Trommað á striga, hjarta og rauð lína

Skóli og frístund

""
Ýmsar skemmtilegar uppákomur hafa verið í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag í tilefni af Barnamenningarhátíð. 
4-5 ára börn af leikskólanum Fífuborg tóku sig til snemma dags og trommuðu á striga í Tjarnarsalnum undir leiðsögn Sigrúnar Harðardóttur myndlistarkonu. Þau trommuðu í takt við ýmsa tónlist og bar árangurinn þess merki í litagleði og áferð. Sannkölluð listaverk til gleði fyrir gesti og gangandi. 
 
Síðdegis komu svo nemendur í Dalskóla dansandi í Ráðhúsið með rauðan þráð og risastórt hjarta. Börnin frömdu skemmtilegan gjörning, óð sinn til lista og lífs og gáfu börnin gestum í ráðhúsinu blóm og falleg orð. 
 
Sumardaginn fyrsta verður líka lífleg dagskrá í Ráðhúsinu fyrir alla fjölskylduna.  Sjá dagskrá Barnamenningarhátíðar.