Hlíðar - Endurgerð gatna - Langahlíð og Drápuhlíð
Hvað verður gert?
Verkinu er skipt upp í 5 verkáfanga. Markmið áfangskiptingar er að tryggja rekstur veitukerfa Veitna og aðgengi umferðar inn í og gegnum hverfið.
Verkáfangi 1
Lagning hitaveitustofna í gangstétt austan megin í Lönguhlíð í skrefum frá suðri til norðurs og í gangstétt í Drápuhlíð. Þvera þarf akrein í hringtorgi og tengja við núverandi hitaveitustofna í stokki í Eskitorgi. Fráveitu, vatnsveitu og hitaveitulagnir þvera austari akrein Lönguhlíðar. Nýtt styrktarlag og burðarlag lagt í miðdeili Lönguhlíðar og malbikað sem hjáleið. Frágangur á steyptri gangstétt og hjólastíg austan megin í Lönguhlíð.
Verkáfangi 2
Lagning fráveitu, vatnsveitu og hitaveitu yfir Miklubraut. Bráðabirgðatengingar á hitaveitu, nýr hitaveitustofn tengdur norðan Miklubrautar og hitaveitustokkur aflagður. Fráveita og vatnsveita lögð í götu í skrefum frá norðri til suðurs í vestari akrein Lönguhlíðar að Drápuhlíð. Nýtt styrktar- og burðarlag í götu og hjólastíg og frágangur á malbiki og hjólastíg.
Verkáfangi 3
Endurnýjun á götu, fráveitu og vatnsveitu í Drápuhlíð.
Verkáfangi 4
Fráveita og vatnsveita lögð í götu í skrefum frá norðri til suðurs í vestari akrein Lönguhlíðar frá Drápuhlíð að Eskitorgi. Nýtt styrktar- og burðarlag í götu og hjólastíg og frágangur á malbiki og hjólastíg.
Verkáfangi 5
Frágangur á yfirborði í Lönguhlíð, hellulagðar upphækkanir á gatnamótum, steyptar gangstéttar, blágrænar ofanvatnslausnir og græn svæði.
Hvernig gengur?
Maí 2026
Verkið er í undirbúningi
Febrúar 2026
Framkvæmdir hafa verið boðnar út og sáu Veitur um útboð. Opnun tilboða er 16. mars 2026.