Einn af 13 bræðrum á fjöllum

Fulltrúi fólksins hjá borginni að þessu sinni er einungis í hlutastarfi. Hann veitir borginni liðsauka á aðventunni en á Þrettándanum 6. janúar lætur hann af störfum og hverfur í heilt ár.

Stekkjastaur eins og hann er kallaður kemur fyrstur jólasveinanna til starfa þann 12. desember. Hann er einn af 13 bræðrum sem allir helga sig börnum einn dag á ári og gefa af sér í borg og bæ á þessum árstíma. Hann segir að þeir bræður týnist til byggða 13 dögum fyrir jól og á eftir honum komi þeir hver af öðrum; Giljagaur, Stúfur, Þvörusleikir, Pottasleikir, Askasleikir, Hurðaskellir, Skyrgámur, Bjúgnakrækir, Gluggagægir, Gáttaþefur, Ketkrókur, Kertasníkir.

„Við höfum gert þetta um aldir við bræður og reyndar systur okkar líka þótt um þær hafi ríkt ákveðin þöggun í feðraveldinu. Við erum af tröllakyni og lifum lengur en gengur og gerist. Fyrst sóttum við til byggða til að draga björg í bú í hellinn okkar, stálum hangiketi, kertum og smjöri og hrelldum fólk með hrekkjum og látum.  En svo áttuðum við okkur á því að sælla er að gefa en þiggja,“ segir Stekkjastaur og horfir álútur og hugsi niður fyrir sig.   

Hann bætir við að upp úr aldamótum 1900 hafi fólk farið að skilja eftir góðgæti handa þeim og þá hafi jólasveinar og meyjur tekið upp á því að kæta börnin í staðinn. „Nú er þetta eintóm tilhlökkun að fara til byggða og gleðja börnin og taka þátt í jólahátíðinni. Og svo fáum við líka greitt fyrir að skemmta gestum og gangandi út um alla borg. Launin notum við svo til að birgja okkur upp af alls kyns góðgæti til að færa systkinum okkar, sérstaklega henni Flotsokku sem er mikill sælkeri, foreldrunum þeim Grýlu og Leppalúða svo ekki sé minnst á jólaköttinn en hann er sísvangur“.

Stekkjastaur er tíðrætt um allar þær breytingar sem hafa orðið eins og t.d. að nú sé allt svo vel upp lýst. Hann hrósar sérstaklega borgaryfirvöldum fyrir fallegu jólaljósin og þá ekki síst  ljósadýrðinni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þessi jól. „Já rafmagnið hefur breytt ásýnd bæja og sveita og ólíkt þægilegra að rata en um leið er oft erfiðara að komast óséður frá húsum þegar búið er að setja í skóna í gluggum,“ segir Stekkjarstaur og glottir.

Þegar hann fer yfir lífshlaup sitt segir hann jafnrétti kynja vera einu stærstu breytinguna sem hann hafi upplifað á sinni jólasveinatíð. Þær systur Sledda og Redda, Flotsokka og Leppatuska séu orðnar ansi atkvæðamiklar í jólagjafadreifingunni.  „Og Grýla er enn ráðríkari en hún var. Hún fari nú með þeim til byggða og ráðskist þá mjög og rassakassast með þá bræður, ekki síst vill hún ráða því hvernig við eyðum þeim aur sem fæst fyrir skemmtanir. Og svo bætir hann við hvíslandi að þeir séu að safna sér fyrir snjallsjónvarpi. „Það er ljósleiðari ekki svo fjarri Grýluhelli og hvað er ein sjóræningatenging milli vina“?

Stekkjastaur segir að stundum sé hægt að sjá þeim hjónum, Grýlu og Leppalúða, bregða fyrir í bænum. „Sér í lagi hanga þau við stóra ljósajólaköttinn. Grýla segir augnsvipinn og stærðina alveg þá sömu og á alvöru jólakettinum heima í fjöllunum. Hún er fjandi glöð yfir vinsældum kattarins og segir að hann sé nú ekki eins slæmur og menn haldi. Ég segi nú bara eins og unga fólkið, no comment.“ 

Stekkjastaur er að verða órólegur eftir langa helgi í göngu til byggða og við að setja í skóinn. Hann er að ræða við fólkið hjá Borginni okkar um hvar hann fái greitt og ekki hefur hann tíma til að hangsa. Stekkjastaur vill nota myndina af honum sem notuð er í jólaleik borgarinnar en veglegir vinningar eru í boði fyrir þau sem finna jólavættina í borginni og fara í vinningspottinn. Að lokum vildi Stekkjastaur óska öllum gleðilegra jóla, sér í lagi öllum börnum, og fyrir hönd þeirra bræðra allra. Hann bað líka um að vísurnar hans Jóhannesar úr Kötlum fylgdi viðtalinu. „Þær eru svo helvíti sniðugar,“ segir Stekkjastaur og laumast burt.

#fólkiðokkaríborginni #Fólkiðokkar #Fólkiðíborginni #hittumstáworkplace