Note: This news was published over two years ago.
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur: nnköllun á hveitibulgur vegna aðskotahlutar (fjöður).
Heilsa ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla frá neytendum Sólgæti lífrænt hveitibulgur vegna þess að aðskotahlutur (fjöður) fannst í einum poka.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Sólgæti.
Vöruheiti: Bulgar Wheat Bulgur.
Strikanúmer: 5024425284352.
Nettómagn: 500 g.
Best fyrir: 10.08.2016.
Upprunaland: Tyrkland.
Framleiðandi: Pakkað í Bretlandi fyrir Heilsu ehf.
Innflytjandi: Heilsa ehf., Bæjarflöt 1, 112 Reykjavík.
Dreifing: Fjarðarkaup, verslanir Hagkaupa, verslanir Kjarvals, verslanir Krónunnar, verslun Nóatúns, Lifandi markaður og verslanir Nettó.
Neytendur sem hafa keypt vöruna eru vinsamlega beðnir um að skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt eða farga henni.