Note: This news was published over two years ago.
Foreldrafræðsla í Frostaskjóli
Í vetur stendur Frístundamiðstöðin Frostaskjól fyrir foreldrafræðslu í samvinnu við Vesturgarð og foreldrafélögin í Vesturbænum.
Fræðslan fer fram í frístundamiðstöðinni Frostaskjóli, Frostaskjóli 2, og er markmiðið að bjóða uppá skemmtilega og fjölbreytta fræðslu fyrir foreldra í hverfinu.
28. október Fokk me-Fokk you
Fyrirlesarar: Andrea Marel og Kári Sigurðsson
Fjallað er um sjálfsmynd, samfélagsmiðla og samskipti kynjanna. Rætt verður um það sem brennur á unglingum í dag, snapchat, ask.fm og facebook. Einnig verður rætt um klámvæðinguna á opinskáan hátt.
18. nóvember 19.30-21.30
Jákvæð samskipti - Af hverju eru þau mikilvæg?
Fyrirlesari: Páll Ólafsson
Fyrirlesturinn er um jákvæð samskipti foreldra og barna, uppeldi barna, barnavernd, netnotkun barna o.s.frv. Lifandi, áhugaverður og skemmtilegur fyrirlestur.
Hvetjum við foreldra til að mæta og njóta. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir, sjáumst hress og kát!