Fallegir munir á vorsýningu félagsstarfsins í Gerðubergi

""

Vorsýning félagsstarfsins í Gerðubergi verður haldin í Borgarbókasafni Menningarmiðstöðinni Gerðubergi á laugardaginn 2. maí kl. 14. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnar sýninguna en þar verða til sýnis munir sem unnir hafa verið í handverkshópum í vetur.



 

Í Félagsstarfinu í Gerðubergi starfa fjölbreyttir handverkshópar og á vorsýningunni má á meðal annars sjá bókband, bútasaum, gler, handvinnu, málun, pappamódel, postulínsmálun, tálgun og útskurð. Við opnun sýningarinnar tekur Þorvaldur á móti gestum með harmonikkuleik og Gerðubergskórinn syngur vel valin lög. 

Sýningin stendur í fjórar vikur og skipta sýnendur mörgum tugum og eru verkin því einkar fjölbreytt. Félagsstarfið er mikilvægur þáttur í daglegu lífi fjölmargra borgarbúa en starfið er öllum opið óháð aldri. Vorsýningunni er ætlað að gefa góða mynd af því öfluga starfi sem fram fer í félagsstarfinu og hvetja þannig enn fleiri til þátttöku.

Handverksfólkið verður á staðnum, sýnir verk sín og býður handverk til sölu.

Síðasta sýningardaginn, sunnudaginn 31. maí kl. 14 - 16, verður markaðsstemmning á vorsýningunni.