Note: This news was published over two years ago.
Þjónusta Vesturbæjar og Miðborgar og Hlíða undir einn hatt
Borgarráð samþykkti í gær, fimmtudaginn 19. maí, tillögu þess efnis að sameina þjónustumiðstöð Vesturbæjar og Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða.
Samþykktin er að tillögu velferðarráðs en með samþættingu er hægt að efla og styrkja starfsemi nýrrar þjónustumiðstöðvar. Með sameiningu verður hægt að ná fram hagræði með betri nýtingu húsnæðis og stjórnunarlegrar ábyrgðar.
Mikilvægt er að nánari útfærsla sameiningar verði unnin í góðri samvinnu við starfsmenn og íbúa, m.a. í gegnum þau hverfisráð sem tilheyra umræddum þjónustumiðstöðvum, svo og viðskiptavinum.
Gert er ráð fyrir að nánari útfærsla og vinna við breytt skipulag hefjist nú þegar í góðu samstarfi við alla hluteigandi aðila og taki gildi að því loknu.