Mikið fjör á sumardaginn fyrsta

""
Það var góð mæting á hátíðina í Miðborg og Hlíðum á sumardaginn fyrsta sem haldin var á  íþróttasvæði Valsmanna að Hlíðarenda.  Í boði var skemmtileg dagskrá sem fór fram bæði innanhús og utan.  Harmóníkuspil frá Vitatorgsbandinu, hip hop frá Dans Brynju Péturs, víðivangsleikir í boði Sátafélagsins Landnema,  hoppukastali og  dans-, söng- og sirkusatriði frá félagsmiðstöðvum Kamps.
 
Skipulagið var í höndunum á starfsmönnum Frístundamiðstöðvarinnar Kamps, Vals og Þjónustumiðstöðvarinnar.  
Hér koma nokkrar skemmtilegar myndir frá deginum.
 
Gleðilegt sumar.