Vesturgata lokar mánudaginn 5. júlí
Mánudaginn 5. júlí lokar Vesturgata og á sama tíma opnar Mýrargata aftur.
Framkvæmd Veitna og götulokun á Mýrargötu er nú að ljúka og verður gatan opnuð á ný á mánudag þann 5. júlí nk. Á sama tíma færist götulokunin yfir á Vesturgötu og verða því bæði Nýlendugata og Vesturgata lokaðar frá þeim tíma. Vinnusvæðið færist að gatnamótum Bræðraborgarstígs og Vesturgötu og framkvæmdin færist austur Vesturgötuna að gatnamótum Stýrimannastígs. Á mánudaginn verður byrjað að setja upp skilti og girða vinnusvæðið af. Þessi hluti verkefnisins er aðeins á undan áætlun en útlit er fyrir að framkvæmdum ljúki í október.
Hér að neðan er merkingaráætlun fyrir þá lokun.
Verkið felur í sér lagningu á nýju aðskildu skólpkerfi í Vesturgötu, frá Stýrimannastíg að Bræðraborgarstíg, niður að Hlésgötu ásamt endurnýjun á kaldavatnslögnum og lagningu ídráttarröra fyrir rafmagn, ljósleiðara og umferðarljós.
Við framkvæmdasvæðið í Vesturgötu verður lokað á aðgengi fyrir bíla á meðan framkvæmdum stendur en aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur tryggt.