbrunnur: Hraðalækkandi aðgerð til að halda niðri hraða framan við skóla og við gangbraut, d. Holtavegur við Efstasund: Gerð upphækkaðrar gönguþverunnar, e. Snekkjuvogur við Eikjuvog: Aðgerð á gatnamótum til að tryggja sjónlengdir og örugga gönguþverun, f. Flúðasel: Kreppa beygju svo bílstjórar þurfi að hægja betur á sér við fjölfarna gönguleið skólabarna, g. Dyngjuvegur við Langholtsveg: Eyra breikkað til að bæta sýn á gönguþverun og í gatnamótum. Eitt bílastæði fjarlægt vegna aðgerðanna, h. Eskitorg við Litlahlíð: Upphækkuð gönguþverun og bogar krepptir til að lækka aksturshraða yfir þverunina, i. Lambhagavegur við Mímisbrunn: Hraðalækkandi aðgerð til að tryggja umferðaröryggi í gatnamótunum, j. Múlar: i. Síðumúli 10 og 11 Upphækkuð gangbraut og lýsing, ii. Selmúli/Ármúli: Upphækkuð gangbraut og lýsing á Selmúla á gatnamótum við Ármúla, iii. Ármúli 31 og 40: Upphækkuð gangbraut, lýsing og miðeyja, iv. Síðumúli/Ármúli/Vegmúli : Miðeyja á Síðumúlatengingunni á gatnamótunum, v. Ármúli/Síðumúli: Bæta lausn fyrir gangandi á borgarlandi milli Ármúla 30 og Síðumúla 15.- Kl. 9:05 tekur Hjördís Sóley Sigurðardóttir sæti á fundinum.
- Kl. 9:08 aftengist Þorvaldur Daníelsson og tekur sæti á fundinum.
- Kl. 9:10 aftengist Hildur Björnsdóttir og tekur sæti á fundinum.Samþykkt.
Carl Henrik Larsson og Bjarni Rúnar Ingvarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26020295
Lögð fram svohljóðandi bókun Kjartans Magnússonar, óháðs fulltrúa:
Umræddar umferðaröryggisaðgerðir eiga allar rétt á sér. Ánægjulegt er að samkvæmt tillögunni er fyrirhugað að ráðast í aðgerðir í því skyni að auka umferðaröryggi á Hamrastekk á árinu. Þannig kemst til framkvæmda tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um málið frá liðnu hausti. Breytingin er tvímælalaust til bóta en undirritaður hefði þó kosið að formleg gangbrautarmerking yrði sett upp á umræddum stað og lýsing bætt.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufunda skipulagsfulltrúa dags. 3. mars 2026. USK22120094
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 3. mars 2026. USK24070166
Fylgigögn
-
Fram fer kynning í trúnaði um samantekt valnefndar um tillögur sem bárust vegna hugmyndaleitar rammaskipulagsgerðar fyrir svæði Halla og nágrenni í Úlfarsárdal. Trúnaður ríkir fram að verðlaunaafhendingu.
Kynnt.Drífa Árnadóttir, Haraldur Sigurðsson og Margrét Lára Baldursdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 9:54 tekur Guðmundur Benedikt Friðriksson sæti á fundinum. USK25080243
Bókun Kjartans Magnússonar, óháðs fulltrúa er færð í trúnaðarbók.
-
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar að nýju deiliskipulagi fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar, frá vegamótum við Bæjarháls að sveitarfélagsmörkum við Mosfellsbæ nálægt Hólmsá. Megintilgangur tvöföldunar Suðurlandsvegar er að auka umferðaröryggi allra fararmáta og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg með því að aðskilja akstursstefnur. Tvöföldun vegarins á þessum vegkafla er hluti af stærra verkefni sem er breikkun Suðurlandsvegar frá Hádegismóum í Reykjavík að Hveragerði. Samkvæmt deiliskipulaginu er gert ráð fyrir 2+2 stofnvegi frá Bæjarhálsi að sveitafélagsmörkum við Mosfellsbæ nálægt Hólmsá. Vegtengingum er fækkað frá því sem nú er og gert ráð fyrir heildstæðu stígakerfi fyrir gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendur. Útfærsla í deiliskipulagi miðar við gatnamót í plani, í samræmi við fyrsta og annan áfanga framkvæmdarinnar. Gögn deiliskipulagsins eru greinargerð Eflu, dags. dags. 23. janúar 2025, br. 12. janúar 2026, deiliskipulagsuppdráttur Eflu (1:2000) og þrír skýringaruppdrættir Eflu (1:800), dags. 15. janúar 2025, br. 12. janúar 2026. Tillagan var auglýst frá 3. júlí 2025 til og með 15. ágúst 2025. Athugasemdir og umsagnir bárust. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar, dags. 27. janúar 2026. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. febrúar 2026.
Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2026.
Vísað til borgarráðs.Helga Rún Guðmundsdóttir og Hrafnhildur Brynjólfsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK23060119
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á hugmyndasamkeppni um kjarnasamfélög.
Þórhildur B. Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25060141
- Kl. 10:47 víkur Hjördís Sóley Sigurðardóttir af fundi.
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 11. nóvember 2025 ásamt kæru nr. 169/2025, dags. 31. október 2025, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar steyptan garðvegg og álagningu dagsekta. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 22. desember 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 27. febrúar 2026. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 3. október 2025 um að afturkalla ekki þá ákvörðun embættisins frá 2. júlí 2025 að gera kærendum að færa steyptan garðvegg á lóð þeirra til fyrra horfs. Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 16. október 2025 um álagningu dagsekta að upphæð 25.000 kr. vegna garðveggjar á lóð Bergstaðastrætis 78. USK25110153
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2602015, dags. 6. febrúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur dagsett 13.8. 2025, að veita byggingarheimild fyrir breytingu á notkun bílskúranna og útliti þeirra að Hjarðarhaga 13. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 2. mars 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða á grundvelli hinnar kærðu ákvörðunar byggingarfulltrúa. USK26020126
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 26. janúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2601013, dags. 24. janúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun borgarinnar um útgáfu á byggingarleyfi í mars 2025 og varðar framkvæmdir á húsnæðinu að Þverholti 18. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður umhverfis- og auðlindamála dags. 17. febrúar 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða á grundvelli hinnar kærðu ákvörðunar byggingarfulltrúa. Jafnframt er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 3. mars 2026. USK26010382
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um sparkvöll á Klambratúni, sbr. 38. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 5. mars 2025. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og fasteigna dags. 15. febrúar 2026.
Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartans Magnússonar, óháðs fulltrúa. USK25030044Lögð fram svohljóðandi bókun Kjartans Magnússonar, óháðs fulltrúa:
Undirritaður lýsir yfir óánægju sinni með að fulltrúar vinstri meirihlutans vísi frá tillögu um að ráðist verði í umbætur á sparkvelli á Klambratúni. Unglingar í hverfinu hafa óskað eftir því árum saman að girðing verði reist í kringum sparkvöllinn og hann jafnframt lýstur upp.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að stemma stigu við hraðakstri bifhjóla á göngustígum sbr. 22. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 9. apríl 2025. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 3. febrúar 2026.
Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartans Magnússonar, óháðs fulltrúa. USK25040162Lögð fram svohljóðandi bókun Kjartans Magnússonar, óháðs fulltrúa:
Undirritaður lýsir yfir furðu sinni yfir því að fulltrúar vinstri meirihlutans vísi frá tillögu um að gripið verði til aðgerða í því skyni að stemma stigu við ólöglegum og hættulegum hraðakstri bifhjóla og á göngu- og hjólreiðastígum borgarinnar. Mikil brögð eru að slíkum hraðakstri og veldur hann verulegri slysahættu, ekki síst fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur eins og dæmin sanna.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um þvott og sópun stofnbrauta. Tillagan var lögð fram á fundi borgarráðs, sbr. 4 liður, dags. 17. febrúar 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs skrifstofu borgarlandsins. MSS26020084
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um kaup á ryksugubíl. Tillagan var lögð fram á fundi borgarráðs, sbr. 35. liður, dags. 26. febrúar 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs skrifstofu borgarlandsins. MSS26020116
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga Kjartans Magnússonar, óháðs fulltrúa:
Lagt er til að ráðist verði í viðgerð á gangstétt við Suðurgötu. Gangstétt við götuna er eydd, sprungin og ójöfn á köflum.
Frestað. USK26030197
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga Kjartans Magnússonar, óháðs fulltrúa:
Lagt er til að við hönnun Miklubrautarganga verði miðað við að þau rúmi sex akreinar, með 3+3 útfærslu, í því skyni að auka afkastagetu ganganna og bæta umferðarflæði. Greinargerð fylgir tillögu.
Frestað. USK26030198
- Kl. 11:02 víkur Hildur Björnsdóttir af fundi.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 11:07
Líf Magneudóttir Alexandra Briem
Andrea Helgadóttir Hjálmar Sveinsson
Kjartan Magnússon Þorvaldur Daníelsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 11. mars 2026