Getur krakkinn ekki bara fengið einkunn?! - Streymi
Fróðir foreldrar fara aftur af stað eftir sumarfrí og halda nú fund um allt sem þú vilt vita um nýja námskrá og nýtt námsmat á 100 mínútum. Fundurinn er haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 4. október klukkan 20.
Útsending frá fundinum
Dagskrá kvöldsins:
Menntun - til hvers?
Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagskóla. Í erindi sínu mun Ómar kafa undir yfirborðið og spyrja: Hverjar eru þessar breytingar á námskrá og námsmati? Hvers vegna er verið að gera þær? Hvaða áhrif munu þær hafa? Ómar mun leitast við að ræða breytingarnar í víðu samhengi og velta upp stóru spurningunni um tilgang og gildi menntunar.
Hvernig styð ég barnið mitt í breyttu námsumhverfi – Hæfniviðmið fyrir foreldra!
Arndís Steinþórsdóttir, skólastjóri Háteigsskóla.
Í erindi sínu mun Arndís fjalla um mikilvægi samvinnu foreldra og skóla. Hvað skiptir máli fyrir foreldra að vita í nýju námsumhverfi?
Að samræma, skima og mæla – Til hvers í ósköpunum?
Gylfi Jón Gylfason, kennsluráðgjafi í Miðborg, Vesturbæ og Hlíðum
Í erindi sínu mun Gylfi Jón fjalla um tilgang og markmið samræmdra prófa, skimanna, stöðuprófa og staðlaðra mælinga.
Framsaga skólastjóra
Skólastjórar í grunnskólum Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða munu einnig stíga á svið og lýsa sinni sýn á nám til framtíðar í stuttu máli.
Fundarstjóri er María Reyndal leikkona og leikstjóri.
Veitingar í boði í hléi.
Fróðir foreldrar eru foreldrar frá Austurbæjarskóla, Grandaskóla, Hagaskóla, Háteigsskóla, Hlíðaskóla, Klettaskóla, Landakotsskóla, Melaskóla og Vesturbæjarskóla auk fulltrúa Vals, KR,Tjarnarinnar frístundamiðstöðvar og þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða