Fellaskóli og Laugalækjarskóla áfram í Skrekk

""

Sjö grunnskólar kepptu á fyrsta undanúrslitakvöldi Skrekks í Borgarleikhúsinu í gærkvöld.

 

Skólarnir sem stigu á svið með fjölbreytt atriði voru Fellaskóli, Landakotsskóli, Langholtsskóli, Laugalækjarskóli, Norðlingaskóli, Réttarholtsskóli og Ölduselsskóli. 180 ungmenni úr þessum skólum tóku þátt í flutningi á frumsömdum sviðsverkum og sýndu margvíslega hæfileika á sviði sviðslista á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu. Svo fóru leikar að krakkarnir í Fellaskóla komust áfram með atriðið Hvað er að gerast ? og Laugalækjarskóli með atriðið Á bak við brosið. Næstu undanúrslit verða í Borgarleikhúsinu í kvöld og keppa þá átta skólar; Háteigsskóli, Vogaskóli, Hagaskóli, Breiðholtsskóli, Dalskóli, Seljaskóli, Sæmundarskóli og Foldaskóli. 

Úrslitakvöldið í Skrekk verður í beinni útsendingu á RÚV 8. nóvember.