Elliðaárdalur Stígur í stað stokks

Gerð þriggja göngu- og hjólabrúa yfir Elliðaár á þeim stað sem áður var steyptur lagnastokkur.
Mars 2026 - Des 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Yfirlitsmynd

Hvað verður gert?

Verkið felst í gerð þriggja göngu- og hjólabrúa yfir Elliðaár á þeim stað sem áður var steyptur stokkur með stofnlögnum hitaveitu. Innifalið í verkinu er viðgerðarvinna við undirstöður stokksins sem notaðir verða sem brúarstöplar í verkinu. Í verkinu felst jafnframt gerð göngu- og hjólastígs sem tengist núverandi stígum beggja vegna árinnar og áningarstaður fyrir gangandi og hjólandi.

Hvernig gengur?

Apríl 2026

Verk gengur vel og er á áætlun, unnið hefur verið við viðgerðir á brúarstólpum og steyptar á þá nýjar festingar sem munu taka við forsteyptum einingum brúargólfsins.  Gert er ráð fyrir að fyrstu einingar verði hífðar á í lok apríl en þær koma á austustu brúna sem liggur næst Rafstöðvarveginum.

Febrúar 2026

Verk er að fara í gang og má gera ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í lok febrúar eða byrjun mars.

Hver koma að verkinu?

Verkefnastjóri - Reykjavíkurborg

Gunnar Atli Hafsteinsson

Verktaki - ábyrgðaraðili merkinga

Ístak hf.

Eftirlitsaðili framkvæmda

VSÓ- Kristján Ingi Gunnlaugsson
Last updated 27.04.2026