KR- fjölnotahús

Upplýsingasíða vegna fjölnota íþróttahúss á svæði KR í Vesturbæ Reykjavíkur.
Áætluð verklok 31.des 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Yfirlitsmynd af svæði KR í Frostaskjóli

Hvað verður gert?

Fyrirhugað er að reisa 6.900 m2 fjölnota íþróttahús á svæði KR í Vesturbæ Reykjavíkur. Byggingin verður inni á miðju íþróttasvæði KR milli keppnis- og æfingavellar. Miðað er við að húshlutinn sem hýsir knattspyrnuæfingar verði stálgrindarhús. Í stálgrindarhúsinu er gert ráð fyrir að hægt verði að æfa knattspyrnu innandyra á gervigrasvelli og er miðað við að hægt sé að keppa mótsleiki í 8 manna bolta. 

Eins og heitið gefur til kynna er byggingin fjölnota þó knattspyrnuæfingar séu rúmfrekasti þáttur væntanlegrar starfsemi í byggingunni, einnig er gert ráð fyrir fjölnota sölum fyrir m.a. taekwondo, skák, pílu, tónlistaskóla o.fl., auk funda- og samkomuhalds af ýmsum toga.  Í hliðarbyggingu hússins er gert ráð fyrir skrifstofurýmum, lyftingarsal, fundarsölum og öðrum rýmum sem tengjast starfsemi hússins.

Hvernig gengur?

Febrúar 2026

Byggingaleyfi hefur verið gefið út og verktaki er byrjaður að koma fyrir aðstöðu fyrir starfsmenn.

Janúar 2026

Eykt ehf mun byrja gröft fyrir fjölnotahúsinu í lok janúarmánuðar. Viðræður um endanlega útfærslu gengur vel og á næstu dögum munu hönnuðir leggja inn teikningar og gögn til byggingafulltrúa.

Nóvember 2025

Undanfarna daga hafa verkkaupi og framkvæmdaraðili verið að ganga frá formlegum atriðum sýn á milli.

Núna á næstu dögum mun Eykt ehf byggingafélag taka við rekstri framkvæmdasvæðis, hefja á aðstöðusköpun og í framhaldi taka næstu skref eins og að merkja byggingasvæðið og huga að öryggi vegfarenda.

Hverjir koma að verkinu?

Verkkaupi Reykjavíkurborg

Verkefnastjóri - nýbyggingar
Kristján Sigurgeirsson

Framkvæmdaraðili Eykt ehf

Eykt ehf sér um aðalhönnun framkvæmdar

Arkitektar

VA arkitektar ehf
Last updated 24.03.2026