Skóla- og frístundaráð
Ár 2026, 9. mars, var haldinn 309. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.15.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Helga Þórðardóttir formaður (F), Friðjón R. Friðjónsson (D), Líf Magneudóttir (V), Marta Guðjónsdóttir og Stefán Pálsson (V). Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Árelía Eydís Guðmundsdóttir (B) og Tinna Helgadóttir (P). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Albína Hulda Pálsdóttir, foreldrar barna í leikskólum; Andrea Sigurjónsdóttir, starfsfólk í leikskólum; Guðjóna Eygló Friðriksdóttir, skólastjórar í grunnskólum; Guðrún Gunnarsdóttir, leikskólastjórar; Guðrún Kaldal, framkvæmdastjórar frístundamiðstöðva; Indriði Nökkvi Þóreyjarson, Reykjavíkurráð ungmenna og Kristín Björnsdóttir, kennarar í grunnskólum. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Frans Páll Sigurðsson, Hjörtur Ágústsson, Ingunn Ásta Sigmundsdóttir, Ólafur Brynjar Bjarkason, Ragna Sigrún Kristjónsdóttir, Soffía Pálsdóttir og Eygló Traustadóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning og umræða um innra mat í skóla- og frístundastarfi. SFS26020152
Elínrós Benediktsdóttir og Sigrún Harpa Magnúsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Lögð fram aðgerðaáætlun skóla- og frístundasviðs vegna Stefnu um fjölmenningarborgina Reykjavík 2026-2030, dags. 5. mars 2026 ásamt bréfi mannréttindaskrifstofu, dags. 2. janúar 2026 og Stefnu um fjölmenningarborgina Reykjavík 2026-2030, dags. í desember 2025.
Samþykkt. MSS25110035
Íris Björk Kristjánsdóttir og Dagbjört Ásbjörnsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Skóla- og frístundasvið hefur frá 2014 haft stefnu um þjónustu við börn og fjölskyldur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Það er fagnaðarefni að ný stefnumótun styrkir Reykjavík í stöðu sinni sem fjölmenningarborg. Stefnumótunin tryggir að inngildandi nálgun og fjölmenningarleg gildi endurspeglist í öllu starfi. Aðgerðaáætlun skóla- og frístundasviðs í þessum málaflokki endurspeglar samhljóm milli þessarar stefnumótunar og Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Áhersla er lögð á aukna menningarnæmni, kennslu í íslensku sem annað mál, valdeflingu foreldra og að skapa vettvang og tækifæri fyrir aukna félagsfærni, tengslamyndun og eflandi samskipti barna í skóla- og frístundastarfi.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 26. febrúar 2026:
Lagt er til að nemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs verði lögð af.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt með fjórum atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn atkvæði skóla- og frístundaráðsfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðsluna. SFS26020154
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks lýsa skilningi á þeim sjónarmiðum sem liggja að baki tillögunni en telja jafnframt miður að ekki hafi tekist að finna leið til að þróa eða breyta fyrirkomulagi nemendaverðlauna þannig að þeir sem standa að þeim treysti sér áfram til að veita þau. Æskilegt hefði verið að kanna betur hvort hægt væri að aðlaga fyrirkomulagið þannig að halda mætti í þann jákvæða hvata sem slík verðlaun geta skapað. Mikilvægt er að skólasamfélagið leiti áfram leiða til að hvetja nemendur til góðra verka, námsárangurs og jákvæðrar þátttöku í skólastarfi.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúinn Marta Guðjónsdóttir leggur fram svohljóðandi bókun:
Markmið nemendaverðlaunanna var að hvetja nemendur í grunnskólum til að leggja sig enn betur fram í námi, félagsstarfi eða í skapandi starfi. Verðlaunin hafa verið jákvæð hvatning fyrir nemendur og er það miður að lagt sé til að þau verði aflögð m.a. með rökum um of mikinn kostnað. Nær hefði verið að hagræða á öðrum sviðum en á kostnað grunnskólabarna í borginni.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 27. febrúar 2026:
Lagt er til að fjölda barna í leikskólanum Klömbrum verði breytt úr 75 börnum í 95 börn.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs. SFS26030033
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 27. febrúar 2026:
Lagt er til að fjölda barna í leikskólanum Klettaborg verði breytt úr 71 barni í 96 börn.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs. SFS26030034
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 2. mars 2026:
Lagt er til að fjölda barna í leikskólanum Jörfa verði breytt úr 92 börnum í 117 börn.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs. SFS26030035
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 11. febrúar 2026, þar sem svohljóðandi tillögu fulltrúa í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, sbr. 6. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 10. febrúar 2026, er vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela skóla- og frístundaráði að veita ungmennum á aldrinum 13-18 ára, 15 þúsund króna styrk til bókakaupa árlega. Tillagan kæmi til framkvæmda 1. janúar 2027.
Greinargerð fylgir.
Tillagan er felld. MSS26020043
Magnús Sigurður Jónasson og Ása Kristín Einarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Samstarfsflokkarnir hafa kannað hver kostnaðurinn væri af því að veita ungmennum á aldrinum 13-18 ára, 15 þúsund króna styrk til bókakaupa árlega. Kostnaðurinn væri um það bil 110 milljónir. Samstarfsflokkarnir taka undir með ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða um að það sé mikilvægt að hvetja ungmenni til yndislesturs. Í samstarfsyfirlýsingu Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna segir „Auknum fjármunum verður veitt til skólabókasafna til að stórefla og glæða lestraráhuga barna.“ Síðastliðið haust var samþykkt tillaga um að auka fjármagn til skólabókasafna. Haldin var Barnabókamessa í samstarfi við Félag íslenskra bókaútgefenda. Á messunni var lögð áhersla á að kynna nýjar íslenskar barna- og ungmennabækur fyrir fulltrúum skólasafna grunnskóla og leikskóla borgarinnar og þeim tryggt viðbótarfjármagn til að kaupa nýjar bækur að eigin vali á messunni fyrir bókasöfn starfsstöðva sinna á sérstöku kynningarverði. Samstarfsflokkarnir telja þessa leið vænlegri þ.e. er að bæta bókakost skólabókasafna borgarinnar og að það muni nýtast fleiri ungmennum frekar en það að veita hverju og einu ungmenni styrk til bókakaupa.
Áheyrnarfulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna leggur fram svohljóðandi bókun:
Leiðinlegt er að tillaga fulltrúa ungmennaráðs Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða um styrki til bókakaupa sé neitað. Slíkur styrkur er mikilvægur liður í að hvetja til lesturs ungmenna. Það að geta keypt sér sína eigin bók er mikilvægt sérstaklega ef maður finnur bók sem mann langar að lesa oft. Oft þurfa ungmenni líka að kaupa sínar eigin námsbækur og getur það verið mjög dýrt. Ef styrkur til þessara kaupa er lagður á þá mun það létta til muna á fátækum fjölskyldum.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 4. mars 2026, um breytingar á reglum um skólahverfi, umsókn og innritun í grunnskóla Reykjavíkurborgar ásamt reglum með merktum breytingum og gildandi reglum frá 2. mars 2023.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Skóla- og frístundaráðsfulltrúinn Marta Guðjónsdóttir situr hjá við afgreiðsluna. Vísað til borgarráðs. SFS26030038
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 5. mars 2026, um afgreiðslu frá fundi borgarráðs 5. mars 2026, á tillögu um breytingar á reglum um leikskólaþjónustu. SFS25010095
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 2. mars 2026, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um lista yfir leikskóla og grunnskóla sem loka vegna viðhaldsframkvæmda, sbr. 9. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 9. febrúar 2026. SFS26020043
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Það vekur áhyggjur hversu margar skólabyggingar í Reykjavík eru lokaðar eða í verulegum vanda. Ljóst er að viðhald og eftirlit með fasteignum borgarinnar hefur ekki verið nægjanlegt á undanförnum árum. Mikilvægt er að brugðist verði við með markvissum hætti, bæði með auknu og skipulegra viðhaldi og endurskoðun á fyrirkomulagi eignaumsjónar borgarinnar, þannig að tryggt sé að skólastarf geti farið fram í öruggu og viðeigandi húsnæði.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúinn Marta Guðjónsdóttir leggur fram svohljóðandi bókun:
Listinn er langur yfir skólabyggingar í Reykjavík sem þarfnast viðgerða og framkvæmda. Listinn ber vitni um slælegt eftirlit með þessum mikilvægu fasteignum Reykjavíkurborgar og oft á tíðum vekur furðu hversu lengi sumar framkvæmdir hafa staðið yfir. Sem dæmi hefur leikskólinn Árborg í Árbæ verið lokaður síðan í október 2022 og á yfirstandandi kjörtímabili var um tveggja ára skeið ekkert gert fyrir það húsnæði. Fleiri slíkar sögur eru til, hér mætti nefna að hluta til Hagaborg í Vesturbænum og Grandaborg var meira og minna lokaður frá haustinu 2021 þar til nýlega að hann var opnaður á ný. Óráðsían og vandræðagangurinn í tengslum við Brákarborg að Kleppsvegi 150-152 liggur fyrir, kostnaðurinn þar er kominn á fjórða milljarð króna, leikskólabygging sem Reykjavíkurborg fékk Grænu skófluna fyrir. Fyrir utan óbærilegan kostnað við þessa slæmu stjórn á eftirliti, viðhaldi og framkvæmdum á vegum borgarinnar, hefur öll þessi sorgarsaga kostað mikið umstang og vesen fyrir starfsfólk viðkomandi skólastofnana, börn í leikskóla og nemendur í grunnskóla ásamt því að skapa áskoranir fyrir mikinn fjölda aðstandenda leik- og grunnskólabarna. Mál er að linni og nauðsynlegt að ferskir vindar komist að í Ráðhúsi Reykjavíkur svo að tryggja megi trausta og skilvirka grunnþjónustu, þar á meðal á sviði byggingarmála borgarinnar.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS24080154
Kl. 15.16 víkur Guðrún Kaldal af fundinum.
-
Skóla- og frístundaráðsfulltrúinn Marta Guðjónsdóttir leggur fram svohljóðandi tillögu:
Ekki liggur fyrir hvort nemendum Ölduselsskóla sem misst hafa úr námi vegna framkvæmda og myglu í skólabyggingunni verði bættir upp þeir dagar sem þeir hafa misst úr kennslu. Því er lagt er til að nemendum Ölduselsskóla verði bætt upp sú kennsla og skóladagar sem fallið hafa niður enda er það í samræmi við grunnskólalög. Þar er kveðið á um að skóladagar skulu eigi vera færri en 180 á hverju skólaári. Þá kemur jafnframt fram í lögunum að nemendum sé tryggð viðbótarkennsla sem nemur frávikum innan sama skólaárs.
Frestað. SFS26030058
-
Áheyrnarfulltrúi kennara í grunnskólum leggur fram svohljóðandi tillögu:
Fulltrúi grunnskólakennara leggur til að skóla- og frístundaráð fái kynningu á gervigreindarlausninni Viskubrunnur og kanni möguleika á því að Reykjavíkurborg kaupi áskrift fyrir alla grunnskóla borgarinnar að lausninni. Lausnin er til þess fallin að gera kennurum kleift að ná fram töluverðum tímasparnaði við lausn ýmissa verkefna sem þeir þurfa að inna af hendi en forsvarsmenn Viskubrunns eru kennarar sem hafa útbúið fjölmargar útfærslur á viðfangsefnum sem gagnast kennurum og eiga beint við grunnskólastarf. Þeir hafa einnig verið í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu við útfærslu á Nemendagrunni.
Frestað. SFS26030059
-
Skóla- og frístundaráðsfulltrúinn Marta Guðjónsdóttir leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Óskað er sundurliðaðra upplýsinga eftir grunnskólum um fjölda þeirra kennslustunda á þessu skólaári sem falla niður vegna forfalla kennara.
SFS26030060
-
Áheyrnarfulltrúi foreldra barna í leikskólum leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Voru foreldrar leikskólabarna í Reykjavík kölluð til samráðs þegar vinna Stýrihóps um umbætur í náms- og starfsumhverfi leikskóla var í gangi? Hvernig voru þeir foreldrar valdir? Athugið að ekki er beðið um persónugreinanlegar upplýsingar en æskilegt væri að fá upplýsingar um aldur og fjölda barna, starfsvettvang, fjölskyldugerð og hverfi. Hvernig var samráði við foreldra barna með stuðning háttað?
SFS26030057
Fundi slitið kl. 15:28
Helga Þórðardóttir Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Friðjón R. Friðjónsson Líf Magneudóttir
Marta Guðjónsdóttir Stefán Pálsson
Tinna Helgadóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 9. mars 2026