Sumarið er tíminn

""
Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts, hverfisráðin og frístundamiðstöðin Ársel stóðu fyrir forvarnarkvöldi fyrir foreldra í hverfinu undir heitinu Sumarið er tíminn – samtal við foreldra.
Yfirskrift fundarins var vináttan og að vera vinur vina sinna og með ráðleggingar fræðimanna í farteskinu fengu foreldrar fleiri verkfæri  til að hjálpa sínum börnum að vera vinur og hvernig eignast má vini.
 
Vanda Sigurgeirsdóttir fjallaði um Vináttu og vináttuþjálfun og hvernig foreldrar geta hjálpað börnum sínum með vináttu. Gunnar Hansson leikari mætti með uppistand og sló rækilega í gegn sem Frímann Gunnarsson ljóðskáld og „lifskunster“.  Anna Steinsen talaði um hvernig við getum verið við sjálf í vináttu. Í lok fundars var kynning á  framboði á frístundastarfi í hverfinu.