Fjárstyrkir á vegum Hverfisráðs Miðborgar

""

Búið er að opna fyrir fjárstyrk á vegum Hverfisráðs Miðborgar. Umsóknarfrestur er til 18. apríl n.k. og eiga umsóknir að berast til Harðar verkefnastjóra á Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða á netfangið: hordur.heidar.gudbjornsson@reykjavik.is 

1. Markmið með styrkjum Hverfsráðs er að styrkja og stuðla að ýmsum

verkefnum og uppákomum í Miðbæ Reykjavíkur.

2. Hverfsráðið ákveður í sameiningu hvort viðkomandi umsækjandi

fái þann styrk sem sótt er um.

3. Árleg framlög eru að hámarki 500.000 kr. en úthlutað verður úr sjóðnum

í apríl 2017 n.k.

4. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 18. apríl. til verkefnisstjóra

Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða á netfangið:

hordur.heidar.gudbjornsson@reykjavik.is

5. Umsóknir eru metnar með hliðsjón af:

a) markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð

b) hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf

c) hvort unnt sé að meta framvindu verksins

6. Greiðslur úr sjóðnum verða greiddar út í einni greiðslu til þeirra aðila

sem hljóta styrk úr sjóðnum.

7. Þeir aðilar sem fá úthlutað styrk skulu skila skýrslu um framvindu

verkefnisins til verkefnastjóra Þjóntumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar

og Hlíða í síðasta lagi ári eftir að styrkurinn er greiddur.

8. Hverfsráð getur óskað eftir því við styrkþega að þeir kynni verkefni sín,

en ráðið metur hvort þörf er á því hverju sinni.



Reykjavíkurborg

Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða