Gleðigangan 2023

Gleðigangan 2022

Gleðigangan, hápunktur Hinsegin daga, fer fram á morgun laugardaginn 12. ágúst.

Gangan fer af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega klukkan 14.00. Gengið verður frá Hallgrímskirkju eftir Skólavörðustíg, Laugavegi, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuvegi. Bílaumferð fer til hægri inn Skothúsveg en gönguhópar ganga áfram inn Sóleyjargötu. Öll enda svo í Hljómskálagarðinum þar sem útitónleikar taka við.

Í göngunni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín. Gleðigangan er í senn kröfuganga hinsegin fólks, sem kallar eftir jafnrétti, vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, sem og vettvangur til að fagna því sem hefur áunnist í baráttunni.

Á hverju ári mæta gestir og gangandi í miðborgina til að fylgjast með Gleðigöngunni. Hægt verður að fylgjast með göngunni meðfram gönguleiðinni auk þess sem boðið verður upp á beint streymi í Hljómskálagarðinum meðan á göngunni stendur. Í Hljómskálagarði verður sérstakur aðgengispallur fyrir þau sem á þurfa að halda.

Upplýsingar um götulokanir vegna Gleðigöngunnar 12. ágúst 2023

Heimasíða Hinsegin daga