Note: This news was published over two years ago.
Verkefnið „Saman gegn ofbeldi" hlýtur Hvatningarviðurkenningu BKR 2016
Mannlíf Mannréttindi
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri tóku við hvatningarviðurkenningu Bandalags kvenna í Reykjavík fyrir samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu „Saman gegn ofbeldi".
Á 100. þingi Bandalags kvenna í Reykjavík, sem haldið var laugardaginn 12. mars 2016, afhenti BKR í þriðja sinn viðurkenningar bandalagsins til aðila sem starfa á áherslusviðum félagsins. BKR telur mikilvægt að vekja athygli á því góða starfi sem unnið er á öllum sviðum samfélagsins og efla jákvæða samræðu.
Hvatningarviðurkenning BKR 2016
Hvatningarverðlaunin 2016 fær Samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu „Saman gegn ofbeldi". Markmið samstarfsins er að auka þekkingarmiðlun og bæta verklag til að taka á þeim heimilisofbeldismálum sem upp koma, í því skyni að tryggja öryggi borgarbúa á heimilum sínum, veita þolendum og gerendum betri þjónustu og bæta stöðu barna sem búa við heimilisofbeldi.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu veittu viðurkenningunni móttöku á fundinum.
Kona ársins 2016
Kona ársins að þessu sinni er Inga Dóra Sigfúsdóttir - fyrir brautryðjandi starf á sviði rannsókna á líðan barna og unglinga í nútímasamfélagi. Inga Dóra Sigfúsdóttir er prófessor við Háskólann í Reykjavík og stofnandi rannsóknarsetursins Rannsóknir og greining. Hún hlaut nýverið 300 milljón króna styrk frá Evrópusambandinu til að rannsaka líðan, hegðun og heilsu íslenskra barna. Í rannsókninni eru tengd saman mismunandi fræðasvið og skoðað er allt í senn; áhrifin á andlegu líðanina, á hegðunina, sem og líffræðilegu hliðina. Þannig eru tengdir saman þættir frá mismunandi fræðasviðum.