Styrkir á vegum Hverfisráðs Vesturbæjar
Hverfisráð Vesturbæjar auglýsir hér eftir áhugasömum einstaklingum, stofnunum og félagasamtökum til að sækja um í sjóð ráðsins, en hverfisráðið mun úthluta að hámarki 300.000 kr. þann 1. desember 2016, en umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 7. nóvember 2016.
Fjárstyrkir á vegum Hverfisráðs Vesturbæjar
Hverfisráð Vesturbæjar auglýsir hér eftir áhugasömum einstaklingum, stofnunum og félagasamtökum til að sækja um í sjóð ráðsins, en Hverfisráðið mun úthluta að hámarki 300.000 kr. þann 1. desember 2016. Umsóknum skal skilað fyrir 7. nóvember. n.k. í rafrænu formi til Harðar sem er verkefnastjóri í Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða á netfangið hordur.heidar.gudbjornsson@reykjavik.is
Hér að neðan eru upplýsingar um reglur sjóðsins:
1. Markmið með styrkjum Hverfisráðs er að styrkja ýmis verkefni og starfsemi sem á einn eða annan hátt styður við eða stuðlar að ýmsum verkefnum og uppákomum í Vesturbænum.
2. Hverfisráðið ákveður í sameiningu hvort viðkomandi umsækjandi fái þann styrk sem sótt er um.
3. Árleg framlög eru að hámarki 400.000 kr. en úthlutað er úr sjóð ráðsins tvisvar á ári, í maí og nóvember.
4. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 1. apríl og 10. nóv. ár hvert og skal auglýsa opinberlega í hverfismiðlum Vesturbæjar þegar hægt er að sækja um í sjóðinn.
5. Umsóknir eru metnar með hliðsjón af:
a) Markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð;
b) Hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf;
c) Hvort unnt sé að meta framvindu verksins.
6. Greiðslur úr sjóðnum verða greiddar út í einni greiðslu til viðkomandi aðila sem hlóta styrk hverju sinni.
7. Þeir aðilar sem fá úthlutað styrk skulu skila skýrslu um framvindu verkefnisins til verkefnastjóra félagsauðs og frístunda í Vesturgarði í síðasta lagi ári eftir að styrkurinn er greiddur.
8. Hverfisráð getur óskað eftir því við styrkþega að þeir kynni verkefni sín, en ráðið metur hvort þörf er á því hverju sinni.
Hverfisráð Vesturbæjar