Fjölbreytni á Bernhöfts Bazaar
Bernhöfts Bazaar er nýr og skemmtilegur útimarkaður sem haldinn verður á laugardögum frá kl. 13.00 - 18.00 í sumar.
Markaðurinn verður haldinn í sumar og verður selt á honum undir ólíkum þemum þá sex laugardaga sem hann mun standa yfir. Hann verður ýmist tileinkaður tónlist, plöntum, brettum og hjólum, leikföngum, beint frá ömmu og afa og list. Með hverju þema verða uppákomur og hægt verður að setjast niður, njóta samveru og sumarblíðu. Basarinn er eitt af verkefnum Reykjavíkurborgar, Torgum Í biðstöðu.
Hér með er auglýst eftir umsóknum frá hressu fólki sem vill pimpa upp hjól, selja gömlu leikföngin sín, spila tónlist, gamlar vínilplötur & kasettur of fleira. Einnig þeim sem vilja skiptast á afleggjurum, selja blómsveiga og sultu? Allt áhugafólk um tónlist, tísku, ræktun, hjól, afar og ömmur og listafólk er hvatt til að sækja um.
Þeir sem hafa áhuga á því að taka þátt í markaðinum, bæði einstaklingar og fyrirtæki hvort sem er til að selja eða vera með uppákomu geta sent umsókn með því að senda póst á netfangið bernhoftsbazaar@gmail.com
Fekari upplýsingar um þátttökugjald, umsóknarfresti og annað er á slóðinni www.bernhoftsbazaar.net.
Þemu Bernhhöfts Bazaar verður sem hér segir,
20.06 -Tónlist
27.06 -Plöntur & blóm
04.07 -Bretti & hjól
11.07 -Leikföng
18.07 -Beint frá ömmu og afa
25.07 -List