Gerum okkur glaðan dag í Grafarvogi
Íbúar í Grafarvogi og gestir, hverfishátíð Grafarvogsbúa verður laugardaginn 30. maí. Vel hefur tekist að virkja þann mannauð sem býr í hverfinu og verður dagskráin glæsileg að þessu sinni.
Fjölmargir einstaklingar, félög og fyrirtæki leggja hönd á plóg við að gera dagskrá dagsins sem glæsilegasta. Helstu dagskrársvæðin að þessu sinni verða í og við Egilshöll, Korpúlfsstaði, Spöng og svæðið vestanmegin við Strandveg en þar munu Frístundamiðstöðin Gufunesbær, Skemmtigarðurinn og íslenska gámafélagið bjóða til hátíðar.
Að venju skiptum við hverfinu í lit en Borgarhverfi verður blátt, Foldahverfi grænt, Staðahverfi fjólublátt, Bryggjuhverfi sægrænt, Hamrahverfi vínrautt, Rimahverfi gult, Engjahverfi bleikt, Húsahverfi appelsínugult og að lokum Víkurhverfi rautt. Tökum þátt og skreytum hús og garða.