Reykjavíkurborg á UTmessunni 2021
Reykjavíkurborg er einn af sýningaraðilum á UTmessunni í ár. Það er viðeigandi að borgin taki þátt í ráðstefnunni þar sem Reykjavík situr í fimmta sæti á lista viðskiptaháskólans IESE yfir sjálfbærustu og snjöllustu borgir heims.
Tækninni fleygir fram á sífellt meiri hraða með tilheyrandi áskorunum fyrir einstaklinga, fyrirtæki og hið opinbera. Á það einnig við um Reykjavíkurborg en hraðar tæknibreytingar og þróun í ytra umhverfinu á alþjóðavísu, sem hefur tekið gríðarlegt stökk með Covid-19 heimsfaraldrinum, hafa á síðustu árum haft áhrif á alla starfsemi hennar. Borgin hóf hina óhjákvæmilegu stafrænu umbreytingu fyrir nokkru sem nú hefur verið sett á fulla ferð, á hraðleið inn í framtíðina. Nýsköpun og notendamiðuð þjónusta er ekki lengur áhugaverð hugmynd sem haldið er á lofti til skrauts heldur hefur henni verið hrint markvisst í framkvæmd hjá Reykjavíkurborg.
Á UTmessunni hefur verið settur upp rafrænn sýningarbás, þar sem farið er yfir stafræna vegferð Reykjavíkurborgar. Einnig verður boðið upp á fimm stutta og skemmtilega básahittinga sem verða opnir almenningi. Í básaspjallinu verður snert á hinum ýmsu málum og kynnt verður til sögunnar nýtt gagnvirkt innkaupakerfi.
Innkaupakerfið, eða svokallaður DPS samningur, gefur sérfræðingum á fjölmörgum sviðum tækifæri til að starfa með borginni á einfaldan hátt. Þjónustan tekur meðal annars til sérfræðinga í gagnagrunnum, kerfisrekstri, Enterprise útstöðvarekstri, rekstri skýjaþjónustu, rekstri sýndarumhverfis, hugbúnaðarsérfræðinga, sérfræðinga í vöruþróun, rafrænna lausna og í upplýsingatækni.
Básaspjall föstudaginn 5. febrúar 2021.
Smellið á fundarhlekkina hér að neðan til að hlusta og taka þátt í spjallinu. Athugið að básaspjallið verður tekið upp til birtingar á vefnum fyrir þá sem hafa áhuga á að hlusta á fleiri en einn bás. Við bendum því spjöllurum á að slökkva á mynd og hljóði ef þeir vilja ekki heyrast eða sjást.
Dagskrá:
10:15-10:30
Hvernig MIRO bjargaði okkur í fjarvinnu
Andri Geirsson og Kristjana Björk Brynjarsdóttir verkefnastjórar Þjónustuhönnunar
https://reykjavik.webex.com/meet/andri.geirsson
10:15-10:30
Stafræn persónuvernd í nýsköpunarverkefnum Reykjavíkurborgar.
Hvernig tryggjum við að verkefni á sviði nýsköpunar og stafrænnar umbreytingar séu í samræmi við lög og reglur um persónuvernd?
Dagbjört Jónsdóttir sérfræðingur í stafrænni persónuvernd á Þjónustu- og nýsköpunarsviði og Aldís Geirdal Sverrisdóttir lögfræðingur
https://reykjavik.webex.com/meet/dagbjort.jonsdottir
10:15-10:30
Oooh ég elska lyktina af verkefnastjórnun og nýsköpun í morgunsárið!
Hugrún Ösp Reynisdóttir teymisstjóri verkefnastofu, Ólafur Sólimann Helgason teymistjóri vefteymis og Þröstur Sigurðsson skrifstofustjóri hjá Stafrænni Reykjavík
https://reykjavik.webex.com/meet/throstur
12:30 til 12:45
Gagnaþjónustan. Hlutverk gagnavísinda hjá Reykjavíkurborg: að skapa virði úr gögnum til að auðga þjónustupplifun borgarbúa. Einföld dæmi um virðisaukandi gagnavörur.
Óli Páll Geirsson skrifstofustjóri Gagnaþjónustunnar.
https://reykjavik.webex.com/meet/oli.pall.geirsson
12:30 til 12:45
Samfélag um samkeppni og samvinnu. Gagnvirkt innkaupakerfi Þjónustu og nýsköpunarsviðs Reykjavíkur
Aldís Geirdal Sverrisdóttir lögfræðingur og Kjartan Kjartansson deildarstjóri stoðþjónustu fjalla um þau tækifæri sem felast í DPS samningnum (Dynamic Purchasing System)
https://reykjavik.webex.com/start/kjartan.kjartansson
Hér má svo hlusta á viðtal við Þröst Sigurðsson, skrifstofustjóra hjá Stafrænni Reykjavík. Hann ræddi við þáttastjórnendur hlaðvarps UT messunar um stafræna umbreytingu borgarinnar, áhuga sinn á jazzi, stafræna leiðtoga og tækifæri fyrir fyrirtæki og sérfræðinga til að vinna með borginni að þeim fjölmörgum verkefnum sem eru á teikniborðinu.