Ný menningarstefna borgarinnar, List og menning í Reykjavík 2030, var samþykkt í borgarstjórn 16. nóvember. Einn meginþráður stefnunnar er að borgarbúar hafi jöfn tækifæri til að njóta menningar og lista bæði sem þátttakendur og neytendur.
Menningarstefna Reykjavíkurborgar 2021-2030
Hin nýsamþykkta stefna byggir á víðtæku samráði við fulltrúa allra listgreina, menningarstofnana og félaga sem borgin styrkir. Auk þess fór hún í opið samráðsferli í sumar þar sem allir gátu sent inn athugasemdir. Stefnan leysir af hólmi eldri stefnu frá árinu 2014.
Annað meginstef stefnunnar felst í því að Reykjavík vilji vera þekkt sem menningarborg og laða að sér ferðamenn sem vilja upplifa reykvíska list og menningu. Lögð er áhersla á hverfamenningu og að öll hverfi verði suðupottur menningar og lista.
Þá er því haldið til haga að listir séu mikilvæg atvinnugrein sem fjölmargir starfi við. Í borginni eigi að vera góðar aðstæður til listsköpunar og listafólki eigi að þykja gott að búa og starfa í Reykjavík.
Í bókun fulltrúa meirihluta borgarstjórnar segir að stefnan brýni borgaryfirvöld til að leggja metnað í að skapa sem bestar aðstæður fyrir listsköpun og öflugt menningarstarf. Stefnan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum nema einu, þar sem fulltrúi Miðflokksins sat hjá við afgreiðslu málsins.
Með stefnunni fylgir aðgerðaáætlun til næstu þriggja ára með kostnaðarmati, tímasetningum og mælikvörðum um árangur. Menningar- og ferðamálasvið borgarinnar ber ábyrgð á innleiðingu stefnunnar en undir hatti þess eru allar menningarstofnanir, menningarverkefni og hátíðir borgarinnar.