Vel heppnuð hátíð á Sumardaginn fyrsta í Vesturbænum

""

Það var margt um manninn á Sumardaginn fyrsta í Vesturbænum og var ekki hægt að sjá annað en að fólk skemmti sér afar vel. Þetta er sennilega ein stærsta hátíðin sem hefur verið í Vesturbænum á Sumardaginn fyrsta síðustu ár. Afar fjölbreytt dagskrá var í boði og gátu flestir fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá hátíðinni.