Note: This news was published over two years ago.
Nýju ári fagnað í Nauthólsvík
Að venju er nýju ári fagnað með svellköldu sjósundi á nýársdegi. Sjávarhiti hefur verið að meðaltali +1,2° C og búast má við svipuðu hitastigi á morgun. Sundið hefst klukkan 12:00 og Ylströndin er opin frá 11:00 til 16:00 svo hægt er að ylja sér í pottinum á eftir.
Allir velkomnir í svalasta nýárspartý Reykjavíkur.